3M DBI-SALA EZ-Stop AJ512Y/0 User Instructions page 132

En 355:2002 energy absorbing lanyard
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
1.0
NOTKUN
1.1
TILGANGUR: Dragreipi eru hönnuð til að vera hluti af persónulegu fallstöðvunarkerfi (PFAS). Þau geta dreift fallorku,
takmarkað fallálag á líkamann eða verið notuð fyrir staðsetningu við vinnu og varnir, háð tegund þeirra. Mynd 1
sýnir tegundir dragreipa sem fjallað er um í þessari notendahandbók. Þau geta verið notuð við flestar aðstæður þar
sem þörf er á hreyfanleika starfsmanna og fallvörn (t.d. skoðunarvinnu, almennri byggingavinnu, viðhaldsvinnu,
olíuvinnslu, vinnu í lokuðu rými o.s.frv.).
1.2
STAÐLAR: Þetta dragreipi er í samræmi við innlendan og svæðisbundinn staðal eða staðla sem finna má á forsíðu
þessara leiðbeininga. Kynntu þér staðbundnar kröfur varðandi öryggi á vinnustað til að fá frekari upplýsingar
um persónulega fallstöðvun. Ef þessi vara er endurseld utan upprunalandsins skal endursöluaðilinn veita þessar
leiðbeiningar á tungumáli landsins þar sem varan verður notuð.
1.3
ÞJÁLFUN: Þessi búnaður er ætlaður til notkunar af aðilum sem hafa hlotið þjálfun í réttri notkun hans. Það er á
ábyrgð notanda að tryggja að þeir þekki þessar leiðbeiningar og hafi fengið þjálfun í réttri umhirðu og notkun þessa
búnaðar. Notendur verða einnig að skilja eiginleika búnaðarins við notkun, takmarkanir hans, og hvaða afleiðingar það
getur haft að nota hann á rangan hátt.
1.4
KRÖFUR: Ávallt skal hafa í huga eftirfarandi takmarkanir við uppsetningu eða notkun þessa búnaðar.
Geta: Dragreipi eru til notkunar af einum aðila með samanlagða þyngd (fatnaður, verkfæri o.s.frv.) innan
þyngdarsviðs sem tilgreint er í mynd 1 fyrir gerð dragreipis. Gakktu úr skugga um að allir þættir í kerfinu séu
metnir að getu sem er viðeigandi fyrir notkun þína.
Festingar: Festingar sem valdar eru fyrir fallstöðvunarkerfi verða að þola kyrrstöðuþunga úr þeim áttum sem
heimilaðar eru af kerfinu og eru að minnsta kosti:
1.
12 kN fyrir málmfestingar eða 18 kN fyrir textílfestingar og óvottaðar festingar, eða
2.
Tvöfalt hámarks höggálag fyrir vottaðar festingar.
Ef heimilað er miðað við tegund festinar, þegar fleiri en eitt fallstöðvunarkerfi er fest við festinguna, skal
styrkleikinn í (1) og (2) hér að ofan margfaldaður með fjölda kerfa sem fest eru við festinguna.
Frjálst fall: Ef það er enginn slaki mun dragreipið takmarka frjálsa fallhæð við 0 sentimetra (0 fet). Frjáls
fallhæð breytist með slaka á dragreipi og átt tengipunktar öryggisbeltis við tengipunkt festingar (sjá mynd 2):
Ef tengipunktur öryggisbeltis er undir tengipunkti festingar (mynd 2A): FF = L
Ef tengipunktur öryggisbeltis er yfir tengipunkti festingar (mynd 2B): FF = L
FF
Frjáls fallhæð
HD
Lóðrétt fjarlægð frá tengipunkti öryggisbeltis í tengipunkt festingar.
A
L
Lengd dragreipis
y
;
Ekki lengja dragreipi: Ekki lengja dragreipi með því að tengja dragreipi, orkugleypi eða álíka hlut án þess
að ráðfæra þig við 3M.
Sveiflufall: Sveiflufall á sér stað þegar festipunktur er beint fyrir ofan þann punkt þar sem fall á sér stað. Kraftur
þess að lenda á hlut við sveiflufall getur valdið alvarlegu líkamstjóni eða dauða (sjá mynd 3). Lágmarka skal
sveiflur með því að vinna eins beint fyrir neðan festipunktinn og mögulegt er.
Fjarlægð frá hindrunum við fall: Mynd 4 sýnir útreikning á nauðsynlegu bili undir kerfisfestingu dragreipis.
Nauðsynlegt bil er mismunandi eftir notkun orkugleypis.
Til að reikna fallbil (C
Ca = MASD + Ly + 1,75 m (5,74 ft) + XH + 1,5 m (5 ft) + 1 m (3,28 ft)
C
a
MASD
L
y
1,75 m (5.74 ft)
X
H
1,5 metri (5 fet)
1 m (3,28 fet)
Hætta: Notkun þessa búnaðar á svæðum með umhverfishættu getur krafist viðbótarráðstafana til að draga
úr líkunum á meiðsli á notendum eða skemmdir á búnaði. Hættur geta verið, en takmarkast ekki við: hár hiti,
ætandi efni, ætandi umhverfi, háspennulínur, sprengifimar eða eitraðar lofttegundir, vélbúnaður á hreyfingu,
skarpar brúnir eða efni fyrir ofan sem getur fallið á eða komist í snertingu við notandann eða fallstöðvunarkerfið.
Forðastu vinnu þar sem dragreipið getur þverað eða flækst við dragreipi annars starfsmanns. Forðastu vinnu þar
sem hlutur getur fallið eða lent á dragreipinu, sem verður til þess að jafnvægi fer eða skemmir dragreipið. Ekki
láta dragreipið fara undir hendur eða á milli fóta.
):
a
Bil fyrir neðan festingu
Hámarks frávik kerfisfestingar
Lengd dragreipis
Magn notkunar orkugleypis - Hámarks
Áætluð strekking öryggisbeltis
Fjarlægð frá aftari D-hring að fótum
Autt bil
132
- HD
y
A
+ HD
y
A

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents