Að Hreinsa Fylgihlutina; Bilanaleit - KitchenAid 5KSM150PSBGU Instructions Manual

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
umhirða og hreinsun
að hreinsa fylgihlutina
Skálina og hveitibrautina* má þvo
2
í uppþvottavél. Hrærarann og hnoðarann
er best að þvo upp úr heitu sápuvatni og
skola vel fyrir þurrkun. Ekki á að geyma
hrærara á hræraraöxlinum.
* Fylgir aðeins með gerðum 5KSM150PS og 5KSM45. Einnig fáanleg sem valkvæður fylgihlutur.

biLanaLeit

VIÐVÖRUN
Hætta á raflosti
Settu í samband við jarðtengdan tengil.
Ekki fjarlægja jarðtenginguna.
Ekki nota millistykki.
Ekki nota framlengingarsnúru.
Misbrestur á að fylgja þessum
leiðbeiningum getur leitt til dauða,
eldsvoða eða raflosts.
mikiLvægt: Þeytarinn má ekki
3
fara í uppþvottavél. Hreinsaðu hann
vandlega í heitu sápuvatni og skolaðu
fullkomlega fyrir þurrkun. Ekki geyma
þeytara á öxlinum.
Vinsamlegast lestu eftirfarandi áður en
samband er haft við þjónustuaðila.
1. Borðhrærivélin getur hitnað við notkun.
Ef álagið er mikið í langan tíma getur
mótorhúsið orðið svo heitt að varla er
hægt að hafa hönd á því. Þetta er eðlilegt.
2. Borðhrærivélin getur gefið frá sér sterka
lykt, sérstaklega þegar hún er ný. Þetta
á almennt við um rafmagnsmótora.
3. Stöðvið vélina ef hrærarinn snertir botn
skálarinnar. Sjá bls. „Bilið á milli hrærara
og skálar".
vinsamlegast athugaðu eftirfarandi ef
borðhrærivélin bilar eða virkar ekki:
- Er borðhrærivélin í sambandi?
- Er öryggið fyrir innstunguna sem
borðhrærivélin notar í lagi? Gakktu úr
skugga um að lekaliði hafi ekki slegið út.
- Slökktu á borðhrærivélinni í 10-15 sekúndur
og kveiktu svo á henni aftur. Ef hún fer
samt ekki í gang skal leyfa henni að kólna
í 30 mínútur áður en kveikt er aftur á henni.
- Ef vandamálið er ekki vegna neins
af ofangreindum atriðum, sjá hlutann
„Ábyrgð og þjónusta".
185

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents