Toolson PRO KGZ 3400 Translation From The Original Instruction Manual page 107

Slide compound mitre saw
Hide thumbs Also See for PRO KGZ 3400:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 12
á rökum eða blautum stað. Hafðu góða lýsingu á
vinnustað. Ekki nota tækin í nálægð við eldfima vökva
eða gas.
• Varaðu þig á raflosti. Forðastu líkamssnertingu við
jarðtengd yfirborð.
• Haltu öðrum einstaklingum í fjarlægð. Ekki leyfa
öðrum, þá sérstaklega börnum, að taka þátt í vinnunni
með tækinu eða framlengingarsnúrunni og haltu þeim
frá vinnusvæðinu.
• Settu ónotuð tæki í geymslu. Þegar tækin eru ekki í
notkun, ætti að geyma þau á þurrum og læstum stað,
þar sem börn komast ekki til.
• Ekki þvinga tækið. Það mun vinna verk sitt betur og
á öruggari hátt á þeim hraða sem það er ætlað að
vinna á.
• Notaðu rétt tæki. Ekki þvinga lítil tæki til að gera
vinnu sem eru ætluð fyrir stærri tæki. Ekki nota tækin
í eitthvað sem þau eru ekki ætluð til, til dæmis má ekki
nota borðsög til að saga trjáboli eða greinar
• Klæddu þig á réttan hátt. Ekki klæðast lausum fatnaði
eða vera með skartgripi sem gætu fest í hreyfanlegum
hlutum vélarinnar. Mælt er með skóm með rennslisvörn
þegar unnið er utandyra. Vertu með hárnet til að hylja
langt hár.
• Notaðu varnarbúnað. Notaðu hlífðargleraugu. Notaðu
andlits- eða rykgrímu ef ryk myndast við vinnu með
söginni.
• Tengdu rykútsogsbúnað. Ef búnaður fylgir með til að
tengja rykútsogs- og ryksöfnunarbúnað, tryggðu að
búnaðurinn sé rétt tengdur og rétt notaður.
• Farðu vel með kapla. Það má aldrei toga í rafkapal til
að draga hann úr innstungunni. Haltu rafleiðslunni frá
hita, olíu og beittum brúnum.
• Festu verkstykkið. Notaðu klemmur eða skrúfustykki til
að festa niður verkstykkið. Það er öruggara en að nota
hendurnar á þér.
• Ekki færast of mikið í fang. Vertu alltaf með góða
fótfestu og gott jafnvægi.
• Haltu tækjunum við með umhyggju. Hafðu skurðartækin
beitt og hrein fyrir betri og öruggari afköst. Fylgdu
leiðbeiningum varðandi smurningu og útskiptingu
aukabúnaða. Skoðaðu rafmagnskapla reglulega og láttu
skipta þeim út af viðurkenndum þjónustuaðila ef þeir
eru skemmdir. Skoðaðu framlengingarsnúrur reglulega
og skiptu um ef þær eru skemmdar. Hafðu handföng
þurr, hrein og laus við olíu og feiti.
• Aftengdu tæki. Taktu rafmagnið af þegar tækið er ekki
í notkun og það þarf að gera við það eða skipta um
aukabúnað eins og sagarblöð, hluti og skera.
• Fjarlægðu stillingarlykla og skiptilykla. Gerðu það að
venju að skoða hvort að búið sé að fjarlægja lyklana og
stilliskiptilyklana frá tækinu áður en þú kveikir á því.
• Forðastu ósjálfráða ræsingu. Tryggðu að rofinn sé í
„Off" stöðu þegar þú setur rafmagnið á.
• Notaðu framlengingarsnúrur sem ætlaðar eru utandyra.
Þegar tækið er notað utandyra, notaðu aðeins
framlengingarsnúrur sem ætlaður eru til notkunar
utandyra og merktar þannig.
• Vertu ávallt á varðbergi. Horfðu á það sem þú ert að
gera, notaðu almenna skynsemi og ekki nota tækið
þegar þú ert þreyttur.
• Athugaðu með skemmda hluti. Fyrir frekari notkun á
tækinu ætti að skoða það vandlega til að sjá hvort að
það muni vinna rétt og virka sem skyldi. Athugaðu
jöfnun hreyfanlegra hluta, tengingu hreyfanlegra hluta,
bresti hluta, festinga og aðrar aðstæður sem geta haft
áhrif á starfsemi vélarinnar. Ef hlíf eða annar hlutur er
skemmdur, verður að gera við hann eða skipta honum
út af viðurkenndri þjónustumiðstöð nema annað sé
tekið fram í leiðbeiningarhandbókinni. Ekki nota tækið
ef ekki er hægt að kveikja og slökkva á rofanum.
• Viðvörun. Notkun á hverskonar aukabúnaði eða
festibúnaði sem ekki er mælt sérstaklega með
í leiðbeiningarhandbókinni getur aukið hættu á
líkamstjóni.
• Láttu viðurkenndan aðila gera við tækin. Þetta raftæki
er í samræmi við viðeigandi öryggisreglur. Viðgerðir má
aðeins viðurkenndur einstaklingur framkvæma með
því að nota upphaflega varahluti, annað getur valdið
notandanum töluverðri hættu.
VIÐBÓTAR ÖRYGGISREGLUR FYRIR GEIRSKURÐARSÖG
• Ekki nota sagarblaðið þegar það er skemmt eða
afmyndað.
• Ekki nota sögina þegar hlífarnar eru ekki í stöðu.
• Skiptu um borðviðbótina þegar hún er slitin.
• Ekki nota sögina til að saga neitt annað en við eða
svipuð efni.
• Notaðu
aðeins
sagarblöð
framleiðanda og í samræmi við EN847-1.
• Tengdu geirskurðarsögina þína við ryksöfnunarbúnað
þegar þú sagar.
• Veldu sagarblöð í samræmi við það efni sem á að saga.
• Athugaðu hámarks sögunardýpt.
• Þegar þú sagar löng verkstykki, notaðu framlenginguna
til að fá betri stuðning og notaðu klemmurnar eða
annan klemmubúnað.
• Vertu með heyrnarvörn.
VIÐVÖRUN! Hávaði getur verið hættulegur heilsu. Þegar
hávaðastigið fer yfir 85 dB (A), notaðu heyrnarvörn.
m Rétt notkun
CE-prófaðar vélar uppfylla allar gildar vélarviðmiðanir EB
sem og viðeigandi viðmiðanir fyrir hverja vél.
• Aðeins má nota vélina þegar hún er í tæknilega
fullkomnu ástandi og í samræmi við áætlaða notkun og
leiðbeiningarnar sem koma fram í rekstrarhandbókinni,
og aðeins af öryggismeðvituðum einstaklingi sem er
að fullu ljóst um hættuna sem felst í því að stjórna
vélinni. Hverskonar rekstrarlegur brestur, sérstaklega
sá sem hefur áhrif á öryggi vélarinnar, ætti að lagfæra
þegar í stað.
• Hverskonar
önnur
notkun
vélarinnar. Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir þeim
skemmdum sem eru vegna óleyfilegrar notkunar.
Áhættan er algjörlega í höndum stjórnanda.
• Öryggis-, vinnu- og viðhaldsleiðbeiningar framleiðanda
sem og tæknileg gögn sem gefin eru upp í kvörðunum
og stærðum, verður að fylgja.
• Viðeigandi slysavarnarreglugerðir, aðrar reglugerðir
og almennar viðurkenndar öryggistæknireglur verður
sem
ráðlögð
eru
af
ógildar
leyfisheimild
107

Hide quick links:

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents