Hallde RG-300i User Instructions page 37

Vegetable preparation machine
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
NOTKUNARLEIÐ BEININGAR
HALLDE
RG - 300i
( IS )
AÐVÖRUN!
Lestu allar leiðbeiningarnar áður en þú
byrjar að nota vélina.
Varist að skera hendurnar á beittum hnífum
skurðarverkfæranna, matarahólknum og
lausum vélarhlutum..
Aðeins löggiltum fagmönnum er heimilt að
tengja vélina.
Setjið aldrei hendurnar ofan í sjálfmatarann
eða handstýrða matarann.
Notið ávallt stautinn þegar skorið er með
matarapípunni, og setjið aldrei hendurnar
inn í matarapípuna.
Notið alltaf stautana þegar skorið er með
því að nota 4-pípu matara.
Setjið aldrei hendurnar í frárásarop véla-
rinnar þegar matarahólkurinn er niðri og
læsihandfangið lokað.
Hræritækið, lásboltann og kjarnahreinsibú-
naðinn þarf að herða (rangsælis) og losa
(réttsælis) með skrúflykli.
Þrýstið ávallt á hnappinn til að stöðva
vélina áður en skurðarverkfærum o.s.frv.
er komið fyrir eða þau fjarlægð, jafnvel þótt
vélin sé ekki í gangi.
Slökkvið á vélinni og takið hana úr
sambandi eða slökkvið á straumrofa áður
en vélin er þrifin.
Þegar 4-pípu matarinn er notaður skal aldrei
nota stærri skurðarverkfæri en 10 mm.
Aðeins löggiltum fagmönnum er heimilt að
gera við vélina og opna vélarhúsið.
Notið ekki vélina til að skera frosin matvæli.
Fjarlægið alla harða hluta úr matnum áður
en hann er skorinn (t.d. eplakjarna, trénaða
hluta næpa o.s.frv.) til að skemma ekki
hnífana.
Þetta tæki er ekki ætlað til notkunar af
börnum eða einstaklingum með skerta
líkamlega, skyn- eða andlega getu eða skort
á reynslu á tækjum sem þessu, nema viðko-
mandi einstaklingur hafi hlotið fullnægjandi
leiðsögn eða tilsögn um notkun tækisins.
Vélin má eingöngu vinna í mesta lagi í 1
klukkustund í senn. Hvílið vélina í eina kluk-
kustund áður en hún er ræst aftur.
UMBÚÐIR FJARLÆGÐAR
Gætið þess að allir hlutar fylgi vélinni, að vélin
sé í lagi og að ekkert hafi skemmst í flutningi.
Athugasemdir verða að hafa borist seljanda
innan átta daga.
HALLDE • User Instructions
UPPSETNING
Tengið vélina við rafstraum með réttri uppge-
finni spennu.
Fjarlægið skurðarverkfærið áður en vélin er
tengd.
Stillið undirstöður vélarinnar eins og nauðsyn-
legt er til að hún hafi góða fótfestu.
Setjið veggfestinguna fyrir skurðarverkfærin á
vegg nálægt vélinni til hægðarauka og öryggis.
Gangið úr skugga um að öxullinn snúist
réttsælis.
Gangið úr skugga um að vélin stöðvist þegar
læsihnappnum fyrir sjálfmatarann eða 4-pípu
matarann er snúið réttsælis í ólæsta stöðu, og
að vélin fari aftur í gang þegar læsihnappnumer
snúið rangsælis í læsta stöðu.
Gangið úr skugga um að vélin stöðvist þegar
mataraplötu handstýrða þrýstimatarans er
snúið til hliðar þannig að op matarahólksins
verði stærra en 60 mm, og að vélin fari aftur
í gang þegar hún er aftur færð yfir matara-
hólkinn.
Virki vélin ekki rétt þarf að láta skoða hana áður
en hún er tekin í notkun.
KANNIÐ ÁVALLT FYRIR
NOTKUN
Takið vélina úr sambandi eða slökkvið á
straumrofa og gangið síðan úr skugga um að
rafmagnssnúran sé heil og ósprungin.
