Uppsetning Ljósnema (Valkvæmur Aukabúnaður); 21 Að Tengja Opnarann; Forritun Og Prófun Opnarans; Stilling Á Endastöðum - Chamberlain ML810EV Assembly And Operating Instructions Manual

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 44
20
Uppsetning ljósnema
Eftir uppsetningu og stillingu hurðaopnarans, má setja upp ljósnema.
Uppsetningarleiðbeiningarnar fylgja með ljósnemunum (incl. ML810EV-
SMART, ML1040EV/-SMART). Leiðbeiningar um uppsetningu fylgja
með ljósnemagardínunni og þeim verður að fylgja vandlega. Hinir
valkvæmu ljósnemar tryggja að hurðin sé opin, eða haldist opin,
ef fólk, sérstaklega ung börn, eru nálægt hurðinni. Ljósnemarnir
gera það að verkum að hurð sem er að lokast opnast, eða að opin hurð
lokast ekki, ef einstaklingur sem er nálægt hurðinni sker geislann frá
skynjaranum.
Sérstaklega er mælt með ljósnemunum fyrir fjölskyldur með ung börn.
21
Að tengja opnarann
Tengdu opnarann samkvæmt staðarreglum og reglugerðum við
rétt uppsetta jarðtengda vegginnstungu.
ATHUGIÐ: Þegar kveikt er á opnaranum, er einnig kveikt á opnaraljósi-
nu í stuttan tíma.
22
Forritun og prófun opnarans
Hurðaopnarinn ætti einungis að vera notaður ef notandinn
getur séð allt svæðið umhverfis hurðina og sé þess fullviss
að engar hindranir séu fyrir og að hurðaopnarinn sé rétt still-
tur. Enginn má fara um hurðina á meðan hún hreyfist. Áður en hurðin er
fyrst opnuð, skaltu ganga úr skugga um að slökkt sé á allri virkni sem
er óþörf. Fjarlægðu öll festingaráhöld og verkfæri frá snúningssvæði
hurðarinnar.
23
Stilling á endastöðum
Endastöður eru þær stöður sem hurðin stöðvast í þegar hún er hreyfð
upp eða niður. Fylgið eftirfarandi skrefum til að stilla endastöðurnar.
Hurðaopnarinn er með tveimur hraðastillingum. Hugbúnaður hurðao-
pnarans velur sjálfkrafa hentugan hraða þegar kerfið er stillt. Lyftihurðir
og heilar hurðir hreyfast sjálfkrafa á litlum hraða, eins og reglur mæla
fyrir um. Hurðir sem hafa styttri brautarlengd en 190 cm hreyfast einnig
hægt.
INNGANGUR:
Bílskúrshurðaopnarinn er hannaður með það í huga að allar rafrænar
stillingar séu sem einfaldastar í notkun, til dæmis OPNA/LOKA-stillingin
á endastöðunum. Stjórntækin greina sjálfkrafa það afl sem nauðsynlegt
er fyrir hurðaopnarann til að fara í endastöður.
ATHUGIÐ:
Ef einhver hindrun stendur í vegi fyrir opnun hurðarinnar stöðvast hún.
Ef einhver hindrun stendur í vegi fyrir lokun hurðarinnar skiptir hún um
stefnu og lyftist á ný.
Til að fá frekari upplýsingar um bílskúrshurðaopnarann má finna stutt
leiðbeiningamyndband á www.chamberlain.eu eða með því að skanna
kóðann á bakhlið handbókarinnar með snjallsíma.
(Valkvæmur aukabúnaður)
STILLINGARHNAPPAR:
Undir lokinu aftan á hurðaopnaranum eru stillingarhnappar
(sjá mynd 23).
1.
Fjarlægið lokið, haldið rétthyrnda stillingarhnappinum inni (á milli
hnappanna UPP og NIÐUR ) þar til UPP-hnappurinn byrjar að
blikka.
2.
Haldið því næst UPP-hnappinum inni þar til hurðin er komin upp í
rétta endastöðu. ATHUGIÐ: Hægt er að stilla eða leiðrétta endas-
töðuna mjög nákvæmlega með UPP- og NIÐUR-hnöppunum.
3.
Þegar hurðin er komin í rétta opna endastöðu skal ýta aftur á rétt-
hyrnda stillingarhnappinn. Ljósið á hurðaopnaranum blikkar í stutta
stund og NIÐUR-hnappurinn byrjar að blikka.
4.
Haldið því næst NIÐUR-hnappinum inni þar til hurðin er komin í
rétta lokaða endastöðu. Gætið þess að ekki sé farið of langt og
að brautin beygist ekki upp á við. ATHUGIÐ: Hægt er að stilla
eða leiðrétta endastöðuna mjög nákvæmlega með UPP- og
NIÐUR-hnöppunum.
5.
Þegar hurðin er komin í rétta lokaða endastöðu skal ýta aftur á
rétthyrnda stillingarhnappinn. Ljósið á hurðaopnaranum blikkar í
stutta stund og UPP-hnappurinn byr jar að blikka á ný.
6.
Ýtið á UPP-hnappinn. Þegar hurðin er komin í innstillta opna en-
dastöðu byrjar NIÐUR-hnappurinn að blikka. ATHUGIÐ: Ef hurðin
fer ekki í opnu endastöðuna hefur stillingin mistekist. Framkvæmið
þá stillinguna upp á nýtt frá 1. skrefi. Ef hurðin fer ekki nógu langt
skal lesa „Algengar spurningar" í 36. hluta.
7.
Ýtið á NIÐUR-hnappinn. Hurðin fer þá í innstilltu lokuðu stöðuna.
Stillingunni er þá lokið.
is 6

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Ml1040evMl810ev-smartMl1040ev-smart

Table of Contents