Orsakir Og Hindrun Stjórnandans Ábakslagi - Echo DPPF-310 Operator's Manual

Power pruner
Table of Contents

Advertisement

í stutta stund á meðan greinarsögin er í gangi
getur valdið því að föt eða líkamshlutar flækist í
sagkeðjunni.
Haldið greinarsöginni ávallt með hægri hendi
á afturhandfanginu og vinstri hendi á
framhandfanginu. Áhætta á líkamstjóni eykst ef
greinarsöginni er haldið með öfugri handstöðu og
má aldrei gera slíkt.
Haldið aðeins um einangruð handföng
greinarsagarinnar því sagarkeðjan kann að
komast í snertingu við dulda víra. Ef sagarkeðja
snertir „lifandi" vír geta málmhlutar greinarsagarinnar
„leitt rafmagn" og notandinn fengið raflost.
Notið augnhlífar. Mælt er með frekari
hlífðarbúnaði fyrir eyru, höfuð, hendur, fótleggi
og fætur. Fullnægjandi hlífðarbúnaður dregur úr
líkamstjóni af völdum aðskotahluta á lofti eða
óviljandi snertingar á sagkeðjunni.
Notið ekki greinarsögina í tré, í stiga, á þaktoppi
eða óstöðugri undirstöðu. Ef greinarsögin er
notuð þannig getur það leitt til alvarlegs líkamstjóns.
Tryggið ávallt viðeigandi fótastöðu og notið
aðeins greinarsögina á föstu, traustu og sléttu
yfirborði. Ef notandinn rennur til eða er á óstöðugu
yfirborði getur það leitt til missis á jafnvægi eða
stjórn á greinarsöginni.
Þegar grein undir spennu er söguð skal hafa
í huga að hún getur skotist til baka. Þegar
losnar um spennu í viðartrefjunum getur grein undir
spennu slegist í notandann og/eða greinarsögina
svo notandinn missi stjórn á henni.
Sýnið ýtrustu varúð við klippingu á kjarri og
ungtrjám. Grannt efnið getur fests í sagkeðjunni og
slegist í átt að þér eða komið þér úr jafnvægi.
IS
Haldið á greinarsöginni með framhandfanginu
og frá líkamanum þegar labbað er um með hana
og gætið þess að slökkt sé á henni. Þegar
greinarsögin er flutt eða geymd verður alltaf að
setja beinistangarhlífina á. Viðeigandi meðhöndlun
á greinarsöginni dregur úr líkum þess að snerta
óvart sagkeðjuna.
Fylgið fyrirmælum um smurningu,
keðjustrekkingu og skipti um stöng og keðju.
Keðja sem hefur ekki verið strekkt eða smurð með
réttum hætti getur annaðhvort slitnað eða aukið líkur
á bakslagi.
Aðeins til að saga við. Notið ekki greinarsögina
í öðrum en ætluðum tilgangi. Til dæmis: notið
greinarsögina ekki til að saga málm, plast,
múrverk eða byggingarefni sem ekki er úr við.
Notkun á greinarsöginni fyrir önnur verk en hún er
ætluð fyrir, getur leitt til hættulegra aðstæðna.
Reynið ekki að fella tré fyrr en öll hætta liggur
fyrir og hvernig koma megi í veg fyrir þær.
Notandinn eða viðstaddir geta orðið fyrir alvarlegum
meiðslum þegar tré er fellt.
Þessi greinarsög er ekki ætluð til að fella tré.
Notkun á greinarsöginni fyrir önnur verk en hún
Íslenska
er ætluð fyrir, getur leitt alvarlegra meiðsla fyrir
notandann eða þeim sem nærri eru.
Fylgið öllum fyrirmælum við hreinsun á flæktu
efni, geymslu eða viðgerðir á greinarsöginni.
Gangið úr skugga um að slökkt sé á henni og
að rafhlaðan hafi verið tekin úr. Ef greinarsögin fer
óvænt í gang við hreinsun á flæktu efni eða vegna
viðgerða getur það leitt til alvarlegs líkamstjóns.
4
ORSAKIR OG HINDRUN
STJÓRNANDANS Á
BAKSLAGI:
Bakslög geta átt sér stað þegar nef eða oddur
beinistangarinnar snertir hlut eða þegar viðurinn
þrengist og klemmir sagkeðjuna í sárinu.
Ef oddurinn lendir á hlutum getur það stundum valdið
skyndilegu bakslagi, rykkt beinistönginni upp og aftur á
bak í átt að notandanum.
Ef sagarkeðjan klemmist við efsta hluta
beinistangarinnar getur það ýtt beinistönginni skyndilega
afturábak og í átt að notandanum.
Þú getur misst stjórn á söginni í báðum þessum
tilvikum og valdið alvarlegu líkamstjóni. Treystið ekki
eingöngu á innbyggðan öryggisbúnað keðjusagarinnar.
Sem notandi greinarsagarinnar ættir þú að grípa til
víðtækra ráðstafana til að koma í veg fyrir slys eða
meiðsli við vinnu þína.
Bakslag á sér stað við misnotkun og/eða ranga notkun
eða aðstæður og er hægt að koma í veg fyrir það með
viðeigandi varúðarráðstöfunum eins og hér segir:
Viðhaldið góðu gripi með þumalfingur og fingur
um handföngum greinarsagarinnar, með báðar
hendur á söginni og líkamans- og armstöðu
þannig að þú standist alla bakslagskrafta.
Notandinn getur haft stjórn á bakslagskröftum ef
hann grípur til viðeigandi varúðarráðstafana. Sleppið
ekki greinarsöginni.
Hvorki má teygja sig með söginni né saga fyrir
ofan axlarhæð. Það kemur í veg fyrir að oddurinn
komist óvænt í snertingu við hluti og tryggir betri
stjórn á greinarsöginni í óvæntum aðstæðum.
Skiptið beinistöngum og sagarkeðjum aðeins út
eins og framleiðandinn hefur mælt með. Röng
staðsetning beinistanga og sagarkeðja getur valdið
bilun og/eða bakslagi.
Fylgið fyrirmælum framleiðanda um hvernig eigi
að brýna sagkeðjuna. Ef hæð dýptarmælisins er
minnkuð getur það einnig aukið bakslagið.
366

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents