Ráð Fyrir Frábæran Árangur; Hreyfimynstur; Blöndunartími; Notkun Hrærivélar - KitchenAid KSM7591XESM Instructions Manual

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
Ráð fyrir frábæran árangur

Hreyfimynstur

Við notkun hreyfist
hrærarinn í hring
í kyrri skálinni og
snýst jafnframt um
sjálfan sig í hina
áttina. Á myndinni
sést hvernig
hrærarinn fer um
alla skálina.
Gerðirnar 5KSM7580 og 5KSM7591 eru
mældar 500 vött og nota jafnstraumsmótor.
Það er hljóðlátur og sérlega skilvirkur mótor
í samvinnu við gírakerfi með beinu drifi: þetta
gerir kleift að knýja 1,3 hestöflin á mesta afli
(úttaksmótorafl), sem auðveldar hraðan og
framúrskarandi blöndunarárangur, jafnvel
með þungu deigi.
Blöndunartími
KitchenAid
hrærivélin þín vinnur hraðar
TM
og betur en flestar aðrar rafmagnshrærivélar.
Því verður að miða vinnslutíma uppskrifta við
þetta til að koma í veg fyrir ofhræringu.
Til að finna út blöndunartímann verður
að fylgjast með deiginu og blanda aðeins
þangað til deigið hefur náð því útliti sem
það á að hafa samkvæmt uppskriftinni,
t.d. „mjúkt og kremað". Til að velja bestu
blöndunarhraðana skal nota kaflann
„Leiðarvísir um hraðastýringu".
178
W10421400A_13_IC.indd 178
Notkun hrærivélar
VIÐVÖRUN
HÆTTA Á LÍKAMSTJÓNI
Til að forðast líkamstjón og skemmd-
ir á hræraranum skal ekki reyna
að skafa skálina á meðan hrærivélin
er í gangi; slökktu á hrærivélinni.
Ef skafa eða annar hlutur dettur ofan
í skálina skal SLÖKKVA á mótornum
áður en hann er fjarlægður.
Hönnun skálar og hrærara miðast við að ekki
þurfi að skafa skálina oft. Yfirleitt nægir að
skafa einu sinni eða tvisvar við hverja hræru.
Borðhrærivélin getur hitnað við notkun.
Ef álagið er mikið í langan tíma er ekki víst
að þægilegt sé að snerta borðhrærivélina
að ofan. Þetta er eðlilegt.
Ráð um blöndun
Hráefnum bætt við
Alltaf skal bæta í hráefnum eins nálægt hlið
skálarinnar og hægt er en ekki beint inn
í hrærarann á hreyfingu. Hægt er að nota
hveitibrautina til að einfalda þetta. Notaðu þrep
1 þar til hráefnin hafa blandast. Bættu síðan
smá saman við þar til réttum hraða er náð.
Hnetum, rúsínum eða sykruðum
ávöxtum bætt út í
Fylgdu einstökum uppskriftum varðandi
leiðbeiningar um hvernig þessi hráefni eru
látin út í. Almennt séð skal blanda hörðum
efnum saman við á síðustu sekúndum
blöndunar á þrepi 1. Deigið á að vera nógu
þykkt til að hneturnar eða ávextirnir sökkvi
ekki til botns í forminu þegar bakað er.
Klístrugum ávöxtum á að velta upp úr hveiti
til að þeir dreifist betur um deigið.
Fljótandi blöndur
Blöndur sem innihalda mikinn vökva á að
hræra á lægri hraða til að koma í veg fyrir
skvettur. Hraðinn er aukinn eftir að blandan
hefur þykknað.
ATH.: Ef deigið blandast ekki nægilega
vel í botni skálarinnar þá er hrærarinn
ekki nógu neðarlega í skálinni. Sjá hlutann
„Borðhrærivélin sett upp".
11/15/11 2:50 PM

Hide quick links:

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents