Hyundai TUCSON Hybrid Owner's Manual page 725

Table of Contents

Advertisement

Appendix
Uppsetning á keðjum
Þegar keðjur eru settar á skal fylgja
leiðbeiningum framleiðanda og herða
keðjurnar eins mikið og unnt er. Þegar
keðjur hafa verið settar á skal aka
hægt. Ef hljóð heyrist sem bendir til að
keðjurnar séu í snertingu við yfirbyggingu
eða undirvagn er rétt að nema staðar og
herða keðjurnar. Ef snerting virðist enn
eiga sér stað skal hægja aksturinn þar til
hljóðið þagnar. Takið keðjurnar niður um
leið og komið er á rudda og snjólausa
vegi.
VIÐVÖRUN
Uppsetning á keðjum
Þegar snjókeðjur eru settar upp skal
leggja ökutækinu á sléttum fleti fjarri
umferð. Kveikið á viðvörunarljósum
ökutækisins og setjið þríhyrningslaga
viðvörunarskilti upp fyrir aftan
ökutækið, ef það er tiltækt. Hafið
ökutækið ævinlega í stöðuhemli og
drepið á vélinni áður en snjókeðjur eru
settar upp.
10-4
VIÐVÖRUN
Keðjur á hjólbarða
Notkun keðja getur skert aksturs-
eiginleika ökutækisins.
Akið ekki hraðar en 30 km/klst. eða
samkvæmt ráðlögðum hámarkshraða
framleiðanda keðjanna, hvort sem
reynist lægra.
Akið gætilega og sneiðið hjá þústum,
holum, kröppum beygjum og öðrum
hættum á veginum, sem gætu valdið
hristingi ökutækisins.
Forðist krappar beygjur eða læsta
hemlun.
VARÚÐ
Séu snjókeðjur af rangri stærð eða
rangt upp settar geta þær valdið
skemmdum á hemlalögn, fjöðrun,
yfirbyggingu og hjólum ökutækisins.
Hvenær sem hljóð bendir til þess að
keðjurnar sláist við ökutækið skal
stöðva akstur og herða keðjurnar.

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Tucson plug-in hybrid

Table of Contents