Chamberlain EVOLUTION LM60EVFA Assembly And Operating Instructions Manual page 264

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
15. Opnarinn "keyrir" (mótorinn starfar svo það heyrist) en sleðinn
hreyfist ekki:
• Sleðinn hefur losnað frá opnaranum.
• Á nýrri uppsetningu: Við samsetningu mótors og brautar, var hin
forsamsetta tengimúffa á milli mótorskaftsins og brautarinnar ekki
sett upp. Múffan er forsamsett í verksmiðjunni, en hana má fjarlægja.
Standirðu fyrir aftan opnarann geturðu séð hvort tannhjólið snýst á
brautinni eða bara mótorinn.
• Á nýrri uppsetningu: Tannreimin hefur losnað af tannhjólinu á brautin-
ni. Standirðu fyrir aftan opnarann, geturðu séð tannhjólið.
• Eftir áralanga notkun: Er sleppibúnaðurinn bilaður eða alltaf óvirkur?
• Eftir áralanga notkun: Múffan milli brautar og mótors er biluð eða
stýribúnaður mótors.
16. Hurðin losnar frá sleðanum og stöðvast:
• Ytri sleppibúnaður sem hefur verið settur upp í rafmagnsleysi skal
athugaður til að athuga hvort það teygist á honum og hann sleppi við
opnun hurðarinnar. Fylgstu með gangverkinu og endurstilltu ef þess
gerist þörf.
• Handfangið á sleppibúnaðinum ætti ekki að festast í öðrum hlutum.
17. Stilling á átaki
• Undir lokinu aftan á hurðaopnaranum má finna stillingarhnapp fyrir
átak. Með átaksstillingunni er stillt inn það átak sem nauðsynlegt er
fyrir opnun og lokun hurðarinnar.
1. Opnið lokið á bakhlið opnarans.
2. Ýtið tvisvar á gula samstillingarhnappinn til að fara í átaksstillin-
guna. LED-ljósið og UPP-hnappurinn blikka. Ýtið á UPP-hnappinn.
Hurðin hreyfist í opna endastöðu og lærir þannig að þekkja nauðsyn-
legt átak. Þegar hurðin er komin í opnu endastöðuna byrja LED-ljósið
og NIÐURhnappurinn að blikka. Ýtið á NIÐUR-hnappinn. Hurðin
hreyfist í lokaða endastöðu og lærir þannig að þekkja nauðsynlegt
átak. Þegar átakið hefur verið stillt inn í minni hætta LED-ljósið og
NIÐURhnappurinn að blikka. Hurðin verður að fara heila lotu af
OPNA/LOKA-aðgerð til að læra að þekkja rétta átakið. Ef hurðaopna-
rinn getur ekki opnað eða lokað hurðin ni að fullu skal skoða hurðina
til að kanna hvort rétt hefur verið gengið frá henni með tilliti til jafnvæ-
gisstillingar og ganga úr skugga um að hún sé hvorki beygluð né föst.
Stilla verður átakið til að tryggja að rétt endastaða festist í minni.
is 13

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents