Hreinsun Og Sótthreinsun; Úðari; Undirbúningur; Hreinlæti Og Þrif Búnaðarins Í Heimahúsi - Pari eFlow rapid Instructions For Use Manual

Nebuliser system
Hide thumbs Also See for eFlow rapid:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
HREINSUN OG SÓTTHREINSUN
5
Úðari
Úðarann (ásamt úðagjafanum) skal
hreinsa strax eftir hverja notkun og
sótthreinsa einu sinni á dag.
Undirbúningur
Taktu úðarann í sundur:
• Losaðu úðaraleiðsluna af úðaranum.
• Taktu munnstykkið af úðaranum.
• Opnaðu lyfhólfið og tæmdu það af
lyfjaleifum.
• Opnaðu úðahólfið.
• Fjarlægðu úðagjafann (3).
Til þess þarf að þrýsta hliðarhökunum
á úðagjafanum varlega saman.
ATHUGIÐ:
Snertu aldrei himnuna (ávala
málmflötinn í miðju úðagjafans) því að
hún skemmist mjög auðveldlega.
• Taktu innöndunarlokann af úðahólfinu.
®
eFlow
rapid - 2021-04
3
Hreinlæti og þrif búnaðarins
í heimahúsi

Hreinsun

Hreinsaðu úðarann (ásamt úðagjafanum)
strax eftir hverja innúðun.
ATHUGIÐ:
Með því að skola alla hluta úðarans og
úðagjafann upp úr heitu kranavatni strax
eftir notkun kemurðu t.d. í veg fyrir að
lyfjaleifar festist. Þannig vinnurðu á móti
þeim möguleika að úðunartíminn lengist
vegna stíflaðra opa á himnunni
í úðagjafanum.
ATHUGIÐ:
Hreinsaðu úðagjafann með easycare
hreinsibúnaðinum eftir því sem þörf er
á (í mesta lagi tvisvar í viku). Þá eru opin
í himnu úðagjafans hreinsuð með
bakskolun á þann hátt að vökva er skolað
í gagnstæða átt við það sem gerist við
úðun.
Farðu eftir notkunarleiðbeiningunum með
easycare.
• Skolaðu úðagjafann í 5 sekúndur hvora
hlið undir heitu kranavatni (vatnið skal
vera af sömu gæðum og drykkjarvatn,
hitastigið 37°C).
• Skolaðu alla hluta úðarans í 5 sekúndur
hvern.
• Láttu alla hluta úðarans og úðagjafann
liggja í heitu kranavatni með nokkrum
dropum af uppþvottalegi í 5 mínútur.
Notaðu til þess hreina skál.
is
139

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents