Velkomin(n)
Til hamingju með að hafa fengið þér Cochlear™ Baha® Connect-kerfi. Í þessari handbók
er að finna ábendingar og ráð um notkun og umhirðu Cochlear Baha Connect-kerfisins.
Þetta er viðbót við A-hluta handbókar fyrir hljóðörgjörva og kemur ekki í stað hennar.
Inngangur
Hér er m.a. að finna leiðbeiningar um:
• það hvernig þú tengir hljóðörgjörvann við
millistykki
• umsjón, þrif og viðhald
• notkun fylgihluta
• aðrar mikilvægar upplýsingar og úrræðaleit
Athugasemd vegna skýringarmynda:
Skýringarmyndir á framhliðinni vísa til upplýsingahluta
í þessari handbók sem gilda almennt um alla Baha-
hljóðörgjörva. Taktu eftir viðeigandi skýringarmyndum
við lesturinn. Myndir af hljóðörgjörvum eru
aðeins til kynningar og ekki í réttum hlutföllum.
Hljóðörgjörvinn í þínu setti gæti litið öðruvísi út.
Hljóðörgjörvinn tengdur
Sjá mynd
1
Notaðu hallaaðferðina til að tengja og aftengja
hljóðörgjörvann við millistykkið með þægilegum
og öruggum hætti.
Fjarlægðu hár úr millistykkinu.
1
Haltu hljóðörgjörvanum þannig að hnapparnir
2
snúi upp á við, hallaðu honum og láttu hann
smella varlega á sinn stað.
Til að losa hljóðörgjörvann skaltu setja einn
3
fingur undir hann og halla honum varlega þar
til hann losnar.
Til að komast hjá ískri skaltu vera viss um að
4
hljóðörgjörvinn sé ekki í snertingu við aðra
hluti, t.d. gleraugu eða húfu.
Meðferð hljóðörgjörvans
Sjá mynd
2
Þegar þú hefur vanist notkun hljóðörgjörvans
geturðu skipt um kerfi og breytt hljóðstyrknum
þegar hljóðörgjörvinn er tengdur við millistykkið.
Passaðu að styðja við hljóðörgjörvann að neðan
með þumli þegar þú ýtir á hnappana með vísifingri.
Íslenska
23
Need help?
Do you have a question about the Baha Connect System and is the answer not in the manual?