Chamberlain ML700EV Assembly And Operating Instructions Manual page 278

Hide thumbs Also See for ML700EV:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 16
6. Hurðin opnast en lokast ekki:
• Það ætti að athuga léttu hindrunina, sé hún uppsett. Ef díóðan við léttu
hindrunina blikkar, ætti að athuga leguna.
• Athugaðu virkni senditækisins eða veggrofans.
7. Það kviknar ekki á opnaraljósinu:
• Opnaðu eða lokaðu hurð. Það er áfram kveikt á ljósinu í 2,5 mínútur.
• Taktu opnara úr sambandi við stofnleiðslu og settu aftur í samband.
Það kviknar á ljósinu í nokkrar sekúndur.
• Ekkert afl.
8. Það slokknar ekki á opnaraljósinu:
• Taktu úr sambandi við rafmagn í stuttan tíma og reyndu aftur.
• 2,5 mínúta er ekki liðin enn.
9. Mótor suðar og gengur í mjög stuttan tíma, en starfar ekki:
• Fjaðrir bílskúrshurðarinnar eru gallaðar. Lokaðu hurðinni og taktu þær
úr sambandi við opnarann með því að toga í handfangið á sleðanum
(handvirk losun). Opnaðu og lokaðu hurð handvirkt. Sé hurðin rétt
jafnvægisstillt, halda hurðafjaðrirnar einar og sér henni á hvorum stað
fyrir sig. Ef það gerist ekki, skaltu hafa samband við þjónustumiðstöð
þína.
• Geri þetta vandamál vart við sig við fyrstu notkun, getur verið að
hurðin sé læst.
Afvirkjaðu hurðarlæsingu.
• Aftengdu opnarann frá hurðinni og reyndu án hurðarinnar. Sé hurðin í
lagi, skaltu endurforrita vinnsluátak og teygju.
10. Opnarinn virkar aðeins í eina átt:
• Hurðafjaðrir geta verið bilaðar eða þá að hurðin er stíf í aðra áttina.
• Sé hurðin í lagi, skaltu endurforrita vinnsluafl og teygju opnarans.
11. Tannreimin skröltir á brautinni:
• Stilltu tannreiminspennuna. Orsökin er vanalega mjög strekkt.
Fjöðrinni á klemmubúnaði brautarinnar má ekki vera þrýst saman að
fullu.
• Hurðin rennur ójafnt og gerir það að verkum að drifið hristist. Lagaðu
rennsli hurðar.
12. Opnari fer ekki í gang vegna rafmagnsleysis:
• Aftengdu opnarann með því að toga í handfangið á sleðanum
(handvirk losun). Nú er hægt að opna og loka hurðinni handvirkt.
Sé opnarinn endurvirkjaður, er sleðinn einnig tengdur á ný.
• Bjóði uppsetningin upp á slíkt, er sleðinn losaður frá drifinu, ef það
kemur til rafmagnsbilunar, af ytri neyðarsleppibúnaði utan frá bílskúrnum.
13. Hurð fer til baka eftir að átakið hefur verið forritað:
• Athugaðu hvort brautin bognar. Opnarinn þarf mikið afl til að hreyfa
hurðina. Gerðu við eða settu hurð upp á réttan hátt.
• Hurðin er mjög þung eða er í slæmu ásigkomulagi. Hafðu samband
við sérfræðing.
14. Brautin bognar á opnaranum:
• Hurðin er þung, mjög þung, stíf eða í slæmu ásigkomulagi. Hafðu
samband við sérfræðing.
• Sveiflist brautin til á meðan hurðin hreyfist, er það merki um að
ójafnvægi sé á virkni hurðar sem hefur í för með sér síbreytilegar
rafmagnsþarfir. Hafðu samband við sérfræðing, og það gæti verið að
það þyrfti að smyrja hurðina. Styrking á upphengingu brautarinnar
gæti verið ráðleg.
15. Opnarinn "keyrir" (mótorinn starfar svo það heyrist) en sleðinn
hreyfist ekki:
• Sleðinn hefur losnað frá opnaranum.
• Á nýrri uppsetningu: Við samsetningu mótors og brautar, var
hin forsamsetta tengimúffa á milli mótorskaftsins og brautarinnar
ekki sett upp. Múffan er forsamsett í verksmiðjunni, en hana
má fjarlægja. Standirðu fyrir aftan opnarann geturðu séð hvort
tannhjólið snýst á brautinni eða bara mótorinn.
• Á nýrri uppsetningu: Tannreimin hefur losnað af tannhjólinu á
brautinni. Standirðu fyrir aftan opnarann, geturðu séð tannhjólið.
• Eftir áralanga notkun: Er sleppibúnaðurinn bilaður eða alltaf óvirkur?
• Eftir áralanga notkun: Múffan milli brautar og mótors er biluð eða
stýribúnaður mótors.
16. Hurðin losnar frá sleðanum og stöðvast:
• Ytri sleppibúnaður sem hefur verið settur upp í rafmagnsleysi skal
athugaður til að athuga hvort það teygist á honum og hann sleppi
við opnun hurðarinnar. Fylgstu með gangverkinu og endurstilltu ef
þess gerist þörf.
• Handfangið á sleppibúnaðinum ætti ekki að festast í öðrum hlutum.
17. Stilling á átaki
Undir lokinu aftan á hurðaopnaranum má finna stillingarhnapp fyrir átak.
Með átaksstillingunni er stillt inn það átak sem nauðsynlegt er fyrir
opnun og lokun hurðarinnar.
1. Opnið lokið á bakhlið opnarans.
2. Ýtið tvisvar á gula samstillingarhnappinn til að fara í átaksstillinguna.
LED-ljósið og UPP-hnappurinn blikka. Ýtið á UPP-hnappinn. Hurðin
hreyfist í opna endastöðu og lærir þannig að þekkja nauðsynlegt átak.
Þegar hurðin er komin í opnu endastöðuna byrja LED-ljósið og NIÐUR-
hnappurinn að blikka. Ýtið á NIÐUR-hnappinn. Hurðin hreyfist í lokaða
endastöðu og lærir þannig að þekkja nauðsynlegt átak.
Þegar átakið hefur verið stillt inn í minni hætta LED-ljósið og NIÐUR-
hnappurinn að blikka.
Hurðin verður að fara heila lotu af OPNA/LOKA-aðgerð til að læra að
þekkja rétta átakið. Ef hurðaopnarinn getur ekki opnað eða lokað hurðin
ni að fullu skal skoða hurðina til að kanna hvort rétt hefur verið gengið
frá henni með tilliti til jafnvægisstillingar og ganga úr skugga um að hún
sé hvorki beygluð né föst. Stilla verður átakið til að tryggja að rétt endas-
taða festist í minni.
is 10/13

Advertisement

Table of Contents
loading

This manual is also suitable for:

Ml1000ev

Table of Contents