IKEA FIXA Instructions Manual page 24

Hammer drill li-ion 14.4v
Hide thumbs Also See for FIXA:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
verkfæri sem ganga fyrir rafhlöðu.
Geymið þessar leiðbeiningar.
Vinnusvæði
a. Hafið vinnusvæðið snyrtilegt og vel
upplýst. Óreiða og slæm lýsing á
vinnusvæði býður hættunni heim.
b. Notið ekki verkfæri á stöðum þar
sem getur skapast sprengihætta, til
að mynda nálægt eldfimum vökva,
gasi eða ryki. Verkfæri geta gefið frá sér
neista sem getur kveikt í ryki og gufum.
c. Haldið börnum og nærstöddum
fjarri vinnusvæði á meðan verkfærið
er í notkun. Ónæði getur orðið til þess að
þú missir einbeitinguna.
Rafmagnsöryggi
a. Nota verður viðeigandi innstungu
fyrir kló verkfærisins. Reynið aldrei
að breyta klónni á nokkurn hátt. Notið
ekki millistykki með jarðtengdum
verkfærum. Notkun upprunalegra klóa og
innstungna dregur úr hættu á raflosti.
b. Forðist að snerta jarðtengda fleti,
eins og leiðslur, ofna, eldavélar eða
ísskápa. Það getur aukið hættu á raflosti
ef notandinn er tengdur jörð.
c. Notið ekki verkfæri í regni eða
bleytu. Ef vatn kemst inn í verkfærið er
hætta á raflosti.
d. Farið vel með snúruna. Notið
snúruna aldrei til að bera verkfærið,
draga það áfram eða til að kippa úr
sambandi. Haldið snúrunni fjarri hita,
olíu, beittum hlutum og hlutum á
hreyfingu. Skemmd eða flækt snúra
eykur hættu á raflosti.
e. Þegar verkfæri er notað utandyra,
þarf að nota framlengingarsnúru sem
til þess er ætluð. Það dregur úr hættu á
raflosti.
f. Ef ekki er komist hjá því að nota
verkfærið við rök skilyrði ætti alltaf
að nota útsláttaröryggi. Það dregur úr
hættu á raflosti.
Öryggi þitt
a. Vertu vakandi, gættu að því sem þú
gerir og notaðu almenna skynsemi við
notkun verkfæra. Notaðu ekki
verkfæri þegar þú ert þreytt/ur eða
undir áhrifum eiturlyfja, áfengis eða
lyfja. Augnabliks einbeitingarskortur
getur valdið alvarlegu slysi.
b. Notið öryggisbúnað. Notið alltaf
öryggisgleraugu. Rétt notaður
öryggisbúnaður eins og rykgríma,
öryggisskór, öryggishjálmur og heyrnarhlíf
dregur úr slysahættu.
c. Gætið þess að ekki kvikni óvart á
verkfærinu. Gætið þess að slökkt sé á
verkfærinu áður en því er stungið í
samband. Ef haldið er á verkfæri með
fingurinn á gikknum eða stungið í
samband á meðan kveikt er á því, eykst
slysahætta.
d. Fjarlægið smærri verkfæri sem
hanga mögulega á verkfærinu, til að
mynda skrúflykla og slíkt, áður en
kveikt er á því.
e. Teygðu þig ekki of langt. Hafðu
alltaf góða fótfestu. Þá hefurðu betri
stjórn á verkfærinu ef eitthvað óvænt
gerist.
f. Vertu í viðeigandi klæðnaði. Vertu
ekki í of víðum fatnaði eða með
hangandi skartgripi. Haltu hári, fötum
23

Hide quick links:

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents