Download Print this page

IKEA VARDESATTA Instruction page 63

Hide thumbs Also See for VARDESATTA:

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
Leið 3: Tímasparandi
Leið 3 krefst þess að þú fjarlægir
hraðsuðupottinn af hellunni um leið og
eldunartíma er lokið. Til að geta opnað lokið
strax þarf að létta handvirkt á þrýstingnum í
pottinum. Þessi aðferð sparar aðallega tíma.
1. Haltu hraðsuðupottinum undir rennandi
vatni þar til öryggisventillinn 5 fellur
aftur niður (þrýstingurinn á vatninu
má ekki vera mikill). Varúð! Gætið
þess að vatnsbunan renni ekki beint á
þrýstingsmælinn 3 eða öryggisventilinn
5 þar sem vatnið gæti borist í matvælin
og þynnt þau út.
2. Renndu lásnum 6 fram og snúðu
lokinu rangsælis á sama tíma þar til
þríhyrningurinn á lokinu vísar á pinnann
á handfangi loksins 11. Athugið! Um
leið og þú rennir lásnum 6 fram, gæti
afgangsgufa komið út.
3. Fjarlægðu lokið af pottinum.
6. Þrif og geymsla
Einfalt er að þrífa og hirða um
hraðsuðupottinn. Til að hægt sé að njóta
hans um árabil, ætti alltaf að fylgja
eftirfarandi leiðbeiningum um þrif.
Tíðni þrifa:
Aðgerð
Þrif á potti 9
Þrif á
þrýstingsmæli 3
Þrif á loki 4
Þrif á þéttihring 8
Skipt um
þéttihring 8
Svona er hraðsuðupotturinn þrifinn
Þvoðu alltaf hraðsuðupottinn eftir notkun.
— Hraðsuðupottinn ætti alltaf að þvo í
höndunum.
— Notið ekki stálull eða annað sem gæti
rispað yfirborðið.
— Ef mögulegt er, ætti að þvo
hraðsuðupottinn strax að notkun lokinni
svo að afgangar þorni ekki og festist við
pottinn.
Svona þrífur þú pottinn (9)
Þrífðu pottinn 9 eftir hverja notkun:
1. Þrífðu pottinn í höndunum með heitu
vatni og mildri sápu.
2. Skolaðu með hreinu vatni.
3. Þurrkaðu pottinn með diskaþurrku til að
ekki myndist för eftir vatnstauma.
Svona þrífur þú þrýstingsmælinn (3)
1. Losaðu róna á þrýstingsmælinum 3 með
því að snúa henni rangsælis. Notaðu
meðfylgjandi lykil 10.
Tíðni
Eftir hverja notkun
Þegar óhreint
Eftir hverja notkun
Eftir hverja notkun
Eftir þörfum. Hafðu
samband við IKEA
verslunina til að fá
nánari upplýsingar.
63

Hide quick links:

Advertisement

loading