Download Print this page

Barbecook SPRING 3212 User Manual page 142

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 25
skipta um gaskút eða slöngu.
2. Athugaðu tenginguna eða hlutann þar sem þú uppgötvaðir
lekann aftur.
3. Ef lekinn hefur ekki verið lagfærður, verður þú að hafa
samband við Barbecook söluaðila. Þú mátt ekki byrja að
nota tækið fyrr en lekinn hefur verið lagfærður.
Ráðfærðu þig við www.barbecook.com eða lista yfir
Barbecook sölumenn í nágreni við þig.
8.
AÐ UNDIRBÚA TÆKIÐ TIL NOTKUNAR
8.1. Fyrir hverja notkun
Í hvert skipti sem þú notar tækið verður þú að tryggja að:
• Tækið sé sett upp á hentugum stað
Sjá "3.3 Velja hentugan stað".
• Slangan dragist ekki eftir jörðinni og kemst ekki í snertingu
við heita fleti eða fitudropa.
• Að skálin sé hrein. Við mælum með því að þrífa skálina eftir
hverja notkun. Sjá "11.2 Þrif skálarinnar".
• Að brennararnir og þrengslahólkar séu ekki stíflaðir af
skordýrum og köngulóarvefjum. Sjá "11.3 Hreinsun
brennara og þrengslahólka".
• Brennararnir eru rétt uppsettir.
Þrengslahólkarnir verða að vera fyrir ofan opin
á gaslokunum.
Til að vera algerlega viss um að gastengin séu í lagi,
geturðu athugað hvort það sé gasleki í tækinu fyrir
hverja notkun.
Sjá "7. Líta eftir gaslekum ".
8.2. Fyrir fyrstu notkun (eða þegar það hefur ekki verið í
notkun
í langan tíma)
Ef þú ert að nota tækið í fyrsta skipti eða ef það hefur ekki
verið í notkun
í lengri tíma, verður þú að framkvæma viðbótarathuganir:
• Gakktu úr skugga um að þú hafir lesið allar leiðbeiningarnar
í þessari handbók, skilið þær og athugað þær (aðeins fyrir
fyrstu notkun).
• Líttu eftir gaslekum.
Sjá "7. Líta eftir gaslekum ".
Gakktu úr skugga um að gasleki sé ekki til staðar ef
tækið hefur verið sett saman af birgjanum.
• Hreinsaðu brennarana og þrengslahólka (aðeins eftir að
tækið hefur ekki verið í notkun í lengri tíma).
Sjá "11.3 Hreinsun brennara og þrengslahólka".
• Leyfðu tækinu að „brenna inn" áður en matur er settur
á grillið (aðeins fyrir fyrstu notkun). Sjá "8.3 Innbrennsla
tækisins".
8.3. Innbrennsla tækisins
Innbrennsla tækisins fyrir fyrstu notkun hjálpar til við að
fjarlægja framleiðslufitu sem gæti enn verið til staðar.
Haltu áfram á eftirfarandi hátt:
1. Kveiktu á aðalbrennurunum og stilltu stjórnhnappana á
HIGH. Sjá "9.2 Kveikja á aðalbrennurunum".
2. Lokaðu lokinu og leyfðu tækinu að brenna í 15 mínútur. Ekki
setja neinn mat á grillið.
3. Eftir 15 mínútur skaltu opna lokið og láta tækið brenna í 5
mínútur í viðbót (stjórnhnappar eru enn stilltir á HIGH).
4. Eftir þessar 5 mínútur er tækið tilbúið til notkunar og þú
getur sett mat á grillið.
38
9.
KVEKJA Á BRENNURUNUM
Til að kveikja í brennurunum með kveikihnappinum,
verður þú að setja AA rafhlöðu í kveikjuna. Rafhlaðan
fylgir ekki með tækinu. Rafgeymsluhólfið fyrir kveikjuna
er staðsettur á stjórnborði tækisins.
9.1. Öryggisleiðbeiningar
• Áður en kveikt er á tækinu skal framkvæma allar athuganir
eins og
tilgreint er í "8. Að undirbúa tækið til
notkunar".
• Gakktu úr skugga um að lokið sé opið þegar þú kveikir á
brennara.
• Þú skalt aldrei beygja þig beint yfir brennara þegar kveikt er
á
honum.
9.2. Kveikja á aðalbrennurum
9.2.1 Notkun kveikihnapps
1. Opnaðu lokið og stilltu stjórnhnappana fyrir aðalbrennarana
B
á OFF.
2. Ef ekki hefur verið kveikt á öðrum brennara enn sem komið
er, skaltu opna gasveituna og bíða í tíu sekúndur eftir að
gasið jafnist.
3. Ýttu á stjórnhnappinn fyrir brennara, stilltu hann á HIGH og
láttu hann vera á sínum stað. Innbyggði kveikjarinn mun
skapa neista, sem mun kveikja í brennaranum.
Byrjaðu á því að kveikja fyrst á einum aðalbrennara.
Kveikið aldrei á öllum aðalbrennurum á sama tíma.
4. Haltu áfram að ýta á kveikjuna og stilltu stjórnhnappinn fyrir
brennarann með rafskautinu á HIGH.
Reyndu aldrei að kveikja fyrst í öðrum brennara en
brennaranum með rafskautinu, því það verður til þess að
gas safnast upp í grillinu.
4. Ef ekki kviknar á brennaranum eftir þrjár tilraunir, skaltu stilla
stjórnhnappinn fyrir brennarann á OFF, loka gasveitunni og
bíða í 5 mínútur til að leyfa uppsöfnuðu gasi að gufa upp.
5. Reyndu að kveikja aftur á brennaranum. Ef það kviknar ekki
ennþá, skaltu reyna að kveikja í brennaranum með eldspýtu
(sjá 9.2.2. „Nota eldspýtu") eða skoðaðu kafla „14. Leiðrétta
vandamál" til þess að greina orsök vandans.
7. Ef kveikt hefur verið á brennaranum með rafskautinu,
geturðu kveikt á öðrum brennurunum með því að stilla
viðeigandi stjórnhnappa á HIGH (í því tilfelli þarftu ekki að
ýta á kveikihnappinn).
www.barbecook.com

Advertisement

Chapters

loading

This manual is also suitable for:

Bc-gas-2003