Chamberlain ML810EV Assembly And Operating Instructions Manual page 132

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 44
4. Bílskúrshurðin opnast og lokast af sjálfsdáðum:
• Eyddu út af öllum senditækjum og endurforritaðu þau svo öll. Sjáðu
"Forritun annarra lófasenditækja".
• Er hnappurinn á fjarstýringunni fastur í „ON" (Kveikt) stöðu?
• Notaðu aðeins upprunalegar fjarstýringar! Notkun á vörum frá þriðja
aðila leiðir til truflana.
• Stutt var á hnappinn á fjarstýringunni fyrir slysni (í vasa).
• Kapall veggrofans er skemmdur (fjarlægðu til að hægt sé að prófa).
• Aukabúnaður sem tengdur er við opnarann veldur virkjun drifsins (fjar-
lægðu til að hægt sé að prófa).
5. Hurð lokast ekki að fullu:
• Endurforritaðu teygju opnarans. Leitaðu eftir breytingum á vélrænum
hlutum, t.d. hurðarörmum og tengibúnaði. Eftir hverja nýja stillingu
á hurðarstöðunni „Lokuð", ætti að skoða virkni sjálfvirka sleppibú
naðarins.
6. Hurðin opnast en lokast ekki:
• Það ætti að athuga léttu hindrunina, sé hún uppsett. Ef díóðan við léttu
hindrunina blikkar, ætti að athuga leguna.
• Athugaðu virkni senditækisins eða veggrofans.
7. Það kviknar ekki á opnaraljósinu:
• Opnaðu eða lokaðu hurð. Það er áfram kveikt á ljósinu í 2,5 mínútur.
• Taktu opnara úr sambandi við stofnleiðslu og settu aftur í samband.
Það kviknar á ljósinu í nokkrar sekúndur.
• Ekkert afl.
8. Það slokknar ekki á opnaraljósinu:
• Taktu úr sambandi við rafmagn í stuttan tíma og reyndu aftur.
• 2,5 mínúta er ekki liðin enn.
9. Mótor suðar og gengur í mjög stuttan tíma, en starfar ekki:
• Fjaðrir bílskúrshurðarinnar eru gallaðar. Lokaðu hurðinni og taktu þær
úr sambandi við opnarann með því að toga í handfangið á sleðanum
(handvirk losun). Opnaðu og lokaðu hurð handvirkt. Sé hurðin rétt jaf-
nvægisstillt, halda hurðafjaðrirnar einar og sér henni á hvorum stað fyrir
sig. Ef það gerist ekki, skaltu hafa samband við þjónustumiðstöð þína.
• Geri þetta vandamál vart við sig við fyrstu notkun, getur verið að hurðin
sé læst. Afvirkjaðu hurðarlæsingu.
• Aftengdu opnarann frá hurðinni og reyndu án hurðarinnar. Sé hurðin í
lagi, skaltu endurforrita vinnsluátak og teygju.
10. Opnarinn virkar aðeins í eina átt:
• Hurðafjaðrir geta verið bilaðar eða þá að hurðin er stíf í aðra áttina.
• Sé hurðin í lagi, skaltu endurforrita vinnsluafl og teygju opnarans.
11. Tannreimin skröltir á brautinni:
• Stilltu tannreiminspennuna. Orsökin er vanalega mjög strekkt. Fjöðrinni
á klemmubúnaði brautarinnar má ekki vera þrýst saman að fullu.
• Hurðin rennur ójafnt og gerir það að verkum að drifið hristist. Lagaðu
rennsli hurðar.
12. Opnari fer ekki í gang vegna rafmagnsleysis:
• Aftengdu opnarann með því að toga í handfangið á sleðanum (handvirk
losun). Nú er hægt að opna og loka hurðinni handvirkt. Sé opnarinn
endurvirkjaður, er sleðinn einnig tengdur á ný.
• Bjóði uppsetningin upp á slíkt, er sleðinn losaður frá drifinu, ef það ke-
mur til rafmagnsbilunar, af ytri neyðarsleppibúnaði utan frá bílskúrnum.
