Bosch System Controller Original Operating Instructions page 96

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 11
Íslenska – 6
Virkni
Með <eBike Lock> virkar farsíminn eins og lykill fyrir
drifeininguna. <eBike Lock> verður virkur þegar slökkt er á
rafhjólinu. Á meðan <eBike Lock> er virkur eftir að kveikt er
á rafhjólinu er það gefið til kynna með hvítu blikkandi ljósi á
stjórntölvunni System Controller og með lástákni á
hjólatölvunni.
Athugaðu: <eBike Lock> er ekki þjófavörn, heldur viðbót
við vélrænan lás! Með <eBike Lock> er rafhjólinu ekki læst
vélrænt eða með álíka hætti. Aðeins er slökkt á stuðningi frá
drifeiningunni. Drifeiningin er tekin úr lás á meðan farsíminn
er tengdur við rafhjólið í gegnum Bluetooth®.
Ef þriðju aðilum er veittur tímabundinn eða varanlegur
aðgangur að rafhjólinu eða ef farið er með rafhjólið á
verkstæði skal gera <eBike Lock> óvirkan í appinu eBike
Flow í valmyndaratriðinu <Settings>. Ef selja á rafhjólið
skal einnig fjarlægja rafhjólið úr notandareikningnum í
appinu eBike Flow í valmyndaratriðinu <Settings>.
Þegar slökkt er á rafhjólinu gefur drifeiningin frá sér
læsingartón (eitt hljóðmerki) til að gefa til kynna að slökkt sé
á stuðningi frá drifinu.
Athugaðu: Rafhjólið getur eingöngu gefið frá sér þetta
hljóðmerki á meðan kveikt er á því.
Þegar kveikt er á rafhjólinu gefur drifeiningin frá sér tvo
aflæsingartóna (tvö hljóðmerki) til að gefa til kynna að
stuðningur frá drifinu sé aftur í boði.
Læsingartónninn hjálpar þér að greina hvort <eBike Lock>
er virkur á rafhjólinu. Hljóðmerkið er sjálfkrafa virkt en hægt
er að gera það óvirkt í appinu eBike Flow í
valmyndaratriðinu <Settings> með því að velja lástáknið
fyrir neðan rafhjólið.
Athugaðu: Ef ekki er lengur hægt að setja upp eða slökkva á
<eBike Lock> skaltu snúa þér til söluaðila reiðhjólsins.
Skipt um hluta rafhjólsins og <eBike Lock>
Skipt um farsíma
1. Settu appið eBike Flow upp á nýja farsímanum.
2. Skráðu þig inn með sama notandareikningi og þú
notaðir til að virkja <eBike Lock>.
3. Í appinu eBike Flow er gefið til kynna að búið sé að setja
<eBike Lock> upp.
Skipt um drifeiningu
1. Í appinu eBike Flow er gefið til kynna að <eBike Lock>
sé óvirkur.
2. Virkjaðu <eBike Lock> með því að færa sleðann fyrir
<eBike Lock> til hægri.
3. Þegar farið er með rafhjólið í viðhaldsskoðun hjá
söluaðila er mælt með því að gera <eBike Lock>
tímabundið óvirkan.
Hugbúnaðaruppfærslur
Setja verður hugbúnaðaruppfærslur í gang handvirkt í
appinu eBike Flow.
Appið flytur hugbúnaðaruppfærslur yfir í stjórntölvuna í
bakgrunni um leið og búið er að tengja hana við appið.
Meðan á uppfærslunni stendur blikkar hleðsluvísirinn fyrir
0 275 007 3RC | (01.06.2023)
rafhlöðu rafhjólsins (13) í grænum lit til að gefa framvinduna
til kynna. Því næst er rafhjólið endurræst.
Hugbúnaðaruppfærslum er stjórnað af appinu eBike Flow.
Tenging System Controller við Mini Remote/Mini
Remote Dropbar
Stjórntölvurnar System Controller og Mini Remote/Mini
Remote Dropbar eru tengdar saman með Bluetooth®.
Kveiktu á rafhjólinu án þess að hjóla af stað.
Ef stjórntölvan Mini Remote/Mini Remote Dropbar hefur
ekki verið tengd við System Controller hjá söluaðila
reiðhjólsins skal gera eftirfarandi:
1. Notaðu fyrst appið eBike Flow til að tengja farsímann
við System Controller (sjá „Tengst við farsíma").
2. Í appinu skaltu velja eBike Flow <Connect the Mini
Remote>.
Þá er beðið um að setja System Controller og Mini
Remote/Mini Remote Dropbar í stöðu fyrir pörun.
3. System Controller: Pörun er sett í gang með því að
halda hnappinum til að kveikja/slökkva (12) inni (í
3 sekúndur) þar til neðra strikið í hleðsluvísinum (13)
gefur pörun til kynna með því að blikka í bláum lit.
4. Mini Remote/Mini Remote Dropbar: Settu pörun í
gang með því að ýta á einhvern hnapp þar til pörun er
gefin til kynna með því að LED-gaumljósið (3) blikkar í
bláum lit.
5. Fylgdu leiðbeiningunum í appinu eBike Flow.
Innan 30 sekúndna er gefið til kynna á stjórntölvunni Mini
Remote/Mini Remote Dropbar að pörunin hafi tekist með
því að LED-gaumljósið (3) blikkar 3× í grænum lit.
Ef ekki tekst á koma á tengingu blikkar LED-gaumljósið (3)
3× í rauðum lit. Endurtaka þarf ferlið.
Ef tengja á stjórntölvuna Mini Remote/Mini Remote
Dropbar við System Controller fyrir annað rafhjól skal gera
eftirfarandi:
1. Mini Remote/Mini Remote Dropbar: Taktu rafhlöðuna
úr stjórntölvunni Mini Remote/Mini Remote Dropbar
og settu hana aftur í.
2. Innan næstu 10 sekúndna skaltu síðan halda hnappinum
til að minnka stuðning –/ teymingarhjálp (6) inni í
5 sekúndur.
Pörunin er gefin til kynna með því að LED-gaumljósið (3)
blikkar í bláum lit í 30 sekúndur.
3. System Controller: Pörun er sett í gang með því að
halda hnappinum til að kveikja/slökkva (12) inni (í
3 sekúndur) þar til neðra strikið í hleðsluvísinum (13)
gefur pörun til kynna með því að blikka í bláum lit.
Innan 30 sekúndna er gefið til kynna á stjórntölvunni Mini
Remote/Mini Remote Dropbar að pörunin hafi tekist með
því að LED-gaumljósið (3) blikkar 3× í grænum lit.
Ef ekki tekst á koma á tengingu blikkar LED-gaumljósið (3)
3× í rauðum lit. Endurtaka þarf ferlið.
Bosch eBike Systems

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Mini remoteMini remote dropbarBrc3100Brc3300Brc3310

Table of Contents