Download Print this page

Campingaz 3 in 1 Grill R Instructions For Use Manual page 72

Hide thumbs Also See for 3 in 1 Grill R:

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 8
c) Opnið hægt og rólega fyrir gasið með því að snúa
stýrinu (1) - á ventlinum (2) - rangsælis (áttin " + " á
örinni).
4 - Slökkt á brennaranum
Þegar matreiðslu er lokið: lokið fyrir kranann með
því að snúa stýrinu (1) - á ventlinum (2) - alla leið
réttsælis (áttin " - " á örinni).
5 - Matreiðsla
Pottastandur (7)
Komið pottinum fyrir á pottastandinum, beint yfir
brennaranum og stillið gaskraftinn þannig að logar-
nir nái ekki út fyrir pottinn.
Plötur
-
Heila platan (9) er tilvalin fyrir egg, þunnar sneiðar
af kjöti eða fiski, grænmeti, ristað brauð...
-
Gataða platan (8) er tilvalin til að grilla á.
-
Þar sem fitan rennur í vatnsbakkann fer matreiðslan
fram á mjög heilsusamlegan hátt (engar fituleifar
eða brennd fita) og maturinn heldur bragði og mýkt.
-
Platan nær hámarkshita (tilvalið til að grilla) eftir 3
mínútna hitun með lokinu á.
-
Komið matnum fyrir og stillið eldunarkraftinn eftir
því sem hentar með stillingarstýrinu (1).
-
Hægt er að matreiða með lokinu á.
E - GEYMIRINN FJARLÆGÐUR (mynd 12)
Hægt er að fjarlægja geyminn þó hann sé ekki
tómur.
Skiptið um geyminn utandyra og fjarri öðru fólki.
- Bíðið þar til tækið hefur kólnað.
- Gangið úr skugga um að gasaðveitan sé vandlega
lokuð með því að snúa stýrinu (1) - á ventlinum (2) -
alla leið réttsælis (áttin " - " á örinni).
- Haldið ventlinum (2) og skrúfið svo geyminn af eins og
fram kemur á mynd 12.
- Skoðið þéttitengið áður en nýjum geymi er komið fyrir
(sjá málsgrein B)g).
F - FJARLÆGING, ÞRIF OG GEYMSLA
Veitið tækinu reglulegt viðhald og það mun endast í
mörg ár.
Þrífið ekki tækið meðan það er í gangi. Bíðið þar til það
hefur kólnað til þess að forðast bruna vegna heitra hluta
(plötur, pottastandur, vatnsbakki o.s.frv.).
a) Þegar tækið hefur kólnað algjörlega skal fjarlægja
plötuna (8 eða 9) eða pottastandinn (7) og vatns-
bakkann (6).
b) Þrífið fitugu hlutana með vatni og sápu eða mildum
uppþvottalegi.
c) Til þess að auðvelda þrif má setja plöturnar, pottas-
tandinn og vatnsbakkann í uppþvottavél.
- Plötur
Plöturnar eru emaleraðar. Þegar þær eru þrifnar er
mælt með því að fjarlægja fyrst allar leifar með
svampi eða skrúbb. Síðan skal þrífa fituna burt með
uppþvottalegi. Passið að reka ekki grillið í harða fleti
þar sem slíkt getur valdið því að flísar brotni úr ema-
IS
leringunni.
d) Þegar búið er að þrífa vatnsbakkann og plöturnar
skal koma þeim fyrir í tækinu (í þessari röð) :
- vatnsbakki (6),
- pottastandur (7),
- götuð plata (8),
- heil plata (9),
Síðan skal snúa öllum láréttum lokum tækisins inn
á við til þess að læsa saman plötunum (mynd 13).
Setjið lokið á og læsið því. Hægt er að halda á tæki-
nu með þar til gerðu handfangi.
e) Geyma skal tækið á svölum og þurrum stað sem er
nægilega loftræstur, þar sem börn ná ekki til og ald-
rei í kjallara.
f) Ef tækið er ekki notað í lengri tíma skal aftengja
geyminn og fara eftir leiðbeiningum í málsgrein E.
g) Ef dælan stíflast (geymirinn inniheldur enn gas en
ekki kviknar á tækinu) skal ekki reyna að losa stí-
fluna heldur fara með hitunarbúnaðinn aftur til
söluaðila.
SKILYRÐI VARÐANDI ÁBYRGÐ
- Vörunni fylgir heildarábyrgð hvað varðar varahluti og
viðgerðir í 2 (tvö) ár frá kaupdegi.
- Ábyrgðin gildir ef varan er ekki í samræmi við pöntun
eða gölluð, en sýna þarf fram á staðfestingu á kaup-
dagsetningu (t.d. reikning eða kassakvittun) og lýsin-
gu á því vandamáli sem fram kom.
- Öll tæki sem ganga fyrir gasi skal aftengja hylkinu eða
hreyflinum sem þau eru tengd við áður en þeim er ski-
lað til viðeigandi þjónustuaðila.
- Gert verður við vöruna, skipt um hana eða hún endur-
greidd að hluta til eða öllu leyti.
- Ábyrgðin er ógild og á ekki við ef skemmdir hafa orðið
(i) vegna rangrar notkunar eða geymslu vörunnar, (ii)
vegna vöntunar á viðhaldi eða annars viðhalds en
sem getið er um í notkunarleiðbeiningum, (iii) vegna
viðgerðar, breytinga eða viðhalds þriðja aðila sem ekki
er samþykktur til slíks (iv) eða vegna notkunar annar-
ra vara en uprunalegra.
- ATHUGIÐ: ábyrgðin á ekki við um notkun vörunnar í
atvinnuskyni.
- Viðhald tengt ábyrgð meðan ábyrgð gildir hefur ekki
áhrif á fyrningu ábyrgðarinnar.
- Ábyrgðin hefur engin áhrif á lagalegan rétt neytanda.
- Fáið upplýsingar um kröfur vegna ábyrðar hjá þjónus-
tudeild okkar.
NEYTENDAÞJÓNUSTA
OLIS ICELAND
SUNDAGARDAR 2
IS-104 REYKJAVIK - ICELAND
Tel. 00354-5151000
web site: www.campingaz.com
72

Advertisement

loading