Tilætluð Notkun - 3M DBI-SALA EZ-Stop AJ512Y/0 User Instructions

En 355:2002 energy absorbing lanyard
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Vinsamlegast lestu, meðtaktu og fylgdu öllum öryggisupplýsingum sem eru í þessum leiðbeiningum áður en
þetta dragreipi sem dregur úr orku er notað. EF LEIÐBEININGUM ÞESSUM ER EKKI FYLGT EFTIR, GETUR ÞAÐ
VALDIÐ ALVARLEGUM MEÐSLUM, LÍKAMSTJÓNI EÐA DAUÐA.
Leiðbeiningar þessar verður að afhenda notanda þessa búnaðar. Geymdu þessar leiðbeiningar til að styðjast við
í framtíðinni
Tilætluð notkun:
Þetta dragreipi sem dregur úr orku er ætlað til notkunar sem hluti af fullkomnu verndarkerfi sem verndar manneskjuna gegn
falli.
Öll önnur notkun, þ.m.t., en takmarkast ekki við, meðhöndlun efna, notkun í afþreyingar- eða íþróttaskyni eða önnur notkun
sem ekki er lýst í notendaleiðbeiningunum, er ekki samþykkt af 3M og gæti valdið alvarlegum meiðslum eða dauða.
Einungis þjálfaðir notendur á vinnustað skulu nota þennan búnað.
!
VIÐVÖRUN
Þetta dragreipi sem dregur úr orku er hluti af fallvarnarkerfi. Ætlast er til að allir notendur séu fullþjálfaðir í öruggri
uppsetningu og notkun þeirra eigin fallvarnarkerfis. Röng notkun þessa búnaðar getur valdið alvarlegum meiðslum
eða dauða. Fyrir rétt val, notkun, viðhald og þjónustu, skaltu lesa þessar notendaleiðbeiningunum og allar ráðleggingar
framleiðanda, ræða við yfirmann þinn eða hafa samband við tæknilega þjónustu 3M
Til að fyrirbyggja áhættuna sem fylgir því að starfa með dragreipi sem dregur úr orku, sem gæti, ef ekki er
komið í veg fyrir það, valdið alvarlegu líkamstjóni eða dauða:
-
Skoðaðu búnaðinn fyrir hverja notkun, a.m.k. árlega og ef fall hefur átt sér stað. Skoðaðu hann í samræmi við
notendaleiðbeiningunum.
-
Ef skoðunin leiðir í ljós óöruggt ástand eða galla skal taka búnaðinn úr umferð og farga honum.
-
Allan búnað sem hefur verið notaður í falli eða orðið fyrir miklu höggi þarf tafarlaust að taka úr umferð. Kynntu þér
notendaleiðbeiningunum eða hafðu samband við fallverndun 3M (3M Fall Protection).
-
Tryggja skal að öll undirkerfi (t.d. dragreipi) séu hættulaus, þar á meðal, en ekki takmarkað við, flækjur við aðra
starfsmenn, þig sjálfa/n, vélbúnað á ferð eða aðra hluti í kring.
-
Tryggja skal að viðeigandi vörn fyrir brúnir sé notuð þegar búnaðurinn getur komist í snertingu við skarpar brúnir
eða horn.
-
Festa skal ónotaðan fót/fætur dragreipisins við tengibúnað á beltinu ef hann fylgir.
-
Ekki binda hnút á dragreipið.
-
Ekki má fara fram fyrir fjölda leyfilegra notanda.
-
Tryggja skal að öll fallvarnarkerfi/undirkerfi sem eru samsett úr íhlutum mismunandi framleiðenda séu samhæfð og
mæti kröfum viðeigandi staðla, þ.m.t. staðlinum ANSI Z359 eða öðrum viðeigandi fallvarnarkóðum, stöðlum eða
kröfum. Alltaf skal ráðfæra sig við hæfan eða vottaðan aðila, áður en þessi kerfi eru notuð.
Til að minnka áhættuna sem fylgir því að starfa hátt uppi, sem gæti, ef ekki er komið í veg fyrir það, valdið
alvarlegu líkamstjóni eða dauða:
-
Tryggðu að heilsa þín og líkamlegt ástand geri þér örugglega kleift að þola allt það álag sem fylgir því að starfa hátt
uppi. Ráðfærðu þig við lækni ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi hæfni þína til að nota þennan búnað.
-
Aldrei skal fara yfir leyfilega getu fallvarnarbúnaðarins.
-
Aldrei skal fara umfram hámarkslengd frjáls falls sem fallvarnarbúnaðurinn leyfir.
-
Ekki nota neinn fallvarnarbúnað sem bilar við prófun eða við eftirlit, eða ef þú hefur áhyggjur af notkun búnaðarins
eða telur að hann henti ekki í það verk sem er fyrir höndum. Hafðu samband við tæknilega þjónustu 3M ef þú ert
með einhverjar spurningar.
-
Sum undirkerfi og samsetningar íhluta geta truflað notkun þessa búnaðar. Einungis skal nota tengingar sem eru
samhæfðar við þennan búnað. Ráðfærðu þig við 3M fyrir notkun þessa búnaðar með íhlutum eða undirkerfum sem
eru frábrugðin þeim kerfum sem er lýst í notandaleiðbeiningunum.
-
Nota skal auka varúðarráðstafanir þegar verið er að vinna nálægt tækjabúnaði sem er á hreyfingu (dæmi: á
olíuborpöllum), nálægt rafmagnshættu, við hátt hitastig, við efnahættu, þar sem sprengihætta er eða hættulegt gas,
skarpar brúnir, eða undir hlutum sem gætu fallið á þig eða á fallvarnarbúnaðinn sjálfan.
-
Notaðu Arc Flash- eða Hot Works-búnað þegar þú vinnur í mjög heitu umhverfi.
-
Forðastu yfirborðsfleti og hluti sem geta skaðað notanda eða búnaðinn.
-
Tryggðu að það sé viðeigandi pláss til að falla þegar þú vinnur hátt uppi.
-
Aldrei breyta eða umbreyta fallvarnarbúnaðinum. Einungis 3M eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá 3M mega gera
við þennan búnað.
-
Áður en fallvarnarbúnaður er notaður skal tryggja að neyðaráætlun sé til um það hvernig bregðast skuli samstundis
við ef fall eða slys á sér stað.
-
Ef fall á sér stað skal leita læknishjálpar strax fyrir þann starfsmann sem fallið hefur.
-
Ekki skal nota líkamsbelti til að stöðva fall. Einungis skal nota fullt líkamsbeisli til að stöðva fall.
-
Lágmarka skal sveiflur með því að vinna eins beint fyrir neðan festipunktinn og mögulegt er.
-
Ef þjálfun fer fram með þessum búnaði, verður að nota annað fallvarnarkerfi svo að sá sem er í þjálfun sé ekki í
hættu við að falla óvart til jarðar.
-
Alltaf skal nota viðeigandi persónuhlífar þegar verið er að setja upp, nota eða hafa eftirlit með búnaðinum/kerfinu.
129
IS

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents