Góð Ráð Við Matvinnslu; Notkun Fjölnota Blaðsins - KitchenAid 5KFPM771 Instructions And Recipes Manual

Hide thumbs Also See for 5KFPM771:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 30
NOTKUN FJÖLNOTA
BLAÐSINS
Til að saxa ferska ávexti eða
grænmeti:
Afhýðið, kjarnhreinsið og/eða fjarlægið
fræ. Skerið matvælin í bita, 2,54 til 3,81
sm á stærð. Vinnið matvælin í æskilega
stærð með því að styðja á „Pulse"
hnappinn, í 1 til 2 sekúndur í einu. Skafið
hliðar skálarinnar ef þurfa þykir.
Til að mauka soðna ávexti og
grænmeti (annað en kartöflur):
Bætið við 60 ml (¼ bolla) af vökva úr
uppskriftinni fyrir hvern bolla af matvælum.
Vinnið matvælin í stuttum lotum þar
til allt er orðið fínhakkað. Vinnið síðan
samfellt þar til æskilegri áferð er náð.
Skafið hliðar skálarinnar ef þurfa þykir.
Til að útbúa kartöflustöppu:
Setjið kokkaskálina (5KFPM776) ofan
í vinnsluskálina. Notið rifdisk og rífið
niður heitar, soðnar kartöflur. Fjarlægið
kokkaskálina með kartöflunum. Setjið
fjölnota blaðið í vinnsluskálina og
bætið þar í rifnum kartöflunum, mjúku
smjöri, mjólk og kryddi. Styðjið á
„Pulse" hnappinn 3 til 4 sinnum, 2 til
3 sekúndur í einu, þar til mjólkin hefur
hrærst vel saman við og áferðin er slétt.
Gætið þess að ofvinna ekki. Á gerðum
matvinnsluvéla, öðrum en 5KFPM776, má
nota vinnsluskálina fyrir allt ferlið.
Til að saxa þurrkaða (eða klístraða)
ávexti:
Matvælin ættu að vera köld. Bætið við
30 gr (¼ bolla) af hveiti úr uppskriftinni
fyrir hver 60 gr (½ bolla) af þurrkuðum
ávöxtum. Vinnið ávextina með því að
styðja stutt í einu á „Pulse" hnappinn, þar
til réttri áferð er náð.
Til að fínsaxa sítrónubörk:
Flysjið litaða hlutann (án hvítu himnunnar)
með beittum hníf utan af sítrónunni.
Skerið börkinn í litla strimla. Vinnið þar til
hann er fínsaxaður.
Góð ráð við matvinnslu
Til að hakka hvítlauk eða saxa ferskar
kryddjurtir eða lítið magn grænmetis:
Hafið vélina í gangi og setjið matvælin
niður um ílagsopið. Vinnið þar til allt
er hakkað. Bestur árangur fæst ef
vinnsluskálin og kryddjurtirnar eru vel
þurrar áður en byrjað er að vinna.
Til að saxa hnetur eða búa til
hnetusmjör:
Vinnið allt að 375 gr (3 bolla) af hnetum
í æskilega áferð með því að styðja stutt í
einu á „Pulse" hnappinn, 1 til 2 sekúndur
í einu. Til að fá grófari áferð: vinnið
minni skammta í einu, styðjið á „Pulse"
hnappinn 1 til 2 sinnum, 1 til 2 sekúndur
í einu. Styðjið oftar á „Pulse" hnappinn til
að fá fínni áferð. Til að búa til hnetusmjör
skal vinna samfellt þar til sléttri áferð er
náð. Geymið í kæli.
Til að hakka soðið eða hrátt kjöt,
fuglakjöt eða sjávarrétti:
Matvælin ættu að vera vel kæld. Skerið
í 2,5 cm bita. Vinnið allt að 450 gr í
æskilega stærð með því að styðja stutt í
einu á „Pulse" hnappinn, 1 til 2 sekúndur í
einu. Skafið hliðar skálarinnar ef þurfa þykir.
Til að gera brauð-, köku- eða
kexmylsnu:
Brjótið matvælin í 4 til 5 cm stykki. Vinnið
þar til fínni áferð er náð. Ef notuð eru
stærri stykki skal styðja 2 til 3 sinnum á
„Pulse" hnappinn, 1 til 2 sekúndur í einu.
Vinnið síðan þar til fínni áferð er náð.
Til að bræða súkkulaði í uppskrift:
Setjið súkkulaði og sykur úr uppskriftinni
saman í vinnsluskálina. Vinnið þar til allt er
fínhakkað. Hitið vökvann úr uppskriftinni.
Hafið vélina í gangi og hellið heitum
vökvanum niður um ílagsopið. Vinnið þar
til sléttri áferð er náð.
17

Hide quick links:

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

5kfpm7765kfpm775

Table of Contents