Microlife BP B1 Classic Manual page 61

Hide thumbs Also See for BP B1 Classic:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
2. Gátlisti fyrir áreiðanlega mælingu
Forðastu að hreyfa þig, borða eða reykja rétt áður en mælt er.
Sestu á stól með baki og slakaðu á í 5 mínútur. Hafðu fæturnar
á gólfinu, ekki krossleggja fætur.
Mældu alltaf sama handlegg (að jafnaði þann vinstri). Mælt er
með því að læknar mæli báða handleggi við fyrstu skoðun
sjúklings svo unnt sé að ákveða hvaða handlegg skuli mæla í
framtíðinni. Mæla skal þann handlegg sem hefur hærri
blóðþrýsting.
Farðu úr flíkum sem þrengja að upphandleggnum. Til að forðast
að þrýsta á æðarnar skal ekki bretta upp ermar – þær trufla ekki
handleggsborðann ef þær eru sléttar.
Gættu þess að nota alltaf handleggsborða í réttri stærð (sjá
merkingu á handleggsborða).
 Láttu handleggsborðann falla þétt að, þó ekki of þétt.
 Gættu þess að staðsetja handleggsborðann um 1-2 cm fyrir
ofan olnboga.
 Slagæðarmerkið á handleggsborðanum verður að liggja
yfir slagæðinni en hún liggur niður innanverðan handlegginn.
 Styddu við handlegginn svo það slakni vel á honum.
 Gættu þess að handleggsborðinn sé í sömu hæð og hjartað.
3. Blóðþrýstingmæling tekin
1. Ýttu á ON/OFF hnappinn 1 til að hefja mælinguna.
2. Handleggsborðinn blæs nú sjálfkrafa upp. Slakaðu á, þú skalt
hvorki hreyfa þig né spenna handleggsvöðvana fyrr en
niðurstöður mælingarinnar hafa birst. Andaðu eðlilega og
talaðu ekki.
3. Handleggsborða athugun AQ á skjánum gefur til kynna að
handleggsborðinn sé á réttum stað. Ef merkið AQ-A birtist er
handleggsborðinn sæmilega staðsettur en það er samt í lagi að
mæla.
4. Þegar réttum þrýstingi er náð hættir tækið að pumpa lofti og
þrýstingur minnkar smám saman. Ef réttur þrýstingur næst ekki
pumpar tækið sjálfkrafa aðeins meira lofti inn í handleggs-
borðann.
5. Hjartatáknið AP blikkar á skjánum á meðan mælt er.
6. Niðurstaðan, sem sýnir efri mörk AT, neðri mörk AK blóðþrýst-
ings og hjartslátt AL, birtist á skjánum. Athugaðu einnig
skýringar á öðrum táknum í þessum leiðbeiningum.
7. Fjarlægðu handleggsborðann þegar mælingu er lokið.
BP B1 Classic
8. Slökktu á tækinu. (Tækið slekkur sjálfkrafa á sér eftir um það bil
1 mínútu.)
Þú getur stöðvað mælinguna hvenær sem er með því að ýta
á ON/OFF hnappinn (til dæmis ef þér líður illa eða finnur
fyrir óþægilegum þrýstingi).
Handvirk dæling
Þegar efri mörk eru há (hærri en 135 mmHg), gæti það verið
kostur að stilla þrýstinginn sjálf/ur. Ýttu á ON/OFF hnappinn eftir
að mælirinn er búin að pumpa upp í u.þ.b. 30 mmHg (sýnt á
skjánum). Haltu hnappnum inni þangað til þrýstingurinn er u.þ.b.
40 mmHg fyrir ofan það sem er reiknað með að efri mörkin séu,
slepptu svo hnappnum.
Hvernig á að sleppa því að vista mælingu
Um leið og mælingin birtist á skjánum ýttu og haltu inni ON/OFF
hnappnum 1 þangað til «M» AO blikkar. Staðfestu að þú ætlir að
eyða með því að ýta á time hnappinn 4.
«CL» er sýnt þegar búið er að eyða mælingunni úr minninu.
Hvernig á ég að meta blóðþrýstinginn?
Þríhyrningurinn á brún vinstra megin á skjánum AN bendir á það bil
sem gildi blóðþrýstingsins mælist. Gildið er annaðhvort innan við
ákjósanlegt (hvítt) hækkað (grátt) eða hátt (svart) gildi. Flokkunin
samsvarar gildum sem eru skilgreindar samkvæmd alþjóðalegum
leiðbeiningum (ESH, ESC, JSH). Gögn í mmHg.
Efri
Flokkun
mörk
1. Of hár
≥135
blóðþrýstingur
2. Aðeins hækkaður
130 - 134 80 - 84
blóðþrýstingur
3. eðlilegt
<130
blóðþrýstingur
Hærra tölugildið ræður mati á blóðþrýstingi. Dæmi: Gildi á bilinu
140/80 mmHg eða 130/90 mmHg gefur til kynna of háan
blóðþrýsting.
Tákn óreglulegs hjartsláttar (IHB) birtist
Þetta tákn AS gefur til kynna að óreglulegur hjartsláttur hafi fundist.
Í þessu tilfelli getur mældur blóðþrýstingur vikið frá raunverulegum
blóðþrýstingsgildum þínum. Mælt er með að endurtaka mælinguna.
Neðri
mörk
Ráðlegging
≥85
Leitaðu læknisaðs-
toðar
Mæla sjálf(ur)
<80
Mæla sjálf(ur)
59
IS

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents