Lýsing; Tilgangur; Yfirlit; Almennar Öryggisviðvaranir Fyrir Rafmagnsverkfæri - Echo DPPF-310 Operator's Manual

Power pruner
Table of Contents

Advertisement

1
LÝSING
1.1

TILGANGUR

Varan er með áföstum sagarbúnaði á stöng til að gera
stjórnandanum kleift að saga greinar af standandi trjám,
en er ekki ætlað að saga við eins og venjuleg keðjusög.
Þetta verkfæri er ekki ætlað til notkunar af einstaklingum
(þar á meðal börnum) með skertan skilning eða skort á
reynslu og þekkingu nema viðkomandi einstaklingur hafi
hlotið tilsögn eða leiðbeiningar um notkun verkfærisins
hjá einstaklingi sem ber ábyrgð á öryggi hans.
Fylgjast ætti með börnum til að tryggja að þau leiki sér
ekki með verkfærið.
1.2

YFIRLIT

Mynd 1-18.
Gikkur með læsingu
1
Rofi
2
Hlíf beinistangar
3
Handfang
4
aflgreinarsagar
Kragi
5
Framlenging
6
stangar
Aflgreinarsagarhaus
7
Ró tannhjólshlífar
8
2
ALMENNAR
ÖRYGGISVIÐVARANIR FYRIR
RAFMAGNSVERKFÆRI
IS
Lesið allar öryggisviðvaranir, fyrirmæli,
skýringarmyndir og tæknilýsingar sem fylgja með
rafmagnsverkfærinu. Ef öllum fyrirmælum að neðan
er ekki fylgt getur það leitt til rafstuðs, eldsvoða og/eða
alvarlegs líkamstjóns.
Geymið allar viðvaranir og fyrirmæli fyrir síðari
skoðun.
Hugtakið „rafmagnsverkfæri" í viðvörununum vísar til
rafmagnsknúins (með snúru) rafmagnsverkfæris eða
rafhlöðuknúins (án snúru) rafmagnsverkfæris.
2.1
ÖRYGGI Á VINNUSVÆÐI
Haldið vinnusvæðinu hreinu og vellýstu. Illa lýst
svæði og fullt af rusli býður hættunni heim.
Ekki nota rafmagnsverkfærin í sprengifimu lofti,
þar sem er að finna eldfima vökva, gös eða ryk.
Rafmagnsverkfæri mynda neista sem geta kveikt í
ryki eða lofttegundum.
Olíugeymislok
9
10 Beinistöng
11 Sagarkeðja
12 Olíumælir
13 Keðjuolía
14 Hlíf tannhjóls
15 Beisli
16 Lykill
VIÐVÖRUN
Íslenska
Haldið börnum og vegfarendum frá, þegar unnið
er með rafmagnsverkfærið. Ónæði getur valdið því
að þú missir stjórn á verkfærinu.
2.2
RAFMAGNSÖRYGGI
Kló rafmagnsverkfærisins verður að passa í
úttakið. Aldrei má breyta klónni á nokkurn
hátt. Notið ekki breytiklær með jarðtengdum
rafmagnsverkfærum. Óbreyttar klær og innstungur
draga úr áhættu á raflosti.
Forðist snertingu við jarðtengd yfirborð eins og
rör, ofna, eldavélar og ísskápa. Hætta á raflosti
eykst ef líkami er jarðtengdur.
Rafmagnsverkfærið má ekki komast í snertingu
við regn eða raka. Vatn sem kemst í
rafmagnsverkfærið mun auka hættuna á rafstuði.
Ekki misbeita rafmagnssnúrunni. Aldrei má
nota rafmagnssnúruna til að bera eða toga í
rafmagnsverkfærið eða taka það úr sambandi.
Haldið snúrunni frá hita, olíu, beittum köntum
eða hreyfanlegum hlutum. Skemmdar eða flæktar
snúrur auka hættuna á raflosti.
Þegar rafmagnsverkfæri er notað utandyra skal
nota framlengingarsnúru sem hentar til notkunar
utandyra. Ef snúra, sem hentar til notkunar
utandyra, er notuð minnkar það hættuna á raflosti.
Ef ekki er hægt að komast hjá því að nota
rafmagnsverki á rökum stað skal nota veitu með
LEKASTRAUMSLIÐA (RCD). Notkun á RCD dregur
úr hættu á raflosti.
2.3
ÖRYGGI MANNA
Verið vel á verði, hafið auga með því sem
gert er og notið almenna skynsemi þegar
unnið er með rafmagnsverkfærið. Ekki má
nota rafmagnsverkfærið þegar notandi er
þreyttur eða undir áhrifum lyfja, alkóhóls eða
eiturlyfja. Augnabliks skortur á athygli, meðan
rafmagnsverkfærið er notað, getur valdið alvarlegu
líkamstjóni.
Notið persónuhlífar. Alltaf skal nota augnhlífar.
Hlífðarbúnaður eins og rykgríma, stamir öryggisskór,
hjálmur eða heyrnarhlífar notaður í viðeigandi
aðstæðum mun draga úr líkamstjóni.
Hindra verður óviðeigandi ræsingu. Ganga
verður úr skugga um að slökkt sé á rofa, áður
en tengt er við rafmagn og/eða rafhlöðu komið
fyrir sem og þegar rafmagnsverkfærið er tekið
upp eða borið. Það boðar hættunni heim að bera
rafmagnsverkfærið með fingurinn á rofanum eða
virkja rafmagnsverkfæri sem þegar er kveikt á.
Fjarlægja verður alla stillingarlykla eða
skiptilykla áður en kveikt er á
rafmagnsverkfærinu. Skipti- eða stillingarlykill
sem er skilinn eftir fastur við snúningshluta
rafmagnsverkfærisins getur valdið líkamstjóni.
Ekki færast of mikið í fang. Tryggið góða
fótastöðu og jafnvægi á öllum tímum. Það
364

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents