Download Print this page

3M Peltor WS ProTac XP MT15H7 WS5 Series Manual page 62

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
IS
6:3 Viðmiðunarstig
Viðmiðunarstig er það magn hávaða (mældur sem A-veginn hljóðþrýstingur) utan heyrnarhlífa sem gefur 85 dB (A) innan
þeirra. Hávaðastigið ræðst af tegund hávaða. H er hávaði sem einkennist af hárri tíðni, M er hávaði sem ekki einkennist af
neinni ákveðinni tíðni og L er hávaði sem einkennist af lágri tíðni.
Skilgreind viðmiðunarstig fyrir WS ProTac XP skilgreind í EN352-4 eru: L = 99 dBa, M = 106 dBa, H = 117 dBa.
6:4 Rafhlöður
Hægt er að nota margar tegundir af AA 1,2-1,5V rafhlöðum (NiMH, NiCd, Alkaline) en aðeins NiMH og NiCd eru
endurhlaðanlegar.
6:5 Rafhlöðuending
Búast má við að endingartími rafhlaðna sé breytilegur og ráðist af tegund þeirra og hitastigi við notkun. Lág hleðsla á rafhlöðu
er staðfest með raddskilaboðum: „low battery" (rafhlaða að tæmast). Heyrnartólin virka ekki eins vel og til er ætlast þegar lítið
er orðið eftir í rafhlöðunum.
Ending 2*AA Alkaline rafhlaðna
Umhverfishljóð + Bluetooth (virkt) > 24 klst.
Umhverfishljóð eingöngu + Bluetooth (slökkt) > 150 klst.
6:6 Bluetooth 2.1
A2DP 1.2
HSP 1.2
HFP 1.5
AVRCP 1.0
Heyrnartólin eru hönnuð fyrir Bluetooth-staðal V.2.1 (snið heyrnartóla og handfrjáls búnaðar + A2DP) og prófuð í
samræmi við: EN 300 328-17 (útvarpsprófun), EN 301 489-1/-17 (EMC-prófun), EN 60 950-1 (raföryggi), FCC hluta 15.247
(bandarískt útvarpspróf) og I.C. (kanadískt útvarpspróf).
Öryggisupplýsingar
Í þráðlausa móttakaranum þínum er að finna lágspenntan sendi. Þegar sendirinn er í gangi, sendir hann frá sér
útvarpsbylgjutíðni (RF)-merki. Ekki má nota búnaðinn við hærri öryggisstuðul en 50%. Aðeins má nota loftnetið sem fylgir.
Óvottuð loftnet, breytingar og viðbætur gætu skaðað sendinn og verið brot á FCC-reglum.
7. GEYMSLA
Geymdu ekki tækið þar sem hiti fer yfir +55°C, t.d. við bílrúðu eða í gluggakistu. Ekki geyma heyrnarhlífarnar við lægri
hitastig en –55°C.
ATHUGAÐU: VIÐ RAKA. Snúðu skálunum út. Fjarlægðu eyrnapúðana (mynd E) þannig að hljóðdeyfingarpúðarnir nái að
þorna. Fjarlægðu rafhlöðurnar þegar heyrnarhlífarnar eru geymdar ónotaðar um langa hríð. Athugaðu virkni tækisins þegar
búið er að skipta um rafhlöður. Mælt er með því að hámarks geymsluþol sé ekki meira en 5 ár frá framleiðsludegi.
8. VIÐHALD/HREINLÆTI/FÖRGUN
Hafi tækið verið í notkun lengi í einu eða aðrar aðstæður valda því að raki hefur myndast innan í skálunum, skaltu
fjarlægja púðana og hlífarnar svo heyrnarhlífarnar nái að þorna áður en þær verða notaðar næst. Heyrnartólin (og einkum
eyrnapúðarnir) geta að lokum slitnað. Skoðaðu þau reglulega, gáðu að skemmdum og skiptu um eftir þörfum. Viss
efnafræðileg efni geta farið mjög illa með vöruna. Nánari upplýsinga má afla hjá 3M.
Heyrnarhlífar og einkum þó eyrnapúðarnir geta rýrnað með tímanum og því ætti að skoða þá reglulega og leita að til dæmis
sprungum og leka.
Hreinsaðu/sótthreinsaðu skálarnar, höfuðspangirnar og eyrnapúðana reglubundið með sápu og heitu vatni.
Athugasemd! Má ekki setja á kaf í vatn eða annan vökva.
Vara þessi fellur undir WEEE tilskipun 2002/96/EC og er endurvinnanleg. Fargaðu vörunni í samræmi við landslög og -reglur.
Nýttu þér förgunarstöðvar fyrir rafeindavörur á þínum heimaslóðum.
60

Advertisement

loading