•
Þegar vélinni er lagt, þegar hún er geymd eða skilin eftir án eftirlits skal lækka skurðarhluta vélarinnar
eða beita flutningsfestingum.
•
Við slátt skal klæðast sterkbyggðum skóm og síðbuxum. Ekki skal stjórna tækinu berfætt/ur eða í
opnum sandölum.
•
Skoðið sláttuvélina og leitið að skemmdum og gerið við áður en sett er í gang á ný og vélin notuð.
•
Ef vélin fer að titra óeðlilega skal skoða málið án tafar.
3.1.5
FLUTNINGUR
•
Tryggið að skurðhlutar vélarinnar séu tryggilega fastir í flutningsstöðu. Ekki skal flytja vélina með
skurðarbúnað á snúningi.
•
Takið tillit til ástand vegar og yfirborðs við akstur vélarinnar, halla og ójafna.
•
Skyndileg hæging eða bremsun getur valdið því að afturhjólin lyftist.
•
Munið að stöðugleiki afturhluta þverr eftir því sem eldsneytið minnkar.
3.1.6
STIGIÐ ÚR ÖKUMANNSSÆTI
•
Leggið vélinni á jafnsléttu.
•
Áður en stigið er úr vélinni skal stöðva hana og tryggja að allir hreyfanlegir hlutar séu kyrrir. Notið
bremsuna og setjið í hlutlausan. Fjarlægið ræsilykilinn.
3.1.7
BREKKUR
SÝNIÐ AUKNA AÐGÆTNI ÞEGAR UNNIÐ ER Í BREKKUM
•
Ójöfnur og gljúpur jarðvegur hefur áhrif á halla brekkunnar. Forðist aðstæður þar sem vélin getur runnið
til.
•
Akið vélinni hægt í brekkum og í kröppum beygjum.
•
Skyndileg hæging eða bremsun getur valdið því að afturhjólin lyftist. Munið að ekki er til neitt sem heitir
„örugg" brekka.
•
Fara skal sérstaklega varlega við akstur á grasbrekkum.
MIKILVÆGT: Þegar unnið er í hvaða brekku sem er skal stilla þyngdartilfærslu og stillið þannig á viðeigandi
hraða.
3.1.8
STÍFLAÐIR SKURÐAREININGAR
•
Stöðvið vélina og tryggið að allir hreyfanlegir hlutar séu kyrrir.
•
Notið bremsuna og setjið í hlutlausan.
•
Fjarlægið stífluna varlega. Haldið öllum hlutum líkamans frá skurðarbrún. Verið meðvituð um stöðuorku
í drifinu sem getur valdið snúningi þegar stíflan er losuð.
•
Haldið öðru fólki frá skurðarhlutum þar sem snúningur eins sívalnings getur valdið snúningi á öðrum.
3 ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
is-9