Hreinsun Með Eldglæðingu; Eldað Við Gufu; Innri Lýsing - AEG BFS8500T User Manual

Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 46
• Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notaðu aðeins hlutlaus þvottaefni. Notaðu ekki
rispandi efni, stálull, leysiefni eða málmhluti.
• Ef þú notar ofnasprey skaltu fara eftir öryggisleiðbeiningum á umbúðum þess.
2.5 Hreinsun með eldglæðingu
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum / eldsvoða / uppgufun efna (gufaureykur) við
eldglæðingarstillingu.
• Áður en hreinsun með eldglæðingu fer fram og forhitun fer í gang skaltu fjarlægja úr
ofnrýminu:
– Allar matarleifar, dreggjar, olíu eða feiti sem lekið hefur niður.
– alla hluti sem hægt er að losa (þ.m.t. plötur, plötubera í hliðum o.s.frv. sem fylgja
heimilistækinu), sérstaklega alla viðloðunarfría potta, pönnur, bakka, áhöld o.s.frv.
• Lestu leiðbeiningar fyrir eldglæðingu vandlega.
• Haldið börnum frá heimilistækinu þegar hreinsun með eldglæðingu stendur yfir.
Heimilistækið verður mjög heitt og berst heitt loft úr loftopum að framan.
• Hreinsun með eldglæðingu er aðgerð með háum hita sem getur losað gufur út frá leifum eftir
eldun og byggingarefni og er því mælt með fyrir notendur að:
– tryggja góða loftræstingu meðan á hreinsun með eldglæðingu stendur og eftir hana.
– tryggja góða loftræstingu meðan á forhitun stendur og eftir hana.
• Skvettu ekki né heldur settu vatn á ofnhurðina á meðan hreinsun með eldglæðingu stendur
eða eftir hana til að forðast skemmdir á glerplötunum.
• Gufur sem koma frá öllum ofnum með eldglæðingu / matarleifum samkvæmt lýsingu eru ekki
skaðlegar fyrir manneskjur, þ.m.t. börn eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma.
• Haldið gæludýrum frá heimilistækinu á meðan hreinsun með eldglæðingu og forhitun
stendur yfir. Lítil gæludýr (sérstaklega fuglar og skriðdýr) geta verið mjög viðkvæm fyrir
breytingum á hitastigi og uppgufun.
• Viðloðunarfrítt yfirborð á pottum, pönnum, bökkum, áhöldum o.s.frv. geta orðið fyrir
skemmdum vegna mikils hita við eldglæðingu í öllum ofnum sem búnir eru eldglæðingu og
geta líka gefið frá sér lítillega skaðlegar gufur.
2.6 Eldað við gufu
AÐVÖRUN!
Hætta á bruna og skemmdum á heimilistækinu.
• Gufa sem sleppur út getur valdið brunasárum:
– Farðu varlega þegar þú opnar hurð heimilistækisins á meðan aðgerðin er virkjuð. Gufa
getur sloppið út.
– Opnaðu hurðina á tækinu varlega þegar eldað hefur verið með gufu.
2.7 Innri lýsing
AÐVÖRUN!
Hætta á raflosti.
• Varðandi ljósin inn í þessari vöru og ljós sem varahluti sem seld eru sérstaklega: Þessi ljós
eru ætluð að standast öfgakenndar aðstæður í heimilistækjum eins og hitastig, titring, raka
eða til að senda upplýsingar um rekstrarstöðu tækisins. Þau eru ekki ætluð til að nota í
öðrum tækjum og henta ekki sem lýsing í herbergjum heimila.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
143/272

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Bkt8s5t0

Table of Contents