Matvinnsluvélin Þín Notuð; Fyrir Notkun; Hámarksstaða Vökva; Stýring Hraða 1/Hraða 2 Notuð - KitchenAid 5KFP0925 Manual

Hide thumbs Also See for 5KFP0925:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
MATVINNSLUVÉLIN ÞÍN NOTUÐ
VIÐVÖRUN
Hætta þar sem hnífar snúast
Notaðu alltaf matvælatroðara.
Haltu fingrum frá opum og trekt.
Geymist þar sem börn ná ekki til.
Misbrestur á að gera svo getur
valdið útlimamissi eða skurðum.

Fyrir notkun

Áður en þú notar matvinnsluvélina skaltu
gæta þess að vinnuskálin, hnífurinn og
lokið á vinnuskálinni séu rétt saman sett
á undirstöðu matvinnsluvélarinnar (sjá
„Matvinnsluvélin undirbúin fyrir notkun").
Hámarksstaða vökva
Þessi lína á vinnuskálinni gefur til kynna þá
hámarksstöðu vökva sem hægt er að vinna
með matvinnsluvélinni.
282
Vökvamælir
Stýring Hraða 1/Hraða 2 notuð
1. Til að kveikja á matvinnsluvélinni skaltu
ýta á hnappinn Hraði 1 (lítill hraði, fyrir
lin matvæli) eða hnappinn Hraði 2 (mikill
hraði fyrir hörð matvæli). Matvinnsluvélin
gengur stöðugt og vísiljósið glóir.
2. Til að stöðva matvinnsluvélina skaltu
ýta á hnappinn O (SLÖKKT). Gaumljósið
slokknar og hnífurinn eða skífan stöðvast
á nokkrum sekúndum.
3. Bíddu þar til hnífurinn eða skífan hafa
stöðvast til fulls áður en þú fjarlægir lok
vinnuskálarinnar. Gættu þess að slökkva
á matvinnsluvélinni áður en þú fjarlægir
lok vinnuskálarinnar, eða áður en þú tekur
matvinnsluvélina úr sambandi.
ATH.: Ef matvinnsluvélin fer ekki í gang
skaltu ganga úr skugga um að skálin og lokið
séu almennilega læst á undirstöðunni (sjá
„Matvinnsluvélin undirbúin fyrir notkun").
Púlsstýringin notuð
Púlsstýringin leyfir nákvæma stjórn á tímalengd
og tíðni vinnslu. Hún er frábær fyrir létta
vinnslu. Þú ýtir bara á og heldur hnappinum
PÚLS til að hefja vinnsluna á miklum hraða
og sleppir honum til að hætta.

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents