KitchenAid 5KSM7990XEWH Original Instructions Manual page 187

6.9 l professional bowl-lift stand mixer
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
BORÐHRÆRIVÉLIN UNDIRBúIN FYRIR NOTKUN
UPPSETNING: Setja skal borðhrærivélina upp á láréttum og stöðugum fleti,
svo sem borðplötu eða vinnuborði.
Skálin látin síga
1. Snúðu stönginni til baka og niður.
Hrærari, þeytari eða hnoðkrókur
settur á
1. Snúðu hraðastillingunni á „0" (SLöKKT).
2. Taktu borðhrærivélina úr sambandi eða
taktu strauminn af.
3. Lyftu hlífinni.
4. Renndu
hræraranum upp
á hræraraöxulinn
og þrýstu eins langt upp og hægt er.
5. Snúðu hræraranum til hægri svo hann
krækist yfir pinnann eða öxulinn.
Hrærari, þeytari eða hnoðkrókur
tekinn af
1. Snúðu hraðastillingunni á „0" (SLöKKT).
2. Taktu borðhrærivélina úr sambandi eða
taktu strauminn af.
3. Lyftu hlífinni.
4. Ýttu hræraranum upp eins og hægt er
og snúðu honum til vinstri.
5. Togaðu hrærarann af hræraraöxlinum.
Hraðastilling
Soft Start eiginleikinn lágmarkar skvettur
með því að ræsa hrærivélina rólega áður
en farið er upp í valinn hraða. Til að draga
enn frekar úr hugsanlegum skvettum skal
alltaf byrja að hræra á þrepi 1 og síðan
auka hraðann smátt og smátt eftir þörfum.
Sjá „Leiðarvísi um hraðastillingu".
W10308298C_13_IS.indd 187
Laus hveitirenna
Lausa hveitirennan festist auðveldlega
framan á hlífina eins og sýnt er á
teikningunni að ofan. hún býður upp
á þægilega leið til að bæta hráefnum
í skál borðhrærivélarinnar.
Mótorvörn með sjálfvirkri
endurstillingu
Ef borðhrærivélin stöðvast vegna yfirálags
skal stilla hraðastillinguna á „0" (SLöKKT)
og taka vélina úr sambandi. Eftir nokkrar
mínútur endurstillir borðhrærivélin sig
sjálfvirkt. Settu borðhrærivélina aftur
í samband og stilltu hraðastillinguna á
óskaðan hraða og haltu áfram að hræra.
Ef borðhrærivélin endurræsir sig ekki
skal taka hana úr sambandi í lengri tíma til
að leyfa henni að kólna, síðan setja aftur í
samband og endurræsa. Ef borðhrærivélin
endurræsir sig ekki, sjá „Ef vandamál
koma upp".
Stöðvunarrofi
Ef þú þarft að stöðva borðhrærivélina
samstundis þegar hún er í notkun skaltu
ýta á Stöðvunarrofann. Til að halda áfram
aðgerðum skal endurstilla hraðastillinguna
á „0" (SLöKKT) og toga út Stöðvunarrofann.
Þá er borðhrærivélin tilbúin til venjulegrar
notkunar á ný.
187
7/20/12 1:55 PM

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

5ksm7990 series

Table of Contents