3M PELTOR WS LiteCom Pro III MT73H7 4D10EU Series Manual page 70

Hide thumbs Also See for PELTOR WS LiteCom Pro III MT73H7 4D10EU Series:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
IS
VIÐVÖRUN
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
leitt til alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt
stillt og mögulegt er að sætta sig við. Erfiðara getur reynst
að heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á meðan
hlustað er á afþreyingu.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt
til heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi
felli heyrnarhlífarnar vandlega að sér. Sé notast við NRR-
eða SNR-staðla til að meta dæmigerða vernd á vinnustað,
mælir 3M með því að hávaðadeyfigildið sé lækkað um
50% í samræmi við gildandi reglugerðir.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum
komið fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu
hans til að deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi
upplýsingar um rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu
þær skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða
forðastu hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum
(t.d. öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að
velja sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd svo þau
hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt
annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól, hreinlætishlífar
o.s.frv.) sem gæti dregið úr einangrunargildi heyrnarhlí-
fapúðanna og verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspangarinnar og
gættu þess að hún sé nógu öflug til að halda heyrnarhlífu-
num tryggilega á sínum stað.
f. Heyrnarhlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið
lélegir með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu
millibili í leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyr-
narhlífapúðarnir notaðir reglulega, ber að skipta um þá og
frauðhringina að minnsta kosti tvisvar á ári til að viðhalda
fullnægjandi vernd, hreinlæti og þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur
farið fram yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt
stillt og mögulegt er að sætta sig við.
FP3806_rev_a.indd 69
VIÐVÖRUN
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti
farið fram yfir dagleg hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á hljóð-
fræðilega eiginleika heyrnarhlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla
minnkar. Gera má ráð fyrir því að rafhlaða í eyrnahlífu-
num endist dæmigert í 12-16 klukkutíma við samfellda
notkun.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Heyrnarhlífar festar á hjálm eru í stórri stærð. Heyrnarhlífar
sem uppfylla kröfur í EN 352-3 eru í millistærð eða
litlar eða stórar. Heyrnarhlífar í millistærð henta meirihlu-
ta notenda. Litlar eða stórar heyrnarhlífar eru hannaðar
fyrir notendur sem ekki geta notað millistærðina.
• Samanbrjótanlegu eyrnahlífarnar eru í stórri stærð.
Eyrnahlífar sem uppfylla kröfur í EN 352-1 eru í mil-
listærð eða litlar eða stórar. Eyrnahlífar í millistærð henta
meirihluta notenda. Litlar eða stórar eyrnahlífar eru
hannaðar fyrir notendur sem ekki geta notað
millistærðina.
• Við notkun á Lithium-ion rafhlöðum er hætta á eldsvoða
eða brunasárum. Ekki opna rafhlöðurnar, merja þær, hita
upp fyrir 55 °C (131 °F) eða kveikja í þeim.
VARÚÐ:
Sé röng rafhlaða notuð, getur verið hætta á sprengingu.
ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum
hávaða, svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og flugvélum,
og skyndilegum hávaða, til dæmis byssuskotum. Erfitt er
að segja fyrir um þá heyrnarvernd sem þörf er á eða í raun
er veitt hvað varðar váhrif af skyndilegum hávaða. Það
hefur áhrif á vernd gegn hávaða frá byssuskotum um hvaða
tegund vopns er að ræða, hve mörgum skotum er hleypt
af, hvaða heyrnarhlífar eru valdar, hvernig þær passa og
eru notaðar, hvernig um þær er annast og fleira. Kynntu þér
betur heyrnarvernd gegn skyndilegum hávaða á vefsíðunni
www.3M.com/hearing.
• Heyrnartólin eru búin styrkstýrðri hljóðdeyfingu. Notandi
ætti að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef
hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita
ráða hjá framleiðanda um viðhald og hvernig skipta á um
rafhlöðu.
• Á heyrnarhlífunum er innstunga fyrir hljóðtæki. Notandi ætti
að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef hljóð
er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita
lausna í handbók framleiðanda.
• Heyrnarhlífarnar takmarka Bluetooth
ingarhlustun við 82 dBA við eyra.
69
hljóðmerki við afþrey-
®
2017-01-25 09:40:12

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Peltor ws litecom pro iii mt73h7 4d10eu-50 series

Table of Contents