3M DBI SALA KM419 User Instruction Manual page 100

Anchore strap
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
2.7
SAMHÆFI HLUTA: 3M búnaður er aðeins hannaður til notkunar með 3M-samþykktum hlutum og undirkerfum.
Skiptingar eða endurnýjanir sem fara fram með hlutum eða undirkerfum sem eru ekki samþykkt geta komið í veg
fyrir samhæfi búnaðar og geta haft áhrif á öryggi og áreiðanleika heildarkerfisins.
2.8
SAMHÆFI TENGIS: Tengi eru talin samhæf við tengihluta þegar þau hafa verið hönnuð til að vinna saman þannig
að stærðir þeirra og lögun valda því ekki að hliðarbúnaður þeirra opnast fyrir slysni, óháð því hvernig þau eru stillt.
Hafðu samband við 3M ef þú ert með einhverjar spurningar um samhæfi.
Tengi verða að uppfylla skilyrði EN 362. Tengi verða að vera samhæf festingunni eða öðrum kerfishlutum. Ekki
nota búnað sem er ekki samhæfur. Tengi sem eru ósamhæf geta losnað fyrir slysni (sjá mynd 5). Tengi verða að
vera samhæf að stærð, lögun og styrkleika. Ef tengihluti sem smellukrókur eða karabína er fest við er of lítill eða
óreglulegur að lögun gæti ástand komið upp þar sem tengihlutinn beitir afli á hlið smellukróks eða karabínu (A). Þetta
afl getur valdið því að hliðið opnast (B) og að smellukrókurinn eða karabínan losnar frá tengipunktinum (C).
2.9
TENGING FRAMKVÆMD: Aðeins skal nota sjálflæsandi smellukróka og karabínur með þessum búnaði. Tryggðu að
öll tengi séu samhæf að stærð, lögun og styrkleika. Ekki nota búnað sem er ekki samhæfur. Tryggðu að öll tengi séu
lokuð að fullu og læst.
Tengi 3M (smellukrókar og karabínur) eru aðeins ætluð til notkunar eins og tilgreint er í notkunarleiðbeiningum
sérhverrar vöru. Á mynd 6 má sjá dæmi um ranga tengingu. Ekki tengja smellukróka og karabínur:
A.
Við D-hring sem annað tengi er fest við.
B.
Á þann hátt sem mundi orsaka álag á hliðið. Stóra smellukróka ætti ekki að tengja við D-hringi af hefðbundinni
stærð eða álíka hluti sem mun orsaka álag á lhiðið ef krókurinn eða D-hringurinn snýst, nema smellukrókurinn sé
búinn 3 600 lbf (16 kN) hliði. Athugaðu merkingu smellukróksins til að staðfesta að það hann sé viðeigandi fyrir
notkun þína.
C.
Við falska tengingu, þegar hlutar sem standa úr smellukrók eða karabínur festast í festingunni, og án sýnilegrar
staðfestingar og virðast vera að fullu fastir við festipunktinn.
D.
Við hvorn annan.
E.
Beint við belti eða dragreipi eða festingu (nema leiðbeiningar framleiðanda fyrir dragreipi og tengi heimili slíka
tengingu).
F.
Við hlut sem er að lögun eða stærð þannig að smellukrókurinn eða karabínan lokast ekki og læsist, eða getur
rúllað af.
G.
Á þann hátt sem kemur í veg fyrir að tengið samstillist rétt undir álagi.
100

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents