Hide thumbs Also See for KLAMMIG:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
ÍSLENSKA
Mikilvægt! Lesið þessar upplýsingar
vandlega. Geymið til að nota síðar.
Aldur
Þessi svefnpoki er ætlaður börnum frá 0 til
sex mánaða (frá 4,5kg).
Svona á að nota svefnpokann
Svefnpoki fyrir ungabörn og börn kemur í
stað venjulegs sængurfatnaðar og honum
fylgja kostir fyrir bæði þig og barnið þitt.
Hreyfingar barnsins minnka sem dregur
úr hættu á að það velti sér yfir á magann,
renni undir sæng eða klifri úr rúminu. Í stað
þess að nota teppi eða sæng, sem venjulega
er sparkað burt, veitir svefnpokinn jafnt
hitastig alla nóttina og þar af leiðandi
værari svefn. Svefnpokann má nota hvar
og hvenær sem er - á ferðalögum eða
þegar barnið er tekið upp til að gefa því að
drekka. Barnið er allan tímann í kunnuglegu
umhverfi.
Mikilvægt!
Hæfilegt svefnhitastig fyrir börn er 16-20°C.
Helstu áhrifaþættir á hitastig í svefnpoka eru
loftslag, herbergishiti, líkamshiti og fatnaður.
Barn ætti að vera í svefngalla eða náttfötum
í svefnpokanum, þar sem honum er ekki
ætlað að koma í stað slíks fatnaðar. Veljið
fatnað í samræmi við umhverfishita. Ekki
ætti að nota svefnpokann með teppi eða
sæng. Gætið þess að láta barnið alltaf sofa
á bakinu.
Þessi svefnpoki er frekar hlýr og hentar til
notkunar við almennan herbergishita, um
það bil 16-20°C.
Öryggisupplýsingar
Notið ekki pokann ef háls barnsins getur
runnið niður um hálsmálið þegar búið er
að festa pokann.
Notið svefnpokann ekki með teppi eða
sæng - til að barnið ofhitni ekki.
Haldið fjarri eldi.
Öryggi barns er í höndum foreldra þess
eða umönnunaraðila. Munið að gæta
reglulega að barninu.
NOTIÐ EKKI ef einhvern hluta vantar
eða ef pokinn er skemmdur á nokkurn
hátt.
9

Hide quick links:

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents