Geymsla, Flutningur, Förgun Og Endurvinnsla; Takmörkuð Ábyrgð - Permobil ROHO Hybrid Elite Operation Manual

Hide thumbs Also See for ROHO Hybrid Elite:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
Hreinsun og sótthreinsun, framhald
Hreinsun og sótthreinsun sessunnar í þvottavél
MIKILVÆGT: Hreinsun í þvottavél getur valdið sliti og skemmdum, þar á meðal geta myndast skurðir og rifur á sessunni og nauðsynlegar
vöruupplýsingar dottið af. Sérstaklega er mælt með því að sessan sé hreinsuð og sótthreinsuð í höndum og látin loftþorna.
Viðvaranir:
- EKKI þvo formaða svampgrunninn eða svampinn í þvottavél og ekki má þurrka hann í þurrkara. EKKI má þurrka innri hluta sessunnar í þurrkara.
- VARNIÐ ÞVÍ að vatn eða hreinsivökvi komist inn í sessuna. Gangið úr skugga um að blásturslokarnir séu lokaðir. Hybrid Elite SR: Gangið úr skugga
um að Smart Check sé aftengt frá sessunni. Komist vatn í sessu með Sensor Ready-tækni er hætta á að Smart Check skemmist og skili röngum aflestri
við notkun.
- Hár vatnshiti getur valdið því að sessan aflitast og merkingar detta af.
- EKKI láta sessuna komast í snertingu við hærra hitastig en 70 °C (158 °F), þar sem hærri hiti getur skemmt íhluti sessunnar.
- Gangið úr skugga um að afkastageta þvottavélarinnar sé fullnægjandi áður en sessan er hreinsuð eða sótthreinsuð í þvottavél. Of lítil þvottavél getur
mögulega ekki hreinsað öll óhreinindi eða aðskotaefni af sessu.
- Notkun skemmdrar sessu dregur úr eða skilar engum ávinningi og eykur hættu á áverkum á húð og öðrum mjúkvef.
Sessan undirbúin fyrir hreinsun í þvottavél:
1) Fjarlægið hlífina og lokið blásturslokunum. Gangið úr skugga um að Smart Check sé aftengt frá sessunni (Hybrid Elite SR). Leitið eftir skemmdum
á sessunni og setjið bætur á göt (frekari upplýsingar er að finna í leiðbeiningum viðgerðarsettsins sem fylgir með vörunni).
2) Þrífið burtu bletti og ólykt eftir þörfum: Leggið sessuna í bleyti í volgt vatn og sótthreinsandi hreinsiefni. Skrúbbið hana varlega með mjúkum plastbursta
og skolið með vatni.
3) Losið loft úr sessunni: Opnið blásturslokann og rúllið sessunni upp, frá horninu sem er andstætt lokanum. Þegar búið er að fjarlægja eins mikið loft og
hægt er skal loka blásturslokanum.
4) Leitið eftir skörpum brúnum í þvottavélinni sem geta skemmt sessuna.
Sessan hreinsuð í þvottavél:
Setjið sessuna í þvottanet og svo í þvottavélina. Þegar sessan er brotin saman þarf að tryggja að lofthólfaflöturinn snúi út.
Notið volgt vatn (30–40 ºC (85–105 ºF)) og setjið þvottaefni eða hreinsiefni/sæfiefni sem hentar fyrir þvottavélina og sessuna í sápuhólfið.
Kerfi fyrir viðkvæman þvott: Notið þvottakerfi sem ekki er með þeytivindu.
Sessan sótthreinsuð í þvottavél: Fylgið leiðbeiningum þvottavélarinnar og notið heitt vatn, 60 °C (140 °F). Notið sæfiefni (frekari upplýsingar
eru í leiðbeiningum frá framleiðanda). Sýnið aðgát við notkun klórs: Notið eingöngu 1 hluta af fljótandi heimilisklór á móti 9 hlutum af vatni.
Skolið með hreinu vatni.
Varúð: Skolið vandlega. Þvotta- og hreinsiefnisleifar geta valdið því að lofthólfin límast saman.
Sessan þurrkuð: Takið sessuna úr þvottanetinu og loftþurrkið hana. Notið hárblásara til að þurrka sessuna hraðar. Haldið hárblásaranum
minnst 15 cm frá sessunni og hreyfið fram og til baka.
Viðvörun: Varan getur skemmst varanlega ef gervigúmmíið ofhitnar.
Tákn fyrir umhirðu
Handþvottur.
Þurrkað á snúru í skugga.
Heitt þvottaprógramm,
60C
venjulegt, á hitastiginu sem
tilgreint er.
Geymsla, flutningur, förgun og endurvinnsla
Geymsla og flutningur: Hreinsið og sótthreinsið vöruna fyrir geymslu. Opnið blásturslokana. Hleypið loftinu úr vörunni. Geymið vöruna í íláti sem ver hana gegn
raka, aðskotaefnum og skemmdum. Eftir geymslu þarf að fylgja leiðbeiningum um undirbúning vörunnar fyrir notkun. Eftir flutning þarf að skoða vöruna til að
tryggja að hún hafi ekki skemmst (sjá „Úrræðaleit").
Förgun: Íhlutir varanna í þessari handbók tengjast ekki neinum þekktum áhættuþáttum fyrir umhverfið ef vörurnar eru notaðar með réttum hætti og þeim fargað
í samræmi við allar staðbundnar/gildandi reglugerðir. Við lok endingartímans skal meðhöndla vöruna sem úrgang frá heilbrigðisþjónustu og farga henni í samræmi
við gildandi reglur um förgun slíks úrgangs. Brennið með öðrum úrgangi frá heilbrigðisþjónustu. Brennsla þarf að vera á vegum vottaðrar sorphreinsunarstöðvar
með tilskilin leyfi.
Endurvinnsla: Hafið samband við næstu endurvinnslustöð til að ákvarða möguleika á endurvinnslu vörunnar.
Takmörkuð ábyrgð
Tímabil takmarkaðrar ábyrgðar: Tvö ár frá upprunalegum kaupdegi vörunnar. Ábyrgðin gildir ekki um göt, rifur, bruna eða misnotkun. Frekari upplýsingar eru
í leiðbeiningunum sem fylgdu með hlífinni, í viðauka um takmarkaða ábyrgð sem fylgir með vörunni eða fást hjá þjónustudeild.
IS - Notkunarhandbók fyrir ROHO Hybrid Elite-sessu
Klór (1 hluti klór: 9 hlutar vatn).
1:9
Notið hárblásara.
Strjúkið af með rökum klút.
112
60C
Þvottur í þvottavél, volgt vatn, kerfi
40C
fyrir viðkvæman þvott.
Kaldur
Leggið til þerris
handþvottur.
í skugga.
40C
+
1:9

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents