Electrolux HOX650MF User Manual page 71

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 24
Reyndu ALDREI að slökkva eld með vatni, heldur skaltu
slökkva á heimilistækinu og hylja logann t.d. með loki eða
eldvarnarteppi.
VIÐVÖRUN: Ekki má veita rafmagni að heimilistækinu
gegnum utanáliggjandi skiptibúnað, eins og tímastilli, eða
tengja það við rafrás sem veita kveikir og slekkur reglulega
á.
VARÚÐ: Eldunarferlið verður að vera undir eftirliti. Stutt
eldunarferli verður stöðugt að vera undir eftirliti.
VIÐVÖRUN: Hætta á eldsvoða: Geymið ekki hluti á
eldunaryfirborðinu.
Málmhluti eins og hnífa, gaffla, skeiðar og lok skal ekki
leggja ofan á helluborðið því þeir geta orðið heitir.
Ekki má nota heimilistækið fyrr en innbyggða virkið hefur
verið uppsett.
Notaðu ekki gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
Eftir notkun skal slökkva á helluborðselementinu með
stýringunni og ekki treysta á pönnunemann.
Ef sprungur eru í keramíkglerfletinum / glerfletinum skal
slökkva á heimilistækinu og taka það úr sambandi við
rafmagn. Ef heimilistækið er tengt beint við stofnæð með
tengidós skal fjarlægja öryggið til að aftengja heimilistækið
frá aflgjafanum. Í báðum tilfellum skal hafa samband við
viðurkennda þjónustumiðstöð.
Ef rafmagnssnúran er skemmd verður framleiðandi,
viðurkennd þjónustumiðstöð eða álíka hæfur aðili að
endurnýja hana til að forðast hættu.
VIÐVÖRUN: Notaðu aðeins helluborðshlífar sem hannaðar
eru af framleiðanda eldunartækisins eða framleiðandi
heimilistækisins bendir á í notkunarleiðbeiningunum sem
hentugar, eða helluborðshlífar sem innfelldar eru
íheimilistækið. Notkun óviðeigandi hlífa getur valdið slysum.
ÍSLENSKA
71

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents