Hreinsun Og Sótthreinsun - Permobil ROHO Hybrid Elite Operation Manual

Hide thumbs Also See for ROHO Hybrid Elite:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
Hreinsun og sótthreinsun
Umhirða hlífar
Leiðbeiningar um umhirðu hlífarinnar er að finna í handbókinni sem fylgdi með hlífinni.
Umhirða sessu
Viðvaranir:
- EKKI þvo formaða svampgrunninn eða svampinn í þvottavél og ekki má þurrka hann í þurrkara. EKKI má þurrka innri hluta sessunnar í þurrkara.
- VARNIÐ ÞVÍ að vatn eða hreinsivökvi komist inn í sessuna. Gangið úr skugga um að blásturslokarnir séu lokaðir. Hybrid Elite SR: Gangið úr skugga um að
Smart Check sé aftengt frá sessunni. Komist vatn í sessu með Sensor Ready-tækni er hætta á að Smart Check skemmist og skili röngum aflestri við notkun.
- Hreinsun og sótthreinsun eru aðskilin ferli. Hreinsun þarf að fara fram áður en sótthreinsað er. Ef varan er orðin óhrein eða á milli notenda: hreinsið,
sótthreinsið og athugið hvort varan virkar rétt.
- Þrífið vöruna reglulega og þegar hún er óhrein.
- Fylgið öryggisreglum framleiðanda klórsins og sótthreinsiefnisins.
- Athugasemd um dauðhreinsun: Hár hiti hraðar sliti og skemmir vöruna. Vörurnar sem fjallað er um í þessari handbók eru ekki pakkaðar í dauðhreinsaðar
umbúðir og ekki er ætlast til eða þess krafist að þær séu dauðhreinsaðar fyrir notkun. Ef starfsreglur stofnunar krefjast dauðhreinsunar: Fyrst skal fylgja
leiðbeiningum um hreinsun og sótthreinsun; næst skal opna blásturslokana og nota lægsta mögulega dauðhreinsunarhitastig, þó aldrei hærra en 70 °C
(158 °F), í eins stuttan tíma og mögulegt er. EKKI gufusæfa.
Varúð:
-
Notkun á eftirfarandi getur valdið skemmdum á sessunni: slípiefni (stálull, fægileppar); basísk þvottaefni fyrir uppþvottavélar; hreingerningavörur sem
innihalda jarðolíu eða lífræna leysa, þar á meðal aseton, tólúen, metýletýlketón (MEK), nafta, þurrhreinsivökva, límhreinsi; olíublönduð krem, lanólín, óson;
hreinsun með útfjólubláu ljósi.
-
VERJIÐ sessuna gegn sólarljósi.
Tilmæli: Við handþvott skal nota vatn við stofuhita.
Athugið: Auðveldara getur reynst að þrífa loftlaus hólf. Lofti hleypt úr lofthólfum: Opnið blásturslokana, rúllið sessunni upp og/eða þjappið henni saman og lokið
blásturslokunum því næst tryggilega.
Innri hluti sessu handþveginn og sótthreinsaður (ráðlögð aðferð)
Takið innri hluta sessunnar varlega frá formaða svampgrunninum. Lokið blásturslokunum. Þvoið sessuna í höndunum með
mildri handsápu, uppþvottalegi, þvottaefni eða fjölnota þvotta- og hreinsiefni (fylgið fyrirmælum á merkimiða viðkomandi vöru).
Skrúbbið alla fleti sessunnar varlega með mjúkum plastbursta, svampi eða tusku. Skolið með hreinu vatni. Loftþurrkið.
Fyrir sótthreinsun skal endurtaka leiðbeiningarnar um hreinsun með 1 hluta af fljótandi heimilisklór á móti 9 hlutum af vatni.
Látið vöruna liggja í klórlausninni í 10 mínútur. Skolið hana því næst vandlega með vatni. Loftþurrkið.
Varúð: Skolið vandlega. Þvotta- og hreinsiefnisleifar geta valdið því að lofthólfin límast saman.
Formaði svampgrunnurinn og svampurinn hreinsaður og sótthreinsaður
Gerið eftirfarandi til að hreinsa og sótthreinsa formaða svampgrunninn: Fjarlægið hlífina, svampinn og innri hluta
sessunnar. Til að hreinsa svampgrunninn skal strjúka varlega yfir hann með klút vættum í vatni og hreinsiefni til heimilisnota
og skola hann síðan með köldu, hreinu vatni.
Fyrir sótthreinsun skal fylgja leiðbeiningunum um hreinsun en nota sótthreinsiefni í stað hreinsiefnisins. Eftir hreinsun eða
sótthreinsun skal leyfa svampinum að loftþorna vel áður en hlífin er sett á.
Gerið eftirfarandi til að hreinsa og sótthreinsa svampinn: Til að hreinsa svampinn skal væta klút og vinda hann til að
fjarlægja allt vatn. Þurrkið varlega yfir með klútnum og hreinsiefni til heimilisnota og þurrkið síðan aftur yfir með hreinum,
örlítið rökum klút.
Fyrir sótthreinsun skal fylgja leiðbeiningunum um hreinsun en nota sótthreinsiefni í stað hreinsiefnisins. Eftir hreinsun eða
sótthreinsun skal leyfa svampinum að loftþorna vel áður en hlífin er sett á.
IS - Notkunarhandbók fyrir ROHO Hybrid Elite-sessu
111
+
1:9

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents