Umhirða Og Hreinsun - AEG BBS8802B User Manual

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 54
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
• Gangið úr skugga um að loftræstiop séu ekki stífluð.
• Látið heimilistækið ekki vera án eftirlits á meðan það er í gangi.
• Slökkvið á heimilistækinu eftir hverja notkun.
• Farið varlega þegar hurð heimilistækisins er opnuð á meðan það er í gangi. Heitt loft getur
losnað út.
• Notið ekki heimilistækið með blautar hendur eða þegar það er í snertingu við vatn.
• Beitið ekki þrýstingi á opna hurð.
• Notið ekki heimilistækið sem vinnusvæði eða geymslusvæði.
• Opnið hurð heimilistækisins varlega. Notkun efna sem innihalda áfengi getur valdið blöndu
af áfengi og lofti.
• Láttu ekki neista eða opinn eld komast í snertingu við heimilistækið þegar þú opnar hurðina.
• Setjið ekki eldfim efni eða hluti bleytta með eldfimum efnum í, nálægt, eða á heimilistækið.
• Deildu ekki Wi-Fi aðgangsorðinu þínu.
AÐVÖRUN!
Hætta á skemmdum á heimilistækinu.
• Til að koma í veg fyrir skemmdir eða aflitun á gljáhúðinni:
– setjið ekki ofnáhöld eða aðra hluti beint á botn heimilistækisins.
– setjið ekki álpappír beint á botn heimilistækisins.
– setjið ekki vatn beint inn í heitt heimilistækið.
– látið ekki raka rétti og rök matvæli vera inni í heimilistækinu eftir að matreiðslu er lokið.
– farið varlega þegar aukahlutir eru fjarlægðir eða settir upp.
• Aflitun á glerungnum eða ryðfríu stáli hefur engin áhrif á getu eða frammistöðu
heimilistækisins.
• Notið djúpa skúffu fyrir rakar kökur. Ávaxtasafi veldur blettum sem geta verið varanlegir.
• Alltaf skal elda með hurð heimilistækisins lokaða.
• Ef heimilistækið er uppsett bak við innréttingarplötu (t.d. hurð) þá þarf að ganga úr skugga
um að hurðin sé aldrei lokuð þegar tækið er í notkun. Hiti og raki geta safnast upp bak við
lokaða innréttingarplötu og leitt til skemmda á tækinu, ytra byrði tækisins eða gólfi. Því skal
ekki loka innréttingarplötunni fyrr en tækið hefur náð að kólna að fullu eftir notkun.
2.4 Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum, eldsvoða eða skemmum á heimilistækinu.
• Áður en viðhald fer fram skal slökkva á heimilistækinu og aftengja rafmagnsklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
• Gakktu úr skugga um að heimilistækið sé kalt. Hætta er á því að glerplöturnar brotni.
• Skiptið umsvifalaust um glerplötur ef þær verða fyrir skemmdum. Hafðu samband við
viðurkennda þjónustumiðstöð.
• Farðu varlega þegar þú tekur hurðina af heimilistækinu. Hurðin er þung!
• Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að yfirborðsefnin á því endist betur.
• Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notaðu aðeins hlutlaus þvottaefni. Notaðu ekki
rispandi efni, stálull, leysiefni eða málmhluti.
• Ef þú notar ofnasprey skaltu fara eftir öryggisleiðbeiningum á umbúðum þess.
164/316

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Bfs8800tBfs8802mBkb8s8b0Bkh8s8m0

Table of Contents