13. Hurð fer til baka eftir að átakið hefur verið forritað:
• Athugaðu hvort brautin bognar. Opnarinn þarf mikið afl til að hreyfa
hurðina. Gerðu við eða settu hurð upp á réttan hátt.
• Hurðin er mjög þung eða er í slæmu ásigkomulagi. Hafðu samband við
sérfræðing.
14. Brautin bognar á opnaranum:
• Hurðin er þung, mjög þung, stíf eða í slæmu ásigkomulagi. Hafðu
samband við sérfræðing.
• Sveiflist brautin til á meðan hurðin hreyfist, er það merki um að
ójafnvægi sé á virkni hurðar sem hefur í för með sér síbreytilegar
rafmagnsþarfir. Hafðu samband við sérfræðing, og það gæti verið að
það þyrfti að smyrja hurðina. Styrking á upphengingu brautarinnar gæti
verið ráðleg.
15. Opnarinn "keyrir" (mótorinn starfar svo það heyrist) en sleðinn
hreyfist ekki:
• Sleðinn hefur losnað frá opnaranum.
• Á nýrri uppsetningu: Við samsetningu mótors og brautar, var hin
forsamsetta tengimúffa á milli mótorskaftsins og brautarinnar ekki sett
upp. Múffan er forsamsett í verksmiðjunni, en hana má fjarlægja. Stan-
dirðu fyrir aftan opnarann geturðu séð hvort tannhjólið snýst á brautinni
eða bara mótorinn.
• Á nýrri uppsetningu: Tannreimin hefur losnað af tannhjólinu á brautinni.
Standirðu fyrir aftan opnarann, geturðu séð tannhjólið.
• Eftir áralanga notkun: Er sleppibúnaðurinn bilaður eða alltaf óvirkur?
• Eftir áralanga notkun: Múffan milli brautar og mótors er biluð eða stýri-
búnaður mótors.
16. Hurðin losnar frá sleðanum og stöðvast:
• Ytri sleppibúnaður sem hefur verið settur upp í rafmagnsleysi skal
athugaður til að athuga hvort það teygist á honum og hann sleppi við
opnun hurðarinnar. Fylgstu með gangverkinu og endurstilltu ef þess
gerist þörf.
• Handfangið á sleppibúnaðinum ætti ekki að festast í öðrum hlutum.
17. Stilling á átaki
• Undir lokinu aftan á hurðaopnaranum má finna stillingarhnapp fyrir
átak. Með átaksstillingunni er stillt inn það átak sem nauðsynlegt er fyrir
opnun og lokun hurðarinnar.
1. Opnið lokið á bakhlið opnarans.
2. Ýtið tvisvar á gula samstillingarhnappinn til að fara í átaksstillinguna.
LED-ljósið og UPP-hnappurinn blikka. Ýtið á UPP-hnappinn. Hurðin
hreyfist í opna endastöðu og lærir þannig að þekkja nauðsynlegt
átak. Þegar hurðin er komin í opnu endastöðuna byrja LED-ljósið og
NIÐURhnappurinn að blikka. Ýtið á NIÐUR-hnappinn. Hurðin hreyfist í
lokaða endastöðu og lærir þannig að þekkja nauðsynlegt átak. Þegar
átakið hefur verið stillt inn í minni hætta LED-ljósið og NIÐURhnappu-
rinn að blikka. Hurðin verður að fara heila lotu af OPNA/LOKA-aðgerð
til að læra að þekkja rétta átakið. Ef hurðaopnarinn getur ekki opnað
eða lokað hurðin ni að fullu skal skoða hurðina til að kanna hvort rétt
hefur verið gengið frá henni með tilliti til jafnvægisstillingar og ganga úr
skugga um að hún sé hvorki beygluð né föst. Stilla verður átakið til að
tryggja að rétt endastaða festist í minni.
is 11

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Ml1040evMl810ev-smartMl1040ev-smart

Table of Contents