Electrolux LFB3AE82R User Manual page 30

Table of Contents

Advertisement

Available languages

Available languages

VARÚÐ!
Aukahlutir og hlutar heimilistækisins eru
ekki ætlaðir fyrir uppþvottavélar.
7.2 Reglubundin hreinsun
Hreinsa þarf búnaðinn reglulega:
1. Hreinsaðu innra byrðið og aukahluti með
volgu vatni og hlutlausri sápu.
2. Skoðaðu hurðarþéttingar reglulega og
strjúktu af þeim svo þær séu hreinar og
lausar við óhreinindi.
3. Skolaðu og þurrkaðu vandlega.
7.3 Ísskápurinn affrystur
Frostið er losað sjálfkrafa úr eimi kælihólfsins
við eðlilega notkun. Vatnið eftir affrystinguna
lekur út í gegnum trekt í sérstakt ílát aftan á
heimilistækinu fyrir ofan þjöppuna, þar sem
það gufar upp.
Það er mikilvægt að hreinsa reglulega
niðurfallsgatið fyrir affallsvatnið sem staðsett
er undir salatskúffunum til að koma í veg fyrir
að vatnið flæði upp úr og leki á matinn inni í
kælinum.
Það skal nota rörahreinsinn sem fylgir með
heimilistækinu við þrifin.
7.4 Affrysting frystisins
VARÚÐ!
Aldrei nota beitt málmverkfæri til að
skrapa hrím úr eiminum þar sem þau
geta skemmt hann.
Notaðu ekki vélrænan búnað eða aðrar
aðferðir til að hraða þíðingarferli, annan
en þann sem framleiðandinn mælir með.
30
ÍSLENSKA
Um 12 klukkustundum fyrir þíðingu skaltu
stilla á lægra hitastig til þess að byggja
upp fullnægjandi kuldaforða ef einhver
truflun skyldi verða á aðgerð.
Eitthvað magn af hrími mun alltaf myndast á
frystihillunum og í kringum efsta hólfið.
Affrystu frystinn þegar hrímlagið er orðið 3-5
mm þykkt.
1. Slökktu á heimilistækinu eða taktu það úr
sambandi við rafmagnsinnstunguna á
veggnum.
2. Fjarlægðu allan mat sem hefur verið
geymdur og láttu á svalan stað.
VARÚÐ!
Ef hitastig frosins matar hækkar
meðan á þíðingu stendur getur það
minnkað geymsluþol hans.
Ekki snerta frosnar vörur með
blautum höndum. Hendur geta frosið
við vörurnar.
3. Láttu hurðina standa opna. Verðu gólfið
gegn vatni frá þíðingunni, t.d. með klút
eða flötu íláti.
4. Til að hraða þíðingunni skaltu setja pott af
volgu vatni í frystihólfið. Auk þess skaltu
fjarlægja ísstykki sem brotna af áður en
affrystingunni lýkur.
5. Þegar þíðingunni er lokið skal þurrka
hólfið vel að innan.
6. Kveiktu á heimilistækinu og lokaðu
hurðinni.
7. Stilltu hitastillinn þannig að
hámarkskæling náist og leyfðu tækinu að
ganga í að minnsta kosti 3 klukkustundir
áður en þessi stilling er notuð.
Aðeins þá skal setja matvæli aftur í
frystihólfið.
7.5 Þrífa loftrásir
1. Fjarlægið sökkulinn (A), síðan loftristina
(B).

Advertisement

Chapters

Table of Contents
loading

Table of Contents