IKEA BATSKAR Manual page 16

Hide thumbs Also See for BATSKAR:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
Notaðu grillið aldrei á lokuðum eða þröngum
svæðum eða á íbúðarhæfum svæðum eins og
húsum, tjöldum, hjólhýsum, húsbílum, bátum.
Hætta á kolsýringseitrun.
YFIRLIT
Tölurnar vísa til númeranna á teikningu af grillinu á
myndasíðunni.
1. Handfang
2. Lok
3. Grillgrind
4. Bakki fyrir kol
5. Bakki fyrir ösku
NOTENDALEIÐBEININGAR
Gætið þess að lesa og taka til greina
varúðarskilaboðin í þessari handbók áður en lengra
er haldið.
Notið aldrei hrjúf áhöld á grillgrindina (3) svo hún
skemmist ekki.
Undirbúningur fyrir eldamennsku - Til að hindra að
maturinn festist við grillið ætti alltaf að bera olíu á
grindina með bursta/pensli með löngu handfangi
áður en grillað er.
Athugið: Þegar grillið er notað í fyrsta skipti má
búast við því að málningin utan á grillinu breyti
aðeins um lit vegna hitans. Það er eðlilegt og við því
má búast.
Kveikt upp í grillinu
Opnaðu lokið (2).
Leggðu jafnt lag af kolum, u.þ.b. 4-5 cm, á
kolabakkann (4).
Bættu varlega við kveikilegi/-geli.
Kveiktu upp í kolunum með löngum kveikjara eða
langri eldspýtu.
Þegar logarnir deyja út ætti að gæta að hvort glóð
lifi örugglega í kolunum.
Mælt er með að láta kolin standa glóandi í 30-40
mínútur áður en grillað er.
Ekki byrja að grilla fyrr en kolin eru hulin grárri
ösku.
Að notkun lokinni
Notið tusku, heitt vatn og uppþvottalög til að þrífa
grillið. Notið ekki hrjúf hreinsiefni.
Það veldur skemmdum ef notuð eru hrjúf
hreinsiefni eða beitt áhöld á grillið.
Mataröryggi
Vinsamlega lesið og fylgið eftirfarandi ráðum við
eldamennsku á grillinu þínu:
16
Þvoið alltaf hendur bæði fyrir og eftir
meðhöndlun á hráu kjöti og eins áður en matast
er.
Haldið hráu kjöti alltaf aðskildu frá elduðu kjöti
og öðrum mat.
Gætið þess að grillið og áhöldin séu hrein áður
en eldamennska er hafin.
Notið ekki sömu áhöld fyrir hrá og elduð
matvæli.
Gætið þess að elda kjöt í gegn áður en það er
borðað.
Til að draga úr hættu á of lítið elduðu kjöti ætti
að skera í það og athuga hvort það sé tilbúið.
Mælt er með foreldun á stærri kjötstykkjum
áður en þau eru sett á grillið.
Eftir notkun á grillinu ætti alltaf að þrífa bæði
grillgrindina og áhöldin.
Umhirða, viðhald og geymsla
Þrífðu grillið reglulega milli þess sem það er
notað og sérstaklega eftir að það hefur staðið
óhreyft lengi.
Gættu þess að grillið og allir hlutar þess séu
orðnir kaldir áður en grillið er þrifið.
Aldrei hella vatni yfir grillið á meðan það er enn
heitt.
Snertu aldrei heitt grill með berum höndum.
Breiddu alltaf yfir grillið þegar það er ekki í
notkun. Geymdu grillið í skýli eða skúr til að
vernda það gegn veðrun.
Sólarljós, vatn og saltvatn getur allt valdið
skemmdum á grillinu. (Í sumum tilfellum er
yfirbreiðsla ekki nóg).
Til að lengja líftíma grillsins og halda því við,
mælum við sterklega með að breitt sé yfir það
ef það stendur úti í lengri tíma, sérstaklega yfir
vetrartímann.
Áður en grillið er sett í geymslu til lengri tíma,
skaltu ganga úr skugga um að aska og kol séu
fjarlægð úr grillinu.

Hide quick links:

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents