Notkun Sneið- Og Rifdiska - KitchenAid 5KFPM771 Instructions And Recipes Manual

Hide thumbs Also See for 5KFPM771:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 30
Til að rífa harðan ost eins og
Parmesan og Pecorino:
Reynið aldrei að vinna ost sem er svo
harður að ekki er hægt að stinga í
hann með beittum hníf. Hægt er að
nota fjölnota blaðið til að rífa harðan
ost. Skerið ostinn í 2,5 cm bita. Setjið í
vinnsluskálina. Vinnið með því að styðja
stutt í einu á „Pulse" hnappinn, þar til
osturinn hefur verið grófhakkaður. Vinnið
samfellt þar til allt er orðið fínrifið. Einnig
má bæta við ostbitum gegnum litla
ílagsopið á meðan vélin er að vinna.
NOTKUN SNEIÐ- OG
RIFDISKA
ATHUGIÐ: Þegar verið er að
skera og troða matvælum ofan
í sérlega víða (ultra wide mouth) ílagsopið,
skal ekki fara upp fyrir strikið sem sýnir
hámarksmagn. Þannig getur troðarinn
virkjað öryggiskerfið og vélin farið í gang.
Til að skera fína strimla eða stöngla
úr grænmeti og ávöxtum:
Skerið matvælin þannig
að þau komist lárétt í
ílagsopið. Setjið matvælin
lárétt í ílagsopið. Vinnið
með því að nota jafnan
þrýsting og búið til ílangar
sneiðar. Endurraðið
sneiðunum og raðið lárétt
eða lóðrétt í ílagsopið.
Vinnið með því að nota jafnan þrýsting.
Góð ráð við matvinnslu
Til að sneiða eða rífa ílanga og frekar
mjóa ávexti og grænmeti, svo sem
sellerí, gulrætur og bananar:
Skerið matvælin þannig
að þau passi lárétt eða
lóðrétt í ílagsopið og
fyllið opið vel þannig að
matvælin haldist kyrr.
Vinnið með því að nota
jafnan þrýsting. Einnig
má nota litla troðarann
í tvískipta troðaranum. Setjið matvælin
lóðrétt í opið og notið litla troðarann til
að vinna hann.
Til að sneiða eða rífa kringlótta ávexti
og grænmeti, svo sem lauk, epli og
paprikur:
Afhýðið, kjarnhreinsið og/eða fjarlægið
fræ. Skerið í 2 eða 4 hluta svo allt komist
vel um ílagsopið. Setjið í ílagsopið. Vinnið
með því að nota jafnan þrýsting.
Til að sneiða eða rífa smáa ávexti og
grænmeti, svo sem jarðarber, sveppi
og radísur:
Setjið matvælin í lóðréttum eða láréttum
lögum í ílagsopið. Fyllið opið svo matvælin
haldist kyrr en fyllið þó ekki uppfyrir
merkið um hámarksmagn. Vinnið með því
að nota jafnan þrýsting. Einnig má nota
litla troðarann í tvískipta troðaranum.
Setjið matvælin lóðrétt í opið og notið litla
troðarann til að vinna þau.
18

Hide quick links:

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

5kfpm7765kfpm775

Table of Contents