3M PELTOR CH-3 FLX2 Manual page 92

Table of Contents

Advertisement

10.2. FÖRGUN
• Farðu eftir lögum og reglugerðum.
• Notaðu flokkunarkerfi Sorpu fyrir rafeindavörur.
11. VIÐHALD
11.1. AÐ HREINSA TÆKIÐ
• Notaðu klút vættan í sápu og heitu vatni til þess að hreinsa
eyrnaskálar, höfuðspöng og eyrnapúða.
VARÚÐ: EKKI setja heyrnarhlífarnar ofan í vatn.
• Ef heyrnarhlífarnar vökna skaltu snúa eyrnahlífunum út,
fjarlægja eyrnapúða og frauðfóður og láta allt þorna áður
en þær eru settar saman á ný. Kynntu þér kaflann AÐ
FJARLÆGJA EYRNAPÚÐA OG SKIPTA UM ÞÁ.
• Skoðaðu eyrnapúðana og frauðfóðrið reglubundið í leit að
skemmdum. Skipta þarf um skemmdan eyrnapúða. Kynntu
þér kaflann FYLGIHLUTIR.
• Skiptu um frauðfóður og eyrnapúða að lágmarki tvisvar
á ári.
11.2. AÐ FJARLÆGJA EYRNAPÚÐA OG SKIPTA
UM ÞÁ
1. Taktu undir innri brún eyrnapúðans og kipptu honum beint
út. (Mynd 7:A)
2. Fjarlægðu gamla eyrnapúðann og komdu þeim nýja fyrir í
eyrnaskálinni. (Mynd 7:B)
3. Þrýstu eyrnapúðanum á sinn stað. (Mynd 7:E)
VARÚÐ: Gættu þess að púðahlífin klemmist ekki á milli
eyrnaskálar og eyrnapúða. (Mynd 7:F)
11.3. AÐ FJARLÆGJA FRAUÐFÓÐRIÐ OG SKIPTA
UM ÞAÐ
1. Fjarlægðu eyrnapúðana.
2. Fjarlægðu frauðfóðrið. (Mynd 7:C)
3. Komdu frauðfóðrinu fyrir í eyrnaskálinni eins og sýnt er á
teikningu. (Mynd 7:D)
4. Settu eyrnapúðana á.
11.4. AÐ SKIPTA UM FESTINGU VIÐ
ÖRYGGISHJÁLM
Réttar festingar fyrir tegundir öryggishjálma eru sýndar í
Töflu E.
1. Fjarlægðu skrúfurnar úr festingunni við öryggishjálminn.
(Mynd 7:G)
2. Fjarlægðu festinguna af öryggishjálminum.
3. Komdu nýju festingunni fyrir á öryggishjálminum í
samræmi við leiðbeiningar á umbúðunum.
12. FYLGIHLUTIR
ATHUGASEMD: Fylgihlutirnir í listanum hér að neðan eru
ætlaðir ekkieiginöruggum búnaði. Nánari upplýsingar um
vottaða varahluti og fylgihluti fyrir eiginörugg tæki er að finna í
sjálfstæðum Öryggisleiðbeiningum sem fylgja í umbúðum
tækisins.
Heiti
Hreinlætisbúnaður
Gelhringir
Hlífðarlímband hljóðnema
Leitaðu vinsamlegast til tæknideildar 3M um nánari
upplýsingar um vara- og fylgihluti. Samskiptaupplýsingar er
að finna á öftustu síðu handbókarinnar.
13. ÁBYRGÐ OG TAKMÖRKUÐ
ATHUGASEMD: Eftirfarandi yfirlýsingar eiga ekki við í
Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. Neytendur ættu að treysta á
lögvarin réttindi sín.
13.1. ÁBYRGÐ
Komi í ljós að einhver vara frá 3M Personal Safety Division sé
gölluð hvað efnivið eða handbragð varðar og ekki í samræmi
við ótvíræða ábyrgð varðandi sérstakan tilgang, er eina
skuldbinding 3M og úrbót þér til handa sú að 3M velur sjálft
um að gera við, skipta um eða endurgreiða þér kaupverð
viðkomandi hluta eða vöru, að því tilskyldu að þú hafir tilkynnt
í tíma um vandamálið og að staðfest sé að varan hafi verið
geymd, henni viðhaldið og hún notuð í samræmi við skriflegar
leiðbeiningar 3M.
ÁBYRGÐ ÞESSI EINSKORÐAST VIÐ OG KEMUR Í
STAÐINN FYRIR ALLA YFIRLÝSTA ÁBYRGÐ EÐA ÁBYRGÐ
SEM GEFIN ER Í SKYN UM SELJANLEIKA, GAGNSEMI Í
ÁKVEÐNUM TILGANGI EÐA AÐRA ÁBYRGÐ UM GÆÐI
EÐA ÁBYRGÐ SEM SPRETTUR AF SÖLU, VENJU EÐA
NOTKUN Í STARFI, NEMA HVAÐ VARÐAR TILKALL OG
VEGNA BROTA GEGN EINKALEYFI.
3M ber samkvæmt ábyrgð þessari engar skyldur vegna
neinnar vöru sem ekki skilar ætluðum árangri vegna
ófullnægjandi eða rangrar geymslu, meðferðar eða viðhalds,
þegar ekki er farið eftir leiðbeiningum með vörunni eða þegar
henni er breytt eða hún skemmd af slysni eða vegna
vanrækslu eða rangrar notkunar.
13.2. TAKMÖRKUN Á ÁBYRGÐ
3M SKAL AÐ ENGU LEYTI BERA ÁBYRGÐ Á NEINU BEINU,
ÓBEINU, SÉRSTÖKU, TILFALLANDI EÐA AFLEIDDU TJÓNI
EÐA SKEMMDUM (ÞAR MEÐ TALIÐ HAGNAÐARTAP) SEM
SPRETTUR AF VÖRU ÞESSARI, BURTSÉÐ FRÁ ÞVÍ
HVAÐA LAGAKENNINGUM ER BEITT, NEMA ÞAR SEM ÞAÐ
ER LÖGUM SAMKVÆMT BANNAÐ. ÚRRÆÐI
EINSKORÐAST VIÐ ÞAÐ SEM HÉR ER GREINT FRÁ.
13.3. ENGAR BREYTINGAR
Ekki skal gera neinar breytingar á tæki þessu nema með
skriflegu samþykki 3M fyrirtækisins. Óheimilar breytingar
gætu ógilt ábyrgð og heimild notanda til þess að nota tækið.
Tegund
HY84
HY80
HYM1000
Leiðslur
PTT-millistykki
SKAÐABÓTASKYLDA
IS
FLX2**
FL4000 vörulínan
FL5000 vörulínan
85

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents