Toolson PRO-AS 360 Operating Manual page 116

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 12
Fyrir notkun
Hætta!
Lesið vinsamlegast eftirtalin tilmæli áður en að vinna er
hafi n með Hleðsluskrúfjárninu:
1 Hlaðið hleðslurafhlöðuna með meðfylgjandi hleðs­
lutæki.
2 Notið einungis óskemmda og viðeigandi bita.
3 Þegar að skrúfað er í veggi og múr verður ávallt fyrst
að athuga hvort að rafmagnsleiðslur, gasleiðslur eða
vatnsleiðslur séu á þeim stað sem bora á í.
Verkfæri
Hleðslurafhlaða hlaðin (mynd 2)
Hleðslurafhlaðunni er sjálfkrafa hlíft við of lágri hleðslu.
Innbyggður öryggisrofi slekkur sjálfkrafa á tækinu þegar
að hleðslurafhlaðan er orðin tóm. Ef svo er, snýst patró­
na tækisins ekki lengur.
Ábending! Notið höfuðrofa tækisins ekki lengur þegar
að hleðsluöryggi tækisins hefur slegið út og slökkt á
tækinu. Það getur valdið skemmdum á tækinu. Berið sa­
man þá spennu sem gefi n er upp á tækisskiltinu og þá
sem að rafrásin hefur sem tengja á tækið við og gangið
úr skugga um að hún sé sú sama. Stingið hleðslutækinu
í samband við rafmagn og tengið hleðsluleiðsluna við
hleðslutengið. Hleðsla byrjar um leið og að hleðsluleiðs­
lan er tengd við hleðslutækið.
Rafgeymirinn hlaðinn (mynd 1/2)
1. Tengið hleðslutengið við hleðsluinnstunguna(5) á
tækinu.
2. Tengið hleðslutækið (8) við innstunguna.
3. Þegar hleðslu er lokið takið hleðslutækið (8) vúr sam­
bandi við rafmagn.
Rafgeymirinn er í hleðslu
Rafgeymirinn er í hleðslu
Rafgeymirinn er hlaðinn
Ábending! Haldfang tækisins getur hitnað á meðan að
hleðsla fer fram, það er eðlilegt.
Ef að hleðslurafhlaðan hleðst ekki ætti að athuga
• hvort að straumur sé á innstungu
• hvort að tenging á milli hleðslutækis og hleðslu­
rafhlöðu sé nægilega góð.
Ef að enn er ekki hægt að hlaða tækið biðjum við þig að
senda
• hleðslutækið
• og Hleðsluskrúfjárnið
þjónustuverkstæðis okkar.
Til þess að tryggja langan líftíma hleðslurafhlöðunnar
ætti að athuga að hlaða hana alltaf í tíma. Það er í
síðasta lagi nauðsynlegt ef að tekið er eftir því að kraftur
Hleðsluskrúfjárnsins er farinn að minka.
116 І 136
Stilling snúningsáttar (mynd 3 / staða 7)
Með rennirofanum fyrir ofan höfuðrofann er hægt að
skipta um snúningsátt hleðsluborvélarinnar og læsa
henni til þess að koma í veg fyrir að hún fari í gang án
þess að þess sé óskað. Hægt er að skipta í milli réttsæ­
lis snúnings og rangsælis snúnings. Til þess að koma í
veg fyrir skemmdir á drifi tækisins er einungis leyfi legt
að skipta um snúningsátt þess á meðan að tækið er í
kyrrstöðu. Ef að stilling snúningsáttar er í miðjustöðu, er
höfuðrofi tækisins læstur.
Höfuðrofi (mynd 3 / staða 6)
Þrýstið á höfuðrofann til þess að gangsetja hleðsluskrúf­
járnið. Sleppið höfuðrofanum til þess að stöðva tækið.
LED-ljós (mynd 3 / staða 2)
LED­ljósið (2) gerir notanda þessa tækis kleift að lýsa
upp skrúfur og þessháttar. LED-ljósið (2) logar sjálfkrafa
þegar að höfuðrofanum (6) er þrýst inn.
Athugun á hleðsluástandi rafgeymsins (mynd 1/4)
Hleðsluvísirinn (4) sýnir hleðsluástand rafgeymisins.
Hleðsluástand rafgeymisins er sýnt með því að viðko­
mandi LED-ljós logar. Til að virkja vísirinn þarf að kveikja
á slökkvaranum (6) .
Öll LED­ljósin loga:
Hleðslurafhlaðan er full hlaðin.
Gult og rautt LED­ljós loga:
Hleðslurafhlaðan er nægjanlega vel hlaðin.
Rautt LED­ljós:
Hleðslurafhlaðan er tóm, hlaðið hana.
Stilling snúningsvægis (mynd 4 / staða 3)
Snúningsvægi er still fyrir mismunandi skrúfustærðir
með stillihringnum (3). Rétt snúningsvægi er háð fl eiri
en einum hlutum:
• gerð og harðleika þess efnis sem unnið er með.
• gerð og lengd þeirra skrúfna sem notaðar eru.
• hversu mikið álag verður á skrúfunum.
Ef innstilltu snúningsvægi hefur verið náð, er það gefi ð
til kynna með skröltandi hljóði frá kúplingu tækisins.
Ábending! Snúið einungis stillihringi snúningsmát-
tar á meðan að tækið er ekki á snúningi.
Skipt um bita (mynd 5)
Varúð! Setjið stillirofa snúningsáttar hleðsluskrúfjárnsins
(til dæmis þegar að skipt er um bita; við umhirðu; og
þessháttar) í miðstillinguna.
• Dragið læsingarhulsuna (10) til baka og haldið henni
þannig.
• Stingið bita (a) í patrónuna (1) og sleppið læsingarhul­
sunni (10).
• Athugið hvort að bitinn sé fastur með því að draga í
hann.
Skrúfað
Notið ef hægt er skrúfur með sjálfmiðjun (til dæmis Torx,
stjörnuskrúfur) sem stuðla að meira vinnuöruggi. Gangið
úr skugga um að ísettur biti passi í þá skrúfu sem skrúfa
á.

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

3909206958

Table of Contents