MEÐ HANDSTÝRÐA MATARANUM:
Gangið úr skugga um, þegar skurðarverkfæri
er í vélinni, að hún stöðvist innan 2 sekúndna
þegar þrýstiplatan er færð meira en 60 mm til
hliðar, og fari aftur í gang þegar þrýstiplatan er
færð aftur yfir matarann. ATHUGIÐ! Minna en
60 mm er í lagi.
Gangið úr skugga um að ekki sé hægt að
ræsa vélina þegar matarahólkurinn hefur
verið fjarlægður og handstýrði þrýstimatarinn
færður niður.
Ef einhver af öryggisþáttunum þremur virkar
ekki eins og hann á að gera eða ef rafmagns-
snúran er ekki heil ber að kalla til löggiltan
fagmann eða rafvirkja til að laga gallann áður
en vélin er aftur tengd við rafmagn.
Gangið úr skugga um að þrýstiplötuöxullinn
snúist óhindrað. Ef öxullinn snýst ekki óhindrað
skal þrífa hann vandlega og smyrja með
nokkrum dropum af vélaolíu.
Gangið úr skugga um að skurðarverkfærin séu
heil og bíti vel.
Upplýsingar um skurðarverkfærin eru á síðum
60.
MEÐ SJÁLFMATARANUM:
Takið vélina úr sambandi eða slökkvið á
straumrofa og gangið síðan úr skugga um að
rafmagnssnúran sé heil og ósprungin.
Athugaðu að vélin, með skurðartæki fest á,
hættir innan tveggja sekúndna þegar hand-
fangið á fóðurskammtaranum er snúið réttsælis
og byrjar þegar handfanginu er snúið aftur til
baka.
Gangið úr skugga um að ekki sé hægt að ræsa
vélina þegar matarahólknum fyrir sjálfmatarann
hefur verið komið fyrir en ekki sjálfmataranum.
Ef einhver af öryggisþáttunum þremur virkar
ekki eins og hann á að gera eða ef rafmagns-
snúran er ekki heil ber að kalla til löggiltan
fagmann eða rafvirkja til að laga gallann áður
en vélin er aftur tengd við rafmagn.
Gangið úr skugga um að skurðarverkfærin séu
heil og bíti vel.
Upplýsingar um skurðarverkfærin eru á síðum
60.
MEÐ 4-PÍPU MATARA:
Takið vélina úr sambandi eða slökkvið á
straumrofa og gangið síðan úr skugga um að
rafmagnssnúran sé heil og ósprungin.
Athugaðu að vélin, með skurðartæki fest á,
hættir innan tveggja sekúndna þegar hand-
fangið á 4-túbunni í er snúið réttsælis og byrjar
þegar handfanginu er snúið aftur til baka.
Ef öryggisþátturinn virkar ekki eins og hann
á að gera eða ef rafmagnssnúran er ekki heil
ber að kalla til löggiltan fagmann eða rafvirkja
til að laga gallann áður en vélin er aftur tengd
við rafmagn.
Gangið úr skugga um að skurðarverkfærin séu
heil og bíti vel.
Upplýsingar um skurðarverkfærin eru á síðum
60.
VINNSLUGERÐIR
Sneiðir, sker í teninga, rífur, tætir og sker í
strimla í ýmsum stærðum, eftir því hvaða
skurðarverkfæri er valið. Vinnur grænmeti,
ávexti, brauð, ost, hnetur, sveppi o.s.frv.
NOTENDUR
Veitingastaðir, verslunareldhús, spítalar, skólar,
skyndibitastaðir, veisluþjónustur, pítsustaðir,
skip, iðnaðareldhús, matvælaframeiðsla o.s.frv.
VINNSLUGETA
Allt að 3.000 skammtar á dag, 40 kíló á mínútu.
NOTKUN MATARA
HANDSTÝRÐUR MATARI, ERGO LOOP
Hægt er að nota þennan matara fyrir allar
tegundir af vörum, litlar og stórar.
Stóra matarahólfið er einkum notað til að vinna
með matvæli í miklu magni og skera stærri
vörur eins og hvítkál.
Stóra matarahólfið er líka notað þegar skera
á matvælin frá ákveðinni hlið, eins og tómata
og sítrónur. Komið vörunni fyrir eins og sýnt
er á myndinni.
Innbyggða matarapípan er notuð til að skera
langt og mjótt hráefni eins og gúrkur, sjá mynd.
37

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents