Microlife BP B3 Comfort PC Manual page 70

Hide thumbs Also See for BP B3 Comfort PC:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 3
Veldur annaðhvort notanda 1 eða 2 með því að ýta á notendahn-
appinn 5.
Skoðun vistaðra mælingarniðurstaðna
Ýttu stutt á M-hnappinn 3 þegar slökkt er á tækinu. Skjárinn sýnir
fyrst «M» BO og «A»,sem stendur fyrir meðaltali mælinga.
Ýttu aftur á M-hnappinn til að sjá fyrri mælingu. Ýttu oft á M-hnap-
pinn til að fletta á milli mælinga.
Blóðþrýstingmæling með sæmilega staðsettum handleggs-
borða AR-A fer ekki inn í meðaltal mælinga.
Gættu þess að vista ekki fleiri mælingar en sem nemur
99 mælinga gagnaminni tækisins. Þegar 99 mælingin hefur
verið vistuð er elstu mælingunni sjálfkrafa skipt út fyrir
100. mælinguna. Læknir ætti að meta niðurstöður áður en
hámarks gagnaminni er náð; annars glatast upplýsingar.
Eyðing allra mælingarniðurstaðna
Fullvissaðu þig um að réttur notandi er valinn.
Ef þú ert viss um að þú viljir eyða öllum gildum, haltu inni M-
hnappnum (það þarf að vera slökkt á tækinu áður) þangað til «CL
ALL» birtist og slepptu svo hnappinum. Til að endanlega eyða öllu
minni, ýttu á tíma hnappinn á meðan «CL ALL» blikkar. Það er
ekki hægt að eyða út stökum mælingum.
Hætta við eyðingu: ýttu á ON/OFF hnappinn 1 á meðan
«CL ALL» blikkar.
5. Rafhlöðumælir og skipt um rafhlöðu
Rafhlöður næstum tómar
Þegar um það bil ¾ af orku rafhlöðunnar hafa verið nýttir, blikkar
rafhlöðutáknið AQ um leið og kveikt er á tækinu (myndin sýnir
rafhlöðu fyllta að hluta til). Tækið heldur áfram að mæla rétt, en
engu að síður er ráðlegt að verða sér úti um nýjar rafhlöður.
Rafhlöður tómar – skipt um
Þegar rafhlöðurnar hafa tæmst blikkar rafhlöðutáknið AQ um leið
og kveikt er á tækinu (myndin sýnir tóma rafhlöðu). Þá er ekki hægt
að gera frekari mælingar og skipta verður um rafhlöður.
1. Opnaðu rafhlöðuhólfið 9 aftan á tækinu.
2. Skiptu um rafhlöður – og gættu þess að þær snúi rétt eins og
táknin í rafhlöðuhólfinu sýna.
3. Stilling dagsetningar og tíma fylgir sama ferli og lýst er í «kafla 1.»
Minnið geymir áfram allar mælingar en endurstilla þarf
dagsetningu og tíma – þess vegna blikkar ártalið sjálfkrafa
þegar skipt hefur verið um rafhlöður.
68
Hvernig rafhlöður og hvernig skal meðhöndla þær?
Notaðu 4 nýjar og endingargóðar 1.5 V alkalín rafhlöður í
stærð AA.
Notaðu ekki rafhlöðurnar lengur en fram að síðasta sölu-
degi þeirra.
Taktu rafhlöðurnar úr blóðþrýstingsmælinum ef ekki á að
nota hann tímabundið.
Notkun endurhlaðanlegra rafhlaða
Þú getur einnig notað endurhlaðanlegar rafhlöður í tækið.
Notaðu eingöngu endurhlaðanlegar rafhlöður af tegundinni
«NiMH».
Ef táknið sem gefur til kynna að rafhlöður séu tómar birtist
þarf að fjarlægja rafhlöðurnar og endurhlaða þær. Þær
mega ekki vera áfram í tækinu vegna þess að þá geta þær
skemmst (tæmst algjörlega vegna smávægilegrar
rafmagnsnotkunar tækisins, jafnvel þótt slökkt sé á því).
Fjarlægðu alltaf endurhlaðanlegar rafhlöður ef ekki á að
nota tækið í viku eða lengur.
Ekki er hægt að hlaða rafhlöður í blóðþrýstingsmælinum.
Hlaða ber rafhlöður í sérstöku hleðslutæki og nota þær í
samræmi við leiðbeiningar um hleðslu, viðhald og endingu.
6. Notkun straumbreytis
Nota má tækið með Microlife-straumbreyti (DC 6V, 600 mA).
Notaðu einungis upprunalegan Microlife straumbreyti sem
seldur er í samræmi við þá rafspennu sem notuð er í hverju
landi.
Gættu þess að engar skemmdir séu á straumbreytinum eða
leiðslum hans.
1. Tengdu straumbreytinn við þar til gerða innstungu 7 á
blóðþrýstingsmælinum.
2. Settu straumbreytinn í samband.
Þegar straumbreytirinn er í sambandi notar tækið ekkert rafmagn
úr rafhlöðunum.
7. Aðgerðir með tölvutengingu
Tækið má nota með einkatölvu sem keyrir hugbúnaðinn Microlife
Blood Pressure Analyser+ (BPA+). Hægt er að flytja vistaðar
mælingar úr blóðþrýstingsmælinum yfir í tölvu með því að tengja
snúru á milli.

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents