Hurðararmur Festur Við Sleða - Chamberlain COMFORT Assembly And Operating Instructions Manual

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 16
15
Að hengja upp opnara
1. Opnaðu dyrnar að fullu, settu hurðaopnarann á gólfið (Mynd A).
Leggðu viðarbút / pappa á merkta blettinn (X).
Opnarinn verður að vera kyrfilega festur við burðarstoð bílskúrsins.
Þrjár dæmigerðar uppsetningar eru sýndar (Mynd B). Þín gæti verið
frábrugðin. Hangandi festingar (1) ættu að snúa þannig að þær veiti traus-
tan stuðning. Á fínpússuðum loftum, skal festa burðuga málmfestingu (fylgir
ekki ) við burðarstoð áður en opnarinn er settur upp.Fyrir steypt loft, skal
nota steypufestingar (3) sem fylgja.
Á hvorri hlið opnarans skaltu mæla fjarlægðina frá opnaranum að
burðarstoðinni (eða loftinu). Sagaðu báða hluta hangandi festingarinnar í
þá lengd sem þarf. Næst skaltu fletja út annan enda hvorrar festingar og
beygðu eða snúðu þeim þannig að þeir passi við festingahornin. Beygðu
ekki við festingagötin. Boraðu 5mm prufugöt í burðarstoðirnar (eða loftið).
Festu festingarnar við stoðirnar með tréskrúfum (4). Lyftu opnaranum og
festu hann við hangandi festingarnar með skrúfum og róm (5). Gakktu úr
skugga um að brautin sé mitt yfir hurðinni. FJARLÆGÐU plötu.
Settu hurðina af stað handvirkt. Rekist hurðin í brautina, skal lyfta burðar-
bitafestingunni.
Taktu eftir láréttu ferli brautarinnar eftir loftinu. Það má stilla
fjarlægðina með bilinu milli gatanna. Það má taka af þeim af
endum loftafestingarinnar sem skaga fram, ef þörf krefur.
Hurðarfestingu komið fyrir
16
Uppsetning á einingaskiptum hurðum eða hurðum í einu lagi:
Hurðafestingin (1) hefur mörg festingagöt. Festu hurðafestingu
efst á miðju innan á hurðina eins og sýnt er. Merktu fyrir götum og skrúfaðu
hurðarfestinguna fasta.
Festingarhæðir:
1. Hurð í einu lagi eða einingaskipt hurð með stýribraut:
fjarlægð að efstu brún hurðar 0-100mm.
2. Einingaskipt hurð með tveimur stýribrautum:
fjarlægð að efstu brún hurðar 100-130mm.
ATHUGIÐ:
Festipunkturinn á hurðinni verður að vera á grindinni eða á stöðugum stað
á hurðarplötunni. Gerist þess þörf skal bora í gegn og skrúfa
(fylgir ekki) saman eins og sýnt er á Mynd B.
17
Hurðararmur festur við sleða
Beini hurðararmurinn er þegar forsamsettur. Með því að toga í rauða
handfangið má losa sleðann frá tannreiminni og þá er hægt að hreyfa hann
með handafli.
TEKIÐ ÚR LÁS:
1. Þegar þess er kostur ætti hurðin að vera alveg lokuð.
2. Dragið rauða handfangið fyrir neyðaropnun niður á við.
LÆST:
Opnunarbúnaðurinn kemur í veg fyrir að sleðinn læsist aftur sjálfkrafa. Ýtið
á græna hnappinn á sleðanum og við næstu hurðarhreyfingu mun kerfið
læsast á ný.
Festu sleppihandfang neyðarsleppibúnaðarins í a.m.k. 1,80 m
hæð. Festu gula miðann er varðar sleppibú nað bílskúrshurðaop-
narans (límmiði) á snúru hurðarhandfangsins.
18
Rafmagnstengingar
Til að forðast líkamstjón og skemmdir á búnaðinum, skal hurðaop
narinn aðeins notaður ef beinar leiðbeiningar um slíkt fyrirfinnast í
þessari handbók. Rafmagnstengið verður ávallt að vera vel
aðgengilegt svo hægt sé að aftengja við aflgjafa.
19
Uppsetning upplýsta hnappsins
Staðsettu hurðarstjórntækið þar sem bílskúrshurðin er sýnileg, fjarri
hurðinni og hurðarvélbúnaði og þar sem börn ná ekki til. Festu a.m.k. 1,5 m
yfir gólfinu. Festu til frambúðar aðvörunarlímmiðann á vegginn nærri
hurðarstjórntækinu, sem áminning um örugga notkun.
Það eru 2 skaut aftan á hurðarstjórntækinu. Losaðu u.þ.b. 6mm af einan-
grun af rafmagnsvírnum. Aðskildu vírana nægilega mikið til að tengja
hvíta/rauða vírinn við skrúfu á skautunum (RED) og hvíta vírinn við skrúfu á
skautunum (WHT). Festu hurðarstjórntækið á bílskúrsvegg innandyra með
málmþynnuskrúfum (3) sem fylgja. Boraðu 5mm göt og notaðu gifsfestingar
(6) sé uppsett á gifsvegg. Hentugur staður er við hliðina á gönguhurðinni
og þar sem börn ná ekki til.
Leiddu rafmagnsvírinn upp vegginn og yfir loftið að bílskúrshurðaopnara-
num. Notið einangruð hefti (5) til að festa vírinn. Tengdu rafmagnsvírinn
við skautin sem. Notkun hurðarstjórntækisins Þrýstu á til að opna eða loka
hurðinni. Þrýstu aftur á til að stöðva hurðina á meðan hún hreyfist.
is 04/13

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Premium

Table of Contents