3M Peltor WS ProTac XPI Manual page 109

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
3M™ PELTOR™ WS™ ProTac XPI Headset
MT15H7*WS6*
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja
heyrnarverndarlausn frá 3M™ PELTOR™!
3M™ PELTOR™ WS™ ProTac XPI heyrnarhlífar eru búnar
innbyggðri Bluetooth
-tækni og styrkstýringu fyrir
®
umhverfishlustun. Velkomin að næstu kynslóð persónuhlífa
með samskiptabúnaði.
MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir
þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum 3M™ PELTOR™ heyrnartólum er ætlað að tryggja
starfsfólki vernd gegn hættulegum hljóðstyrk um leið og
notandinn getur átt samskipti með innbyggðri Bluetooth
tækni eða öðrum hlustunarbúnaði og heyrt umhverfishljóð
frá umhverfishljóðnemum. Gert er ráð fyrir því að allir
notendur lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar notenda
ásamt því að kunna að nota tækið.
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar rangt
eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar eða
-taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til að kynna
þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með bómull í
eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu
til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu yfirgefa
hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa samband við
lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt
til alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við. Erfiðara getur reynst að
heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á meðan hlustað er
á afþreyingu.
b. Notaðu ekki búnaðinn í mögulega sprengifimu umhverfi til
að draga úr hættu á því að sprenging verði.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi felli
allar heyrnarhlífar vandlega að sér. Rannsóknir benda til
þess að stundum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyfingargildi á umbúðum gefa til kynna vegna frávika
við að fella hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig og færni
viðkomandi og hvatningu til þess. Kynntu þér viðeigandi
reglur um leiðbeiningar um aðlögun gilda á merkimiða. Séu
viðeigandi reglur ekki fyrir hendi er ráðlagt að lækka
suðhlutfall til merkis (SNR) til að fá betra mat á dæmiverðri
vernd.
b. U.S. EPA skilgreinir NRR (suðhreinsunarflokkun) sem
sem aðferð við að mæla hljóðdeyfingu eyrnahlífa. 3M ber
þó enga ábyrgð á nýtanleika NRR í þessum tilgangi. 3M
mælir eindregið með því að hver og einn notandi felli allar
heyrnarhlífar vandlega að sér. Rannsóknir benda til þess
að stundum sé hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingargildi
á umbúðum gefa til kynna vegna frávika við að fella
hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig og færni viðkomandi
og hvatningu til þess. Kynntu þér viðeigandi reglur um
leiðbeiningar um aðlögun gilda á merkimiða. Mælt er með
því að NRR sé lækkað um 50% til að meta betur
dæmigerða heyrnarvörn.
c. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
-
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum
®
komið fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til
þess að deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi
upplýsingar um rétta notkun.
d. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða
forðastu hávaðasamt umhverfi.
e. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum (t.d.
öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að þau
hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt
annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól, hreinlætishlífar
o.s.frv.) sem gæti dregið úr einangrunargildi
eyrnahlífapúðanna og verndargildi hlífanna.
f. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspöng eða hálsspöng
og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
g. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir
með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í
leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir
notaðir reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að
minnsta kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi
vernd, hreinlæti og þægindum.
h. Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið
fram yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við. Hljóðstyrkur frá hvaða
tengdum ytri hljóðgjafa sem er, svo sem talstöðvum og
símum, getur farið yfir örugg hávaðamörk svo notandinn
verður að takmarka þau á viðeigandi hátt. Hafðu hljóðstyrk
frá ytri hljóðgjöfum alltaf eins lágt stilltan og mögulegt er við
hverjar aðstæður og takmarkaðu þann tíma sem
hættulegur hljóðstyrkur, skilgreindur af vinnuveitanda og
viðeigandi reglugerðum, getur valdið váhrifum. Ef þér finnst
eins og þú heyrir verr eða þú heyrir són eða suð í eða eftir
hávaða eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu til að ætla
að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu umsvifalaust fara í
100
IS

Hide quick links:

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Peltor ws protac xpi headset

Table of Contents