Notkun Og Umönnun Rafmagnsverkfæra.365; Notkun Og Umönnun Rafhlöðunnar; Þjónusta; Öryggisviðvaranir Greinarsagar - Echo DPPF-310 Operator's Manual

Power pruner
Table of Contents

Advertisement

tryggir betri stjórn á rafmagnsverkfærinu í óvæntum
aðstæðum.
Notið viðeigandi fatnað. Ekki má klæðast víðum
fötum eða nota lausa skartgripi. Haldið hári,
klæðnaði og hönskum frá hreyfanlegum hlutum.
Víður fatnaður, skartgripir eða langt hár getur fests í
hreyfanlegum hlutum.
Ef verkfærið er með tengingu fyrir rykskiljunnar-
og ryksöfnunarbúnaði, verður að tryggja að
þessi búnaður sé tengdur og notaður rétt. Notið
ryksöfnunarbúnað til að draga úr hættum tengdum
ryki.
Ekki láta þekkingu, sem aflað er með tíðri notkun
verkfærisins, leyfa þér að verða andvaralaus og
hunsa öryggisreglur verkfærisins. Kærulauslegar
aðgerðir geta valdið alvarlegum meiðslum á
sekúndubroti.
2.4
NOTKUN OG UMÖNNUN
RAFMAGNSVERKFÆRA
Ekki þvinga rafmagnsverkfærið. Notið rétt
rafmagnsverkfæri í verkið. Rétt rafmagnsverkfæri
mun skila af sér betra verki og öruggara á þeim
hraða sem það var hannað fyrir.
Ekki nota rafmagnsverkfærið ef rofinn kveikir
ekki eða slekkur á því. Hvert það rafmagnsverkfæri
sem ekki er hægt að stýra með rofanum er
hættulegt og verður að gera við.
Fjarlægið rafmagnsklóna úr aflgjafanum
og/eða fjarlægið rafhlöðuna, ef hægt er
að fjarlægja hana, úr rafmagnsverkfærinu
áður en þið gerið breytingar, skiptið um
aukabúnað eða geymið rafmagnsverkfærið.
Slíkar forvarnaröryggisaðgerðir draga úr hættunni á
að rafmagnsverkfærið ræsist af slysni.
Geymið rafmagnsverkfæri þar sem börn ná ekki
til og ekki leyfa einstaklingum sem þekkja ekki
rafmagnsverkfærið eða þessar leiðbeiningar að
nota það. Rafmagnsverkfæri eru hættuleg í höndum
óþjálfaðra notenda.
Viðhald á rafmagnsverkfærum og fylgihlutum
þess. Athugið með skekkju eða festingu hluta
sem hreyfast, slit á hlutum og öðru ástandi sem
getur haft áhrif á notkun rafmagnsverkfærisins.
Ef það er skemmt, verður að gera við það fyrir
notkun. Mörg slys eru vegna rafmagnsverkfæra
sem hafa fengið lélegt viðhald.
Haldið klippunum beittum og hreinum. Klippum
sem er haldið rétt við og eru með beittum
skurðarbrúnum eru ekki líklegar til að festast og er
auðveldara að stjórna.
Notið rafmagnsverkfærið, fylgihluti og tól,
o.s.frv. í samræmi við þessar leiðbeiningar og
takið tillit til vinnuaðstæðna og það verk sem
inna skal af hendi. Notkun á rafmagnsverkfærinu
fyrir verk sem eru önnur en það er ætlað fyrir, getur
leitt til hættulegra aðstæðna.
Íslenska
Haldið handföngum og gripyfirborð þurrt, hreint
og laust við olíu og feiti. Sleip handföng og
gripyfirborð bjóða ekki upp á örugga meðhöndlun og
stjórnun á verkfærinu við óvæntar aðstæður.
2.5
NOTKUN OG UMÖNNUN
RAFHLÖÐUNNAR
Endurhlaðið aðeins með því hleðslutæki sem
er tilgreint af framleiðanda. Hleðslutæki sem er
hentugt fyrir eina gerð rafhlöðu getur valdið eldhættu
þegar það er notað með annarri gerð rafhlöðu.
Notið aðeins rafmagnsverkfæri með sérstaklega
hönnuðum rafhlöðum. Notkun á öðrum rafhlöðum
getur valdið hættu á meiðslum og bruna.
Þegar rafhlaðan er ekki í notkun, skal halda því
frá öðrum járnhlutum eins og pappírsklemmum,
myntum, lyklum, nöglum, skrúfum eða öðrum
litlum málmhlutum sem geta valdið tengingu frá
einu endatengi til annars. Ef skammhlaup myndast
milli póla rafhlöðunnar getur það valdið brunasári
eða bruna.
Vökvi getur sprautast úr rafhlöðunni við
aðstæður þar sem misnotkun á sér stað. Ef
óviljandi snerting á sér stað, skal skola með
vatni. Ef vökvinn kemst í snertingu við augu,
skal hafa samband við lækni þegar í stað. Vökvi
sem sprautast frá rafhlöðunni getur valdið ertingu
eða bruna.
Ekki nota rafhlöðu eða rafmagnsverkfæri sem
er skemmt eða breytt. Skemmdar eða breyttar
rafhlöður geta sýnt af sér óútreiknanlega hegðun
sem veldur bruna, sprengingu eða líkamstjóni.
Ekki hafa rafhlöðuna eða verkfærið óberskjaldað
fyrir eldi eða miklum hita. Varnarleysi gegn eldi
eða hitastigi yfir 130°C getur valdið sprengingu.
Fylgið öllum hleðsluleiðbeiningum og ekki hlaða
rafhlöðuna eða rafmagnsverkfærið utan þess
hitastigssviðs sem tilgreint er í leiðbeiningunum.
Röng hleðsla eða hleðsla við hitastig sem er utan
tilgreint svið, getur valdið skemmdum á rafhlöðunni
og aukið eldhættu.
2.6
ÞJÓNUSTA
Látið viðurkenndan viðgerðaraðila sjá um
þjónustu á rafmagnsverkfærinu og notið aðeins
varahluti af sömu gerð. Það tryggir öryggi
rafmagnsverkfærisins.
Gerið aldrei við skemmda rafhlöðu. Viðgerð á
rafhlöðu má aðeins framleiðandi framkvæma eða
viðurkenndur þjónustuaðili.
3
ÖRYGGISVIÐVARANIR
GREINARSAGAR
Haldið öllum líkamshlutum frá sagkeðjunni
þegar greinarsögin er notuð. Áður en
greinarsögin er sett í gang skal tryggja að
sagarkeðjan snerti enga hluti. Skortur á athygli
365
IS

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents