IKEA FINSMAKARE Manual page 68

Hide thumbs Also See for FINSMAKARE:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
ÍSLENSKA
viðgerðarmanns.
Þegar viðgerðir fara fram hjá þjónustuaðilum
sem IKEA hefur ekki valið og/eða viðurkennt,
eða ef notast er við varahluti sem ekki eru
upprunalegir.
Viðgerðir vegna rangrar uppsetningar eða
uppsetningar sem ekki er í samræmi við
fyrirmæli.
Notkun tækisins annars staðar en á heimilum,
þ.e. í atvinnustarfsemi.
Skemmdir við flutninga. IKEA ber ekki ábyrgð
á skemmdum sem geta orðið ef viðskiptavinur
sér um að flytja vöruna á heimili sitt eða á
annað heimilisfang. Ef IKEA flytur vöruna heim
til viðskiptavinar fellur hugsanlegt tjón við
flutninginn hins vegar undir þessa ábyrgð.
Kostnaður við uppsetningu tækisins.
Ef þjónustuaðili IKEA eða viðurkenndur
samstarfsaðili hans gerir við tækið eða
skiptir um það samkvæmt skilmálum
þessarar ábyrgðar mun þjónustuaðilinn eða
samstarfsaðili hans sjá um uppsetningu
tækisins, ef með þarf.
Þessi takmörkun á ekki við um gallalausa
uppsetningu sérhæfðs tæknimanns þar sem
notast er við upprunalega varahluti til að laga
tækið að tæknilegum öryggiskröfum annars lands
innan Evrópusambandsins.
Hvernig landslögin gilda
Ábyrgð IKEA veitir þér tiltekin lagaleg réttindi sem
uppfylla eða fara fram úr staðbundnum kröfum.
Þessir skilmálar takmarka þó að engu leyti þann
neytendarétt sem lýst er í staðbundinni löggjöf.
Gildissvæði
Ef flytja á heimilistæki keypt í einu
Evrópusambandslandi til annars lands innan
Evrópusambandsins verður þjónustan veitt innan
ramma þeirra ábyrgðarskilmála sem almennt
gilda í nýja landinu. Skylda til að veita þjónustu
innan ramma ábyrgðarinnar er eingöngu fyrir
hendi svo fremi að tækið uppfylli og sé uppsett í
samræmi við:
tæknikröfur landsins þar sem ábyrgðarkrafan
er lögð fram;
leiðbeiningar um samsetningu
og öryggisupplýsingarnar í
notkunarleiðbeiningunum;
Eftirsöluþjónusta IKEA heimilistækja er alltaf
til taks:
Ekki hika við að hafa samband við
eftirsöluþjónustu IKEA ef þú vilt:
1. óska eftir viðgerð sem þessi ábyrgð nær yfir;
2. óska eftir útskýringum á uppsetningu tiltekins
IKEA heimilistækis í eldhúsinnréttingu frá
IKEA. Þessi þjónusta er ekki ætluð fyrir
fyrirspurnir um:
-
almenna uppsetningu eldhúsinnréttinga frá
IKEA;
-
tengingu við rafmagn (ef tækið er afhent án
rafmagnssnúru og tengils) eða tengingu við
vatn eða gas, þar sem slík vinna skal vera í
höndum viðurkennds fagmanns.
3. fá útskýringar á texta notkunarleiðbeininga og
fyrirmæla um IKEA heimilistækið.
Til að tryggja að við getum veitt þér eins góða
þjónustu og unnt er skaltu lesa leiðbeiningarnar
um samsetningu og/eða notkun í þessum
bæklingi vandlega áður en þú hefur samband.
Hvernig þú hefur samband ef þig vantar aðstoð
Á öftustu síðu þessarar handbókar er að finna
lista yfir alla tengiliði IKEA og símanúmer þeirra í
hverju landi.
Mikilvægt! Til þess að við getum veitt þér skjótari
þjónustu ráðleggjum við þér að nota símanúmerin
sem fram koma í lok þessarar handbókar. Notaðu
alltaf símanúmerin sem fram koma í bæklingi
þess tækis sem þú þarft aðstoð með. Áður en
þú hringir þarftu að vera með IKEA vörunúmer
tækisins (átta tölustafa kóða) við höndina.
Mikilvægt! GEYMDU KASSAKVITTUNINA! Hún
er staðfesting á kaupunum og skilyrði þess að
ábyrgðin gildi. Athugaðu að á kvittuninni kemur
einnig fram IKEA vöruheiti og vörunúmer (átta
tölustafa kóði) fyrir hvert keypt tæki.
Þarftu frekari aðstoð?
Fyrir frekari spurningar sem ekki tengjast notkun
keyptra tækja. Vinsamlegast hafðu samband við
næstu þjónustumiðstöð IKEA. Við ráðleggjum þér
að lesa fylgigögn tækisins vandlega áður en þú
hefur samband.
68

Hide quick links:

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents