3M PELTOR WS ALERT MRX21AWS6 Series Manual page 91

Xpi headset
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
3M™ PELTOR™ WS™ ALERT™ XPI Headset
MRX21AWS6, MRX21AWS6-ACK
MRX21P3EWS6, MRX21P3EWS6-ACK
Inngangur
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja lausn frá 3M™
PELTOR™ Communication! Velkomin að næstu kynslóð
persónuhlífa með samskiptabúnaði.
Ætluð notkun
Þessum 3M™ PELTOR™ heyrnartólum er ætlað að veita
starfsmönnum vernd gegn hættulegum styrk hávaða og
háværum hljóðum, jafnframt því að geta átt fjarskipti með
innbyggðu Bluetooth
. Gert er ráð fyrir því að allir notendur lesi
®
og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar notenda ásamt því
að kunna að nota tækið.
MIKILVÆGT
L estu vinsamlegast og farðu eftir öllum öryggisupplýsingum í
leiðbeiningum þessum áður en þú tekur heyrnartólin í notkun.
Geymdu leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar.
Hafðu samband við tæknideild 3M vegna allra frekari
upplýsinga og spurninga (samskiptaupplýsingar er að finna
á öftustu síðu).
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar
rangt eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er
í hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar
eða -taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til þess að
kynna þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með
bómull í eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra
ástæðu til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu
yfirgefa hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa
samband við lækni og/eða verkstjóra þinn.
VIÐVÖRUN
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti
farið fram yfir dagleg hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika heyrnarhlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla
minnkar. Gera má ráð fyrir því að rafhlaða í eyrnatöp-
punum endist dæmigert í 58 klukkutíma við samfellda
notkun.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Heyrnarhlífar festar á hjálm eru í stórri stærð.
Heyrnarhlífar sem uppfylla kröfur í EN 352-1 og EN 352-3
eru í millistærð, lítilli stærð eða stórri stærð. Heyrnarhlífar
í millistærð henta meirihluta notenda. Litlar eða stórar
heyrnarhlífar eru hannaðar fyrir notendur sem ekki geta
notað millistærðina.
VIÐVÖRUN
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt
til alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt
stillt og mögulegt er að sætta sig við. Erfiðara getur reynst
að heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á meðan hlustað
er á afþreyingu.
b. Notaðu ekki búnaðinn í mögulega sprengifimu
umhverfi til að draga úr hættu á því að sprenging verði.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt
til heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi
felli heyrnarhlífarnar vandlega að sér. Sé notast við
NRR- eða SNR-staðla til þess að meta dæmigerða vernd
á vinnustað, mælir 3M með því að hávaðadeyfigildið sé
lækkað um 50% í samræmi við gildandi reglugerðir.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum
komið fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans
til þess að deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi
upplýsingar um rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða
forðastu hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum
(t.d. öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að
velja sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að
þau hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu
allt annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól,
hreinlætishlífar o.s.frv.) sem gæti dregið úr einangrunargildi
heyrnarhlífapúðanna og verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspangarinnar og
gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Heyrnarhlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið
lélegir með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu
millibili í leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu
heyrnarhlífarnar notaðar reglulega, ber að skipta um
eyrnapúða og frauðhringi að minnsta kosti tvisvar á ári til
að viðhalda fullnægjandi vernd, hreinlæti og þægindum.
g. Sé ekki farið eftir ofangreindum tilmælum, skerðir það
mjög verndareiginleika heyrnarhlífanna.
VARÚÐ
Dragðu úr hættum á borð við eldsvoða, sprengingu og
bruna sem leitt gætu til slysa, minniháttar eða í
meðallagi, eða skemmdum á eignum með því að:
a. Nota eingöngu 3M™ PELTOR™ USB-hleðslutæki
FR09 EU og 3M™ PELTOR™ USB-veggmillistykki FR08
með 3M™ PELTOR™ LR6NM hleðslurafhlöðum (eða
sambærilegum AA Ni-MH hleðslurafhlöðum.)
b. Ekki má hlaða rafhlöðuna ef umhverfishitastig er hærra en
+45 °C eða +113 °F.
VARÚÐ:
Sé röng rafhlaða notuð, getur verið hætta á sprengingu.
IS
84

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents