Electrolux 900 SteamPro User Manual page 127

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 42
• Farið varlega þegar hurð heimilistækisins
er opnuð á meðan það er í gangi. Heitt loft
getur losnað út.
• Notið ekki heimilistækið með blautar
hendur eða þegar það er í snertingu við
vatn.
• Beitið ekki þrýstingi á opna hurð.
• Notið ekki heimilistækið sem vinnusvæði
eða geymslusvæði.
• Opnið hurð heimilistækisins varlega.
Notkun efna sem innihalda áfengi getur
valdið blöndu af áfengi og lofti.
• Láttu ekki neista eða opinn eld komast í
snertingu við heimilistækið þegar þú opnar
hurðina.
• Setjið ekki eldfim efni eða hluti bleytta með
eldfimum efnum í, nálægt, eða á
heimilistækið.
• Deildu ekki Wi-Fi aðgangsorðinu þínu.
AÐVÖRUN!
Hætta á skemmdum á heimilistækinu.
• Til að koma í veg fyrir skemmdir eða
aflitun á gljáhúðinni:
– setjið ekki ofnáhöld eða aðra hluti
beint á botn heimilistækisins.
– setjið ekki álpappír beint á botn
heimilistækisins.
– setjið ekki vatn beint inn í heitt
heimilistækið.
– látið ekki raka rétti og rök matvæli vera
inni í heimilistækinu eftir að matreiðslu
er lokið.
– farið varlega þegar aukahlutir eru
fjarlægðir eða settir upp.
• Aflitun á glerungnum eða ryðfríu stáli hefur
engin áhrif á getu eða frammistöðu
heimilistækisins.
• Notið djúpa skúffu fyrir rakar kökur.
Ávaxtasafi veldur blettum sem geta verið
varanlegir.
• Alltaf skal elda með hurð heimilistækisins
lokaða.
• Ef heimilistækið er uppsett bak við
innréttingarplötu (t.d. hurð) þá þarf að
ganga úr skugga um að hurðin sé aldrei
lokuð þegar tækið er í notkun. Hiti og raki
geta safnast upp bak við lokaða
innréttingarplötu og leitt til skemmda á
tækinu, ytra byrði tækisins eða gólfi. Því
skal ekki loka innréttingarplötunni fyrr en
tækið hefur náð að kólna að fullu eftir
notkun.
2.4 Umhirða og hreinsun
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum, eldsvoða eða
skemmum á heimilistækinu.
• Áður en viðhald fer fram skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja rafmagnsklóna
frá rafmagnsinnstungunni.
• Gakktu úr skugga um að heimilistækið sé
kalt. Hætta er á því að glerplöturnar brotni.
• Skiptið umsvifalaust um glerplötur ef þær
verða fyrir skemmdum. Hafðu samband
við viðurkennda þjónustumiðstöð.
• Farðu varlega þegar þú tekur hurðina af
heimilistækinu. Hurðin er þung!
• Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
• Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum
klút. Notaðu aðeins hlutlaus þvottaefni.
Notaðu ekki rispandi efni, stálull, leysiefni
eða málmhluti.
• Ef þú notar ofnasprey skaltu fara eftir
öryggisleiðbeiningum á umbúðum þess.
2.5 Eldað við gufu
AÐVÖRUN!
Hætta á bruna og skemmdum á
heimilistækinu.
• Gufa sem sleppur út getur valdið
brunasárum:
– Farðu varlega þegar þú opnar hurð
heimilistækisins á meðan aðgerðin er
virkjuð. Gufa getur sloppið út.
– Opnaðu hurðina á tækinu varlega
þegar eldað hefur verið með gufu.
2.6 Innri lýsing
AÐVÖRUN!
Hætta á raflosti.
• Varðandi ljósin inn í þessari vöru og ljós
sem varahluti sem seld eru sérstaklega:
Þessi ljós eru ætluð að standast
öfgakenndar aðstæður í heimilistækjum
eins og hitastig, titring, raka eða til að
senda upplýsingar um rekstrarstöðu
tækisins. Þau eru ekki ætluð til að nota í
ÍSLENSKA
127

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Oos987nb

Table of Contents