Download Print this page

3M Peltor SportTac Manual page 58

Hide thumbs Also See for Peltor SportTac:

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
IS
3M™ PELTOR™ SportTac Headset
MT16H210F-*
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja
samskiptalausn frá 3M™ PELTOR™!
Velkomin að næstu kynslóð persónuhlífa
með samskiptabúnaði.
ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum 3M™ PELTOR™ heyrnartólum er
ætlað að veita vernd gegn hávaða sem fer
yfir hættumörk um leið og notandinn heyrir
umhverfishljóð um tengda hljóðnema. Gert
er ráð fyrir því að allir notendur lesi og skilji
meðfylgjandi leiðbeiningar notenda ásamt
því að kunna að nota tækið.
MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir
öllum öryggisupplýsingum í leiðbeiningum
þessum og farðu eftir þeim áður en þú tekur
heyrnartólin í notkun. Geymdu leiðbeinin-
garnar til þess að geta leitað í
þær síðar. Hafðu samband við tæknideild
3M (3M Technical Service – samskiptaup-
plýsingar er að finna á öftustu síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á
heilsutjóni vegna hávaða og annarra
háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar
rangt eða notkun þeirra sleppt þann tíma
sem dvalist er í hættulegum hávaða, getur
það leitt til heyrnarskerðingar eða -taps.
Ræddu við verkstjóra, kynntu þér
leiðbeiningar notenda eða hafðu samband
við tæknideild 3M til þess að kynna þér
rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért
með bómull í eyrunum eða heyrir són eða
suð í eða eftir hávaða (byssuskot
meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra
ástæðu til að ætla að þú glímir við
heyrnarvanda, skaltu yfirgefa hávaðasama
umhverfið umsvifalaust og hafa samband
við lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum
þessum, gæti það leitt til alvarlegs
líkamstjóns eða dauða:
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur
hljóðskilaboð, getur það dregið úr athygli á
umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu
hljóðið eins lágt stillt og mögulegt er að
sætta sig við. Erfiðara getur reynst að
heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á
meðan hlustað er á afþreyingu.
53
b. Notaðu ekki búnaðinn í mögulega
sprengifimu umhverfi til að draga úr hættu
á því að sprenging verði.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum
þessum, gæti það dregið úr verndarge-
tu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að
notandi máti heyrnarhlífarnar vandlega.
Rannsóknir benda til þess að hjá mörgum
notendum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyfingartöflur á umbúðum benda til
vegna frávika við að fella hlífarnar að
hverjum notanda fyrir sig og færni hans og
hvatningu til þess.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar
séu valdar, þeim komið fyrir, þær aðfelldar
og haldið við. Sé búnaðinum komið fyrir á
ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu
hans til þess að deyfa hávaða. Kynntu þér
meðfylgjandi upplýsingar um rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja
notkun. Séu þær skemmdar, veldu þér
óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari
persónuhlífum (t.d. öryggisgleraugum,
öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd
til þess að þau hafi sem minnst áhrif á
heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt annað
(t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól,
hreinlætishlífar o.s.frv.) sem gæti dregið úr
einangrunargildi heyrnarhlífapúðanna og
verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun
höfuðspöng eða hálsspöng og gættu þess
að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f.
Heyrnarhlífar og einkum þó
eyrnapúðar geta orðið lélegir með tímanum
og þá þarf að skoða með reglulegu millibili
í leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu
heyrnarhlífapúðarnir notaðir reglulega, ber
að skipta um þá og frauðhringina að
minnsta kosti tvisvar á ári til þess að
viðhalda fullnægjandi vernd, hreinlæti og
þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum
heyrnarhlífum getur farið fram yfir dagleg
hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við.
h. Sé ekki farið eftir ofangreindum
kröfum, skerðir það verndareiginleika
heyrnarhlífanna verulega.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum
heyrnarhlífum gæti farið fram yfir dagleg
hávaðamörk.

Advertisement

loading