Almennar Öryggisleiðbeiningar - Chamberlain ML700 Instructions Manual

Ml70
Hide thumbs Also See for ML700:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 26
Byrjið á að lesa þessar mikilvægu öryggisupplýsingar
1
Almennar öryggisleiðbeiningar
Áður en þú hefst handa við uppsetningu:
Vinsamlegast lestu notkunarleiðbeiningarnar og sérstaklega varúðarráðstafanirnar. Geymdu handbókina svo hægt sé að fletta upp í henni síðar og
til að koma henni áfram til seinni
eiganda.
Eftirfarandi tákn er að finna fyrir framan leiðbeiningarnar til að forða líkamstjóni eða eignatjóni. Lesið þessar leiðbeiningar gaumgæfilega.
VIÐVÖRUN
Líkamstjón eða eignatjón
Mikilvægar öryggisupplýsingar
Sjálfvirka hurðaopnunarkerfið hefur verið prófað og hannað fyrir örugga notkun, en öryggi er aðeins tryggt ef
farið er nákvæmlega eftir öryggisleiðbeiningunum við uppsetningu og notkun.
- Dyrnar skulu vera jafnvægisstilltar. Það verður að gera við hurðir sem ekki hreyfast eða eru fastar. Án jafnvægisstillingar eru bílskúrshurðir,
hurðafjaðrir, strengir, diskar, festingar og brautir undir miklu álagi, sem getur orsakað alvarleg meiðsli. Reynið ekki að losa, hreyfa eða lagfæra
hurðina, heldur hafið samband við þjónustumiðstöð eða hurðasérfræðing.
- Gætið þess að vera ekki með skartgripi, úr eða klæðast víðum fötum við uppsetningu eða viðhald á hurðaopnara.
- Fjarlægið alla strengi og keðjur sem tengjast hurðinni áður en hurðaopnarinn er settur upp, til að flækjast ekki í þeim því það getur orsakað alvar-
legt líkamstjón.
- Við uppsetningu og rafmagnstengingar skulu bygginga- og rafmagnsreglugerðir virtar. Þessi búnaður uppfyllir verndarflokk 2 og krefst ekki
jarðtengingar.
- Viðeigandi styrkingar skulu notaðar til að forðast skemmdir á mjög léttum hurðum (eins og úr trefjagleri, áli eða stáli). Til að gera það skal haft
samband við framleiðanda hurðarinnar.
- Sjálfvirka öryggisbakkkerfið ætti að undirgangast prófun. Bílskúrshurðin VERÐUR að fara til baka við snertingu við 50mm háa hindrun á jörðu,
Sé hurðaopnarinn ekki rétt stilltur getur það leitt af sér alvarlegt líkamstjón þegar bílskúrshurð lokast. Endurtakið prófið mánaðarlega og gerið
allar nauðsynlegar breytingar.
- Ekki má setja þetta kerfi upp á rökum eða blautum svæðum.
- Við notkun ætti hliðið aldrei, undir nokkrum kringumstæðum, að stífla almenningsganga.
- Til áminningar fyrir alla notendur um örugga notkun, ætti að festa upp varúðarmerkingu til verndar börnum, auk upplýsta veggrofans.
Varúðarmerkingarnar sem vara við hættunni á að festast skulu staðsettar á vel sýnilegum stöðum.
- Eftirlit skal haft með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki að búnaðinum.
- Ekki er ætlast til að búnaðurinn sé notaður af einstaklingum (þar á meðal börnum) með skerta líkamsgetu, skynfæragetu eða andlega getu eða
sem hafa ekki til þess reynslu og/eða þekkingu, nema að þeir séu undir eftirliti einstaklinga sem bera ábyrgð á öryggi þeirra eða hafa hlotið
leiðbeiningar um hvernig búnaðurinn skuli notaður.
- Allar hindranir / læsingar eru afvirkjaðar til að forðast skemmdir á hurðinni.
- Ef nauðsyn krefur, SKAL stjórnbúnaður settur upp þannig að hann sjáist frá hurðinni og þar sem börn ná ekki til. Börnum ætti ekki að leyfast að
nota hnappana eða fjarstýringar. Misnotkun á hurðaopnaranum getur leitt til alvarlegra meiðsla.
- Hurðaopnarinn skal AÐEINS notaður ef notandinn getur séð allt svæðið umhverfis hurðina og sé þess fullviss að engar hindranir séu til staðar og
hurðaopnarinn sé rétt stilltur. Enginn má fara um hurðina á meðan hún hreyfist. Börnum skal ekki leyft að leika sér nálægt hurðinni.
- Notið handvirkan sleppibúnað aðeins til að skilja sleðann frá drifinu og – sé það mögulegt – AÐEINS á meðan dyrnar eru lokaðar. Notið rauða
handfangið ekki til að ýta hurðinni upp eða draga hana niður.
- Áður en nokkrar viðgerðir eru framkvæmdar eða hlífar fjarlægðar, skal taka hurðaopnarann úr sambandi við rafmagnsaflgjafa.
- Þessari vöru fylgir straumbreytir með sérstakri snúru. Komi til skemmda VERÐUR að endurnýja hann með upphaflegum straumbreyti og það
verður þar til bær tæknimaður að gera.
- Notkun neyðarsleppibúnaðar getur leitt til stjórnlausra hreyfinga hurðarinnar, ef fjaðrirnar eru lélegar eða brotnar eða ef hurðin er ekki í jafnvægi.
- Festið sleppihandfang neyðarsleppibúnaðarins í a.m.k. 1,80m hæð.
Geymið þessar leiðbeiningar án undantekninga.
VARÚÐ!
VIÐVÖRUN
Hætta vegna rafstraums eða spennu
2

Hide quick links:

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Ml750Ml850

Table of Contents