Notkunarleiðbeiningar; Tenging Við Loftþjöppu; Naglar Settir Í Eða Teknir Úr; Stilling Dýptardrifsins - Kyocera TJEP 5702551001479 Safety And Operation Instructions

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 157
Notkunarleiðbeiningar
Tenging við loftþjöppuna
• Festið tengið á loftslöngunni við lofttappann á
naglabyssunni (H).
Naglar settir í eða teknir úr
Tengið loftþjöppuna áður en nöglunum er hlaðið í
byssuna. Þegar nöglum er hlaðið í naglabyssuna
áður en loftþjappan er tengd er hætta á að naglar
skjótist út fyrir slysni. Beinið stútnum frá öllu
starfsfólki og gætið þess að hafa fingur ekki á
gikknum á meðan naglarnir eru settir í.
• Ýtið lásnum á hylkinu (D) niður, opnið flipann á
hylkinu (C) og opnið hylkið (I).
• Stillanlega botn hylkisins er hægt að stilla á
eftirfarandi hátt:
· lyfta botnplötunni / stinga henni í viðeigandi
stöðu samkvæmt lengd naglans.
· lyfta og snúa botnplötunni / stinga henni í
viðeigandi stöðu samkvæmt lengd naglans.
· fjarlægja innlegg hylkisins eða koma því fyrir.
• Setjið naglana í hylkið (I). Vindið af nógu mörgum
nöglum þar til þeir ná að mötunarhakinu (C). Setjið
fyrsta naglann í skotraufina.
• Lokið hylkinu (I) og læsið aftur lásnum á hylkinu
(D). Gætið þess að lásinn sé kirfilega læstur.
Stilling dýptardrifsins
• Hægt er að fá stillingu fyrir dýptardrif (A)
naglabyssunnar. Prófið dýptarstillinguna á
afgangsstykki áður en vinnan hefst.
• Snúið hnappinum (A) til að stilla dýptina.
• Endurtakið ferlið sem lýst er að ofan til að finna
æskilega stillingu dýptardrifs.
Að stjórna naglabyssunni
• Naglabyssan er búin einni gerð af eftirfarandi
gikkjum (F):
Gikkur sem hleypir af stöku skoti
• Til að gangsetja naglabyssuna skal ýta
öryggisfestingunni upp að stykkinu sem á að negla
í og toga svo í gikkinn.
78
• Til að gangsetja naglabyssuna aftur þarf að sleppa
öryggisfestingunni alveg og sleppa gikknum áður
en ofangreint ferli er endurtekið.
Skot við högg
• Takið í gikkinn, ýtið öryggisfestingunni í
vinnustykkið og skoti verður hleypt af.
• Sleppa verður öryggisfestingunni alveg og taka
fingur af gikknum til að virkja naglabyssuna á ný
og endurtaka áðurnefnt ferli.
Stillanlegur gikkur
• Hægt er að búa naglabyssuna stillanlegum gikk.
Þannig er hægt að skipta á milli stakra skota og
skota með höggi. Slíkt er hægt að gera með því að
gera eitt af eftirfarandi:
· ýta rofahnappinum fram eða til baka.
· ýta rofahnappinum út á við og snúa honum.
· ýta pinnanum á svarta rofahnappinum inn og
færa skiptistöngina til.
Fastir naglar losaðir
• Þegar nagli festist skal aftengja þrýstiloftið áður en
nokkuð annað er aðhafst. Beinið naglabyssunni frá
ykkur sjálfum og öllum öðrum á vinnusvæðinu.
• Ýtið lásnum á hylkinu (D) niður og opnið flipann á
hylkinu (C).
• Stingið úrreki inn í stútinn á naglabyssunni (B) til
að ýta naglanum sem festist inn í skotraufina.
• Fjarlægið fasta naglann með nál, flísatöng
eða svipuðu verkfæri. Notið ekki höndina til að
fjarlægja festinguna.
• Ef ekki tókst að fjarlægja fasta naglann með
ofangreindri aðferð skal hafa samband við
söluaðila TJEP á hverjum stað.
Viðhaldsleiðbeiningar
Almennt viðhald
• Vinnuveitandi og notandi bera sameiginlega
ábyrgð á því að naglabyssan sé í góðu
ásigkomulagi og virki rétt. Enn fremur mega aðeins

Advertisement

Table of Contents

Troubleshooting

loading

This manual is also suitable for:

Tjep 5702551001493Tjep bc 60

Table of Contents