Microlife BP A7 Touch BT Manual page 80

Bluetooth blood pressure monitor
Hide thumbs Also See for BP A7 Touch BT:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 3
Greining gáttatifs er aðeins virkt með AFIB/MAM stillingu.
3. Gátlisti fyrir áreiðanlega mælingu
Forðastu að hreyfa þig, borða eða reykja rétt áður en mælt er.
Sestu á stól með baki og slakaðu á í 5 mínútur. Hafðu fæturnar
á gólfinu, ekki krossleggja fætur.
Mældu alltaf sama handlegg (að jafnaði þann vinstri). Mælt er
með því að læknar mæli báða handleggi við fyrstu skoðun
sjúklings svo unnt sé að ákveða hvaða handlegg skuli mæla í
framtíðinni. Mæla skal þann handlegg sem hefur hærri
blóðþrýsting.
Farðu úr flíkum sem þrengja að upphandleggnum. Til að forðast
að þrýsta á æðarnar skal ekki bretta upp ermar – þær trufla ekki
handleggsborðann ef þær eru sléttar.
Gættu þess að nota alltaf handleggsborða í réttri stærð (sjá
merkingu á handleggsborða).
 Láttu handleggsborðann falla þétt að, þó ekki of þétt.
 Gættu þess að staðsetja handleggsborðann um 1-2 cm fyrir
ofan olnboga.
 Slagæðarmerkið á handleggsborðanum (u.þ.b. 3 cm langt
strik) verður að vera yfir slagæðinni en hún liggur niður
innanverðan handlegginn.
 Styddu við handlegginn svo það slakni vel á honum.
 Gættu þess að handleggsborðinn sé í sömu hæð og hjartað.
4. Blóðþrýstingmæling tekin
1. Færðu lásrofann 3 niður í «ólæsta» stöðu.
2. Veldu venjulega (ein mæling) eða AFIB/MAM stillingu
(sjálfkrafa þrjár mælingar): sjáðu upplýsingar í kafla «2.».
3. Ýttu á ræsingar-/stöðvunarhnappinn AN til að hefja mælinguna.
4. Handleggsborðinn blæs nú sjálfkrafa upp. Slakaðu á, þú skalt
hvorki hreyfa þig né spenna handleggsvöðvana fyrr en
niðurstöður mælingarinnar hafa birst. Andaðu eðlilega og
talaðu ekki.
5. Þegar réttum þrýstingi er náð hættir tækið að pumpa lofti og
þrýstingur minnkar smám saman. Ef réttur þrýstingur næst ekki
pumpar tækið sjálfkrafa aðeins meira lofti inn í handleggs-
borðann.
6. Hjartatáknið BR blikkar á skjánum á meðan mælt er.
7. Niðurstaðan, sem sýnir efri mörk AP, neðri mörk AQ blóðþrýst-
ings og hjartslátt AR, birtist á skjánum. Athugaðu einnig
skýringar á öðrum táknum í þessum leiðbeiningum.
78
8. Fjarlægðu handleggsborðann þegar mælingu er lokið.
9. Slökktu á tækinu. (Tækið slekkur sjálfkrafa á sér eftir um það bil
1 mínútu.)
Greining gáttatifs er aðeins virkt með AFIB/MAM stillingu.
Þú getur stöðvað mælinguna hvenær sem er með því að ýta
á ræsingar-/stöðvunarhnappinn (til dæmis ef þér líður illa
eða finnur fyrir óþægilegum þrýstingi).
Þessi mælir er sérstaklega prófaður á meðgöngu og
meðgöngueitrun. Þegar þú greinir óvenju háa mælingu
skaltu mæla aftur eftir smá stund (u.þ.b. 1 klukkutíma). Ef
mælingin er ennþá of há skaltu hafa samband við lækni eða
kvensjúkdómalækni.
Á meðgöngu má hunsa AFIB merkið.
Hvernig á að sleppa því að vista mælingu
Um leið og niðurstaða birtist skaltu halda ræsingar-/stöðvunar
hnappnum AN inni þar til «M» AO blikkar. Staðfestu eyðingu með
því að ýta á M-hnappinn AO.
«CL» er sýnt þegar búið er að eyða mælingunni úr minninu.
Hvernig á ég að meta blóðþrýstinginn?
Umferðarljós á vinstri brún skjásins BP sýna á hvaða bili tiltekið
blóðþrýstingsgildi er. Það fer eftir hæð stikunar hvort gildið er ýmist
ákjósanlegt (grænt), hækkað (gult) eða hátt (rautt). Flokkunin er í
samræmi við flokkun blóðþrýstingsgilda samkvæmt alþjóðlegum
viðmiðum (ESH, ESC, JSH). Gögn í mmHg.
Efri
Flokkun
mörk
1. Of hár
≥135
blóðþrýstingur
2. Aðeins hækkaður
130 - 134 80 - 84
blóðþrýstingur
3. eðlilegt
<130
blóðþrýstingur
Hærra tölugildið ræður mati á blóðþrýstingi. Dæmi: Gildi á bilinu
140/80 mmHg eða 130/90 mmHg gefur til kynna of háan
blóðþrýsting.
5. Gagnaminni
Tækið vistar sjálfkrafa mælingar fyrir tvo notendur og hefur 99
mælinga gagnaminni fyrir hvorn notanda og gestastilling.
Neðri
mörk
Ráðlegging
≥85
Leitaðu læknisaðs-
toðar
Mæla sjálf(ur)
<80
Mæla sjálf(ur)

